Sjávarútvegsráðherra (Halldór Ásgrímsson) (um þingsköp) :
    Virðulegur forseti. Út af þeim ummælum hv. 1. þm. Suðurl. vil ég einfaldlega vísa til bókunar sem ríkisstjórnin hefur gert um þetta mál sem er vitni um það og margoft hefur komið hér fram að ríkisstjórnin hefur komið sér saman um meðferð málsins og allt annað er rangt.