Skuldbreytingar vegna loðdýraræktar
Þriðjudaginn 05. desember 1989


     Eiður Guðnason:
    Virðulegi forseti. Hér er vissulega mikill vandi á höndum þegar fjallað er um vanda loðdýraræktarinnar. Það er ljóst að hér er við erfið mál að eiga og það er líka ljóst að sú lausn sem hér liggur fyrir er millileið þar sem mörgum þykir of skammt gengið og að ónóg sé hér að gert.
    Það er ekki nokkrum minnsta vafa undirorpið að þegar farið var af stað í þessari búgrein þá var það gert nánast skipulagslaust og fyrirhyggjulítið og oft með þeim hætti að nauðsynleg þekking og kunnátta var engan veginn fyrir hendi. Þarna hafa verið gerð hrikaleg fjárfestingarmistök, ekki bara staðsetning búanna og stærð, heldur ekki síður staðsetning eða stærð og afkastageta fóðurstöðva. Þetta viðurkenna nú þeir menn sem gerst þekkja og mest vita um málið, að sumar stöðvarnar, t.d. á Sauðárkróki, að sú fjárfesting var glórulaus vitleysa frá upphafi. Þetta hefur komið fram á fundum í hv. landbn.
    Hv. 4. þm. Austurl. Egill Jónsson flutti hér afar langa ræðu en kannski ekki alveg að sama skapi merkilega, en það er auðvitað álitamál. Hann taldi þessa lausn valda miklum vonbrigðum. Hér væri um ófullkomnar aðgerðir að ræða og væri hvergi nærri nægilega langt gengið til aðstoðar við loðdýrabændur. Það má kannski til sanns vegar færa en hins vegar hlýtur ætíð að vera álitamál hversu langt á að ganga í þessum efnum eftir það sem búið er að gera og ég mun víkja að hér síðar.
    Hv. þm. Egill Jónsson er höfundur bæklings eða rits sem heitir ,,Til nýrra tíma``, höfundur og útgefandi: Egill Jónsson, stendur hér skilmerkilega á forsíðu og á þriðju síðu er mynd af höfundi þessu til staðfestingar. Á bls. 20 í þessum bæklingi er fjallað um atvinnuuppbyggingu í sveitum, innan sviga 450 loðdýrabú. Þetta er gefið út að ég hygg ( EgJ: 1987.) 1987. Það kemur nú reyndar ekki fram í ritinu svo sem skylda mun vera samkvæmt lögum að ég hygg.
Hér er greint frá áætlun um uppbyggingu loðdýrabúskapar til mótvægis í hefðbundnum landbúnaði og þar segir, með leyfi forseta:
    ,,Athygli vekur hvað hér er um hagnýtt verkefni að ræða. Samkvæmt áætluninni væri kominn á jöfnuður milli stofnkostnaðar og tekna á árinu 1988. Á síðasta ári aðlögunartímabilsins nema árlegar tekjur svipaðri upphæð og nýsköpunarféð samtals yfir allt tímabilið. Síðan þessi áætlun var gerð hafa málefni loðdýraræktarinnar skýrst enn betur, m.a. með skýrslu Byggðastofnunar um loðdýrarækt. Það auðveldar mat á aðstæðum og aðgerðum til að efla þessar nýgreinar.``
    Nú skulum við líta hér á þetta súlurit í þessu merka hugverki hv. þm. Egils Jónssonar. Árið 1988 eru tekjur af loðdýraræktinni samkvæmt því hátt í 700 millj. en stofnkostnaður 600 millj. Árið 1989, þ.e. yfirstandandi ár, eru tekjur af loðdýrarækt --- og takið nú eftir, hv. þm. --- hátt í 1 milljarður kr., næstum einn milljarður kr., en stofnkostnaður um eða í kringum 100 millj. Á næsta ári, árið 1990, eiga tekjurnar eftir þessu súluriti að vera 1 milljarður kr.

og stofnkostnaður enginn. Og nú spyr ég: Hverjum er farið að förlast?
    Ég geri ráð fyrir að hv. þm. hafi dreift þessu riti til bænda í sínu kjördæmi með þessum spádómum og þeim upplýsingum sem hér er að finna. Þetta er umhugsunarefni.
    Hv. þm. Egill Jónsson vill að miklu lengra sé gengið. Það hefur komið skýrt fram hjá hæstv. landbrh. að hér er um samkomulagslausn að ræða. Mér er það alveg ljóst að ýmsir í ríkisstjórninni hefðu viljað ganga eitthvað lengra en landbrh. hefur lýst þessu sem samkomulagsmáli og ekki farið um það fleiri orðum. Þetta er það sem er samkomulag um að gera núna. Vel má vera að á einhverjum síðari stigum reynist nauðsynlegt að grípa til annarra aðgerða.
    Af málflutningi hv. þm. Danfríðar Skarphéðinsdóttur, sem talaði hér síðast fyrir hönd Kvennalistans, varð heldur ekki annað skilið en að hér væri of skammt gengið og gera þyrfti meira. Hún gerði sérstaklega að umtalsefni þá sem hafa skrifað upp á veðsetningar eða skuldabréf eða víxla vegna þessara mála. Það er sjálfsagt rétt að það eru ýmsir sem munu eiga í erfiðleikum vegna þess. En þá ber auðvitað að hafa í huga að þegar menn skrifa upp á slíkar skuldbindingar hljóta þeir um leið að gera sér grein fyrir því og vera við því búnir að standa skil á skuldinni geti greiðandi ekki innt hana af höndum. Það er eðli máls í öllum fjármálaviðskiptum. Ég hef vissulega samúð með því fólki sem svona er ástatt um en svona er bara ástatt á mörgum fleiri sviðum eins og t.d. að því er varðar öflun íbúðarhúsnæðis hjá fjölmörgum aðilum.
    Það er satt að segja furðulegt að hlusta á talsmenn stjórnarandstöðunnar, hvort sem þar er um að ræða Kvennalistann eða Sjálfstfl., klifa hér á því sífellt í hverju málinu á fætur öðru að ekki sé nóg um fjárútlát úr ríkissjóði, gera þurfi betur, greiða þurfi meira, hækka framlög, jafnframt því sem talað er um að skattáþjánin sé orðin með þeim ólíkindum að við það verði ekki unað og þess vegna verði að lækka skatta. Þetta er kjarninn í málflutningi, ekki bara Kvennalistans og hefur verið lengi, heldur líka í
málflutningi hv. sjálfstæðismanna í stjórnarandstöðu. Og ég spyr: Hvernig getur þetta gengið upp? Svarið er: Það getur ekki gengið upp. Svo einfalt er það. Eða þegar hv. þm. Sjálfstfl., bæði í þessari deild og hv. Nd., leggja til að framlög ríkissjóðs og greiðslur úr ríkissjóði verði auknar, jafnframt því sem skattar verði stórlega lækkaðir, hvað vilja þeir þá skera niður? Á að byrja á heilbrigðiskerfinu, menntakerfinu, þeirri félagslegu þjónustu sem byggð hefur verið upp í þessu samfélagi? Er það vilji Sjálfstfl.?
    Ef menn gera tillögur um stóraukin útgjöld úr ríkissjóði þá hvílir á þeim sú siðferðilega skylda að gera grein fyrir því hvernig á að afla tekna til þeirra útgjalda. Það dugar ekki að gera samtímis tillögur um skattalækkanir. Það er satt best að segja alveg einstaklega ómerkilegur málflutningur. Alveg einstaklega. En þetta er svo sem ekki nýtt.
    Hér er sagt að allt of skammt sé gengið varðandi

aðstoð við loðdýraræktina. Í skýrslu þeirri sem vikið hefur verið að hér oftar en einu sinni, úttekt á stöðu loðdýraræktar, eru taldar upp sérstakar aðgerðir vegna loðdýraræktar 1988 og 1989. Og með leyfi forseta nefni ég hér nokkur atriði:
    Óskað var eftir því við Stofnlánadeild landbúnaðarins að hún frestaði afborgunum stofnlána fóðurstöðva og í nokkrum tilvikum afborgunum af lánum einstakra bænda. Þá var ákveðið að afskrifa 30% af áhvílandi búralánum hjá refabændum, samtals um 30 millj. kr.
    Skuldbreyting lausaskulda. Stofnlánadeild landbúnaðarins samþykkti að lána refabændum til skuldbreytinga lausaskulda vegna refaræktar. Þegar hafa verið veitt lán að upphæð um 100 millj. kr.
    Framleiðnisjóður landbúnaðarins veitti refabændum óverðtryggð og vaxtalaus lán til sex ára vegna framleiðslu refaskinna, 550 kr. á hvern hvolp. Alls nam lánveiting Framleiðnisjóðs vegna þessa 46,9 millj.
    Stjórn Byggðastofnunar heimilaði stofnuninni að verja allt að 50 millj. kr. til að leggja fram sem hlutafé við fjárhagslega endurskipulagningu reksturs fóðurstöðva. Þá veitti stofnunin lán til hlutafjárkaupa. Varið var 60 millj. kr. til aðstoðar við búháttabreytingu úr ref í mink, eins og það er orðað hér. --- Þetta er allnokkuð.
    Á árinu 1989 eru eftirfarandi aðgerðir: Frestun afborgana stofnlána, lenging lána, skuldbreyting lausaskulda. Heildarfjárhæð þessi nam 60 millj. kr. Jöfnunargreiðsla á fóður.
    Það hefur mjög margt verið gert og það er alveg ljóst að ef mæta ætti ýtrustu kröfum þeirra sem fást við þessa búgrein yrði um of seilst í vasa skattgreiðenda vegna þess að þaðan koma peningarnir, en ég heyri að það er það sem hv. þm. Egill Jónsson og jafnvel hv. þm. Kvennalistans, sem ekki þykir nóg að gert, vilja að gert verði. Og það er eins gott að það liggi alveg skýrt og ljóst fyrir að þetta er þeirra vilji.
    Hér er komið til móts við loðdýrabændur. Mér er fyllilega ljóst að mörgum þykir sem ekki sé nóg að gert. Hér er um samkomulagsleið að ræða á þessu stigi máls. Ég áskil mér allan rétt til þess að skoða þetta mál að nýju í ljósi nýrra kringumstæðna síðar, en það er alveg ljóst að hér var of mikið gert með lítilli fyrirhyggju, lítilli skynsemi, nær engu skipulagi og af því eru menn að súpa seyðið núna. Það er auðvitað alveg óhjákvæmilegt að það komi við einhvern en þær aðgerðir, sem hér eru á döfinni, eru hugsaðar til hjálpar og aðstoðar. Þær mættu að margra mati verða meiri en þetta er það sem samkomulag varð um og því lýsi ég stuðningi við þetta mál eins og það hér liggur fyrir.