Leyfi frá störfum vegna umönnunar barna
Þriðjudaginn 05. desember 1989


     Salome Þorkelsdóttir:
    Hæstv. forseti. Ég vildi aðeins í örfáum orðum lýsa stuðningi við grundvallarhugmynd frv. Það fjallar um mikilvægt atriði, þ.e. að koma til móts við breyttar aðstæður foreldra ungra barna og gera þeim kleift að sinna þörfum heimilis og barna fyrstu tvö ár í ævi þess án þess að raskað sé atvinnuöryggi þeirra eins og fram kemur í greinargerð frv.
    Hv. 1. flm. gaf hér ítarlegt yfirlit um réttindastöðu foreldra hvað þessi mál varðar og þá aðallega kvenna, af eðlilegum ástæðum sem ekki ætti að þurfa að fjölyrða frekar um. Við þekkjum það öll í hvaða stöðu foreldrar og þá fyrst og fremst mæður eru hvað það varðar að geta sinnt störfum úti á vinnumarkaðinum með ungbörn á framfæri.
    Eins og kom réttilega fram í máli hv. þm. hefur þróun gengið mjög hægt, t.d. varðandi setu kvenna í sveitarstjórnum eins og hún sagði réttilega frá. Ég held að ég hafi tekið rétt eftir að nú sé þátttaka kvenna í sveitarstjórnum aðeins 13% á landinu öllu. Það rifjar upp fyrir mér að fyrir tveimur áratugum, ef ég fer rétt með tölur, hafi innan við 2% af sveitarstjórnarfulltrúum verið konur. Þetta var á þeim tíma þegar ég, kornung að árum náttúrlega, var að byrja þátttöku mína í sveitarstjórnarmálum. Og ef ég man rétt voru þær ekki búnar að ná 3% svona áratug seinna, en nú eru þær komnar í 13%. Þessi þróun gengur að sjálfsögðu allt, allt of hægt vegna þess að á þessum tíma, sérstaklega kannski síðasta áratug, hefur þróunin verið miklu hraðari hvað varðar þátttöku eða fjölgun kvenna úti á vinnumarkaðinum, þ.e. við störf utan heimilis.
    Ég ætla ekki að fara neitt ítarlegar út í þessi mál. Hv. 1. flm. gerði þeim góð skil og það er hægt að taka undir hennar orð hér. Það kemur fram í umsögnum um frv. að það hefur fengið stuðning, ýmist einróma eða gerðar hafa verið athugasemdir, aðallega við framkvæmdina. Efasemdir koma fram hjá Jafnréttisráði, en þar er lögð áhersla á, sem ég vil taka undir, að það er mikilvægt að hugmyndir um á hvern hátt megi aðlaga vinnumarkaðinn betur að fjölskyldunni verði þróaðar í nánu samstarfi við aðila vinnumarkaðarins.
    Það kom hér fram í máli hv. 4. þm. Reykn. að hann taldi að það væri brýnt að afgreiða frv. og samþykkja það. Það var vissulega gott að heyra það frá þingmanni sem þekkir vel inn á vinnumarkaðsmálin og hann lýsti því að hann hefði jafnvel sjálfur samið um slík launalaus leyfi hjá starfsfólki sem hann hefur haft með að gera og er gott til þess að vita. Manni dettur nú í hug hvort ekki væri eðlilegt t.d. að opinberir aðilar gengju þarna á undan með góðu fordæmi. Meginmálið hlýtur hins vegar að vera að aðilar vinnumarkaðarins taki þessi atriði inn í kjarasamninga.
    Í grundvallaratriðum vil ég lýsa stuðningi við frv. og vænti þess að hægt verði að finna leiðir til þess að afgreiða það hér úr hv. deild.