Matthías Bjarnason:
Herra forseti. Þetta frv. sem fjallar um veiðieftirlitsgjald felur í sér í meginatriðum að láta þá sem nýta auðlindina, fiskveiðiauðlindina, standa undir þeim kostnaði sem er af veiðieftirlitinu. Út af fyrir sig er ég því alveg sammála. Ég tel að þetta frv. eigi fullan rétt á sér. En það er eins og með annað að vitaskuld getur verið álitamál hvernig á að byggja þetta eftirlit upp. Það má heldur ekki verða of smásmugulegt og of margir við það. Það hljóta að vera takmörk fyrir því hvaða mannafli getur verið í þessu eftirliti og aldrei getur það orðið sá mannafli að hann geti fylgst með löndun hjá hverjum einasta bát og hjá hverri einustu trillu. Það má líka benda á að að sjálfsögðu má færa betur saman starfsemi veiðieftirlits og Landhelgisgæslu sem hefur eftirlit með veiðarfærum og fleiru, að nýta betur þann mannafla og skip sem þar eru starfandi. Þetta held ég að sé nauðsynlegt að gera og sömuleiðis að byggja nokkuð upp hvernig á að hafa veiðieftirlitið frá ári til árs. Það er nauðsynlegt, þó að hér sé sett á ákveðið hámarksgjald af áætluðu verðmæti sjávarafla, að byggja það upp á fjárhagsáætlun, svo að ekki verði of ítarlega farið út í þetta eftirlit, þannig að það verði mönnum eiginlega ofvaxið. Þar sem ég á sæti í þeirri nefnd sem væntanlega fær þetta frv. til meðferðar er ég fyrir mitt leyti hlynntur því að hraða afgreiðslu þessa máls, enda er nauðsynlegt að það verði að lögum fyrir jól. Starfsemi veiðieftirlitsins byggist á því þar sem þetta er í þeim forsendum sem fjárlagafrv. gerir ráð fyrir. Því mun ég ekki leggjast gegn því að afgreiða þetta mál og mun reyna að greiða fyrir afgreiðslu þess. En nauðsynlegt er auðvitað að fá hjá nefndinni nokkrar breytingar og svör við spurningum sem fram kunna að koma.