Halldór Blöndal:
Herra forseti. Það er vegna þess að hér er ekki farið rétt með. Þegar tekin var sú ákvörðun að söluskattur skyldi útsölulagður á öll matvæli þá var söluskatturinn að fullu endurgreiddur af sumum matvælum eins og kindakjöti og mjólk. (Gripið fram í.) Hv. þm. fer ekki rétt með þetta atriði en hins vegar heyrðu þingdeildarmenn að handjárnin síðan í vantrauststillögunni, þeirri atkvæðagreiðslu, falla vel að úlnlið hins unga þingmanns.