Guðrún Agnarsdóttir:
Hæstv. forseti, aðeins örstutta athugasemd í lokin. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svör hans. Hann svaraði ekki öllum mínum spurningum enda held ég að hann eigi ekki svör við þeim enn þá. Reynslan verður að skera úr um það. Hins vegar væri fróðlegt að leggja fyrir hann afskaplega einfalda spurningu og vita hvort hann kann svör við henni.
Hæstv. fjmrh. segir að það muni engu máli skipta þótt virðisaukaskattur verði ekki lagður á matvæli vegna þess að þau muni ekki lækka. ( Fjmrh.: Sagði ég?) Nei, fyrirgefið, sagði ég hæstv. fjmrh., nei, hæstv. núv. utanrrh. og fyrrv. fjmrh., hann hefur haldið þessu fram lengi og vel ( Gripið fram í: Það er ekkert að marka hann.) hann hefur lengi og vel sagt þetta, bæði þegar hann var fjmrh. og einnig nú þegar hann er orðinn utanrrh. Það hefur ekkert þurrkast úr minni hans. Hann er náttúrlega í sömu stjórn enn þá og hæstv. fjmrh. og þeir hafa nýlega komið sér saman um virðisaukaskattinn.
Þessi hæstv. utanrrh., í hvaða landi sem hann er nú staddur, hefur haldið því þrásinnis fram hér í ræðustól að matvæli muni ekki lækka þó að þau væru virðisaukaskattslaus. Nú ætlar hæstv. fjmrh. að leggja á þau sem svarar 14% virðisaukaskatt og segir að þau muni samt lækka. Hvernig fara þessar tvær staðhæfingar saman? Er hæstv. utanrrh. bara að bulla, skilur hann ekki málið, eða liggur þarna einhver leyndardómur að baki? Hvernig geta virðisaukaskattslaus matvæli ekki lækkað en þau sem hafa 14% þau lækka? Hver er galdurinn?