Virðisaukaskattur
Miðvikudaginn 06. desember 1989


     Halldór Blöndal (um þingsköp):
    Herra forseti. Það er hálfspaugilegt að sjá hvernig smalamenn ríkisstjórnarinnar hafa hlaupið til eftir að hv. 14. þm. Reykv. bað um nafnakall til að vekja athygli á því hversu fáir stjórnarsinnar væru mættir. Þeir hafa verið að týnast. Það er verið að leita að einum hv. þm., 5. þm. Reykv. sem er formaður fjh.- og viðskn., í bílasíma um allar trissur. Þeir eru ekki alveg klárir á því hvar bíllinn muni vera. Þetta minnir mig á það þegar hæstv. forseti Sþ., frú Guðrún Helgadóttir, týndist einu sinni og lögreglunni var gert aðvart og hún látin leita að þingmanninum um alla Reykjavíkurborg til að hann gæti greitt atkvæði hér í þinginu. Þetta rifjar upp góðar og gamlar endurminningar.
    Hitt þykir mér líka skemmtilegt að nú skuli komin játning frá fulltrúa Alþfl. í fjh.- og viðskn. hvernig á því standi að hann skuli ekki hafa tekið þátt í þessum umræðum. Hann hélt að við hin mundum tala lengur, og það er eflaust skýringin á því að hann mætti ekki fyrr hér í kvöld til að útskýra hvernig stóð á því að Alþfl. ruglaðist í síðustu viku og hefur nú greitt mjög fyrir því að hvers konar skattaálögur séu þyngdar á þjóðinni með hvers kyns hætti. Það á að hækka tekjuskattinn um 4% um áramótin, síðan á að hækka virðisaukaskatt um 2,5%. Það á að leggja sérstakan skatt á bifreiðar. Það á að skattleggja orkufyrirtækin í landinu. Er ekki einhver hugmyndanefnd á vegum forsrh. sem skrapp út til að hitta hann núna í síðustu utanferð? Er hún búsett í Englandi eða hvar er hún aftur búsett, hugmyndanefndin sem er að finna upp skatta fyrir ríkisstjórnina?
    Kannski ég veki athygli á því, herra forseti, að ef maður kemur til Hollands tekur maður eftir því að þar er óvenjulítið um gluggatjöld fyrir gluggum húsa. Ástæðan er sú að á 19. öldinni var ríkisstjórn sem var komin í sérstök vandræði með skattheimtuna og lagði sérstakan skatt á gluggatjöld í því landi sem veldur því að þau hafa síðan selst lítið og menn vilja losa sig við slíkan lúxus. Kannski við upplifum gluggatjaldaskattinn þegar umhverfisráðherrann kemur næst, það verði nýjasta uppfinningin.