Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Ég þakka nú ekki fyrir þessi síðustu orð hv. fyrirspyrjanda vegna þess að hér er ekki um neina samkeppnisstofnun að ræða og ég kannast ekki við annað en að núv. menntmrh. hafi gert það sem í hans valdi stendur til þess að tryggja að framkvæmd verði lagaákvæði sem Alþingi stendur frammi fyrir varðandi Háskólann á Akureyri. Það er síðan fjárveitingavaldsins að ganga frá því með hvaða hætti verður hægt að koma þeim hlutum fyrir.
Varðandi fsp. þá er hún á þessa leið: ,,Hvaða hlutverki er nýstofnaðri Sjávarútvegsstofnun Háskóla Íslands ætlað að þjóna?`` Hún heitir ekki sjávarútvegsbraut heldur sjávarútvegsstofnun.
Málið er þetta: 8. júní sl. staðfesti ráðuneytið reglugerð um Sjávarútvegsstofnun Háskóla Íslands í samræmi við tillögur háskólaráðs. Samkvæmt 1. gr. reglugerðarinnar er Sjávarútvegsstofnun Háskóla Íslands rannsóknastofnun á sviði sjávarútvegs og fiskeldis og lýtur yfirstjórn háskólaráðs. Í 2. gr. reglugerðarinnar eru markmið stofnunarinnar skilgreind á eftirfarandi hátt:
1. Að efla og samhæfa rannsóknir í sjávarútvegsfræðum við Háskóla Íslands.
2. Að stuðla að samstarfi við innlenda og erlenda rannsóknaraðila á sviði sjávarútvegsfræða.
3. Að gefa út og kynna niðurstöður rannsókna í sjávarútvegsfræðum.
4. Að veita upplýsingar og ráðgjöf í sjávarútvegsmálum.
5. Að styðja kennslu og þjálfun í sjávarútvegsfræðum, einkum til meistaraprófs.
6. Að gangast fyrir námskeiðum og fyrirlestrum í sjávarútvegsfræðum.
Rannsóknir sem fram hafa farið í sjávarútvegsfræðum við Háskóla Íslands, og þær hafa farið fram í mörg, mörg ár, hafa til þessa verið mjög víða innan Háskólans. Í raun og veru í flestum deildum Háskólans. Sjávarútvegsstofnunin mun samræma þessar rannsóknir hjá þeim deildum sem hér um ræðir en þær eru: Raunvísindadeild, verkfræðideild, viðskipta- og hagfræðideild og félagsvísindadeild.
Í bréfi sem ég undirritaði til Háskóla Íslands 9. júní var greint frá því að reglugerðin um deildina hefði verið staðfest. En 4. apríl dagsetti verkfræðideild Háskóla Íslands bréf til menntmrh. út af þessu máli þar sem óskað var eftir því að sjávarútvegsstofnun yrði sett á fót, þ.e. hún er fyrst og fremst samræmingar- og samstarfsaðili þeirra deilda sem eru þarna til, þeirrar starfsemi sem þarna er í gangi. 20. apríl skrifaði ég á þetta erindi þessi orð: ,,Fellst á tillögurnar enda greiði Háskóli Íslands þann kostnað sem á kann að falla.``
Með öðrum orðum, hér hefur ekki af hálfu menntmrn. verið gert ráð fyrir einni einustu krónu til viðbótar við aðrar fjárveitingar Háskólans í þessa stofnun.
Varðandi þær fjárlagatillögur sem legið hafa fyrir
frá ráðuneytinu m.a. nú og eru til meðferðar í fjvn. hefur menntmrn. ekki gert tillögur um eina krónu í þessa stofnun á árinu 1990. Þar á móti hefur menntmrn. hins vegar lagt á það áherslu að reynt verði að halda eins þétt utan um málefni sjávarútvegsbrautarinnar á Akureyri og frekast er kostur.
Ég tel að það sé hins vegar hárrétt hjá hv. þm. og fyrirspyrjanda að aðalatriðið sé að Sjávarútvegsstofnunin við Háskóla Íslands, og þær rannsóknir sem þar eru unnar, og sjávarútvegsbrautin við Háskólann á Akureyri vinni saman. Og það er rétt hjá hv. 5. þm. Norðurl. e. að háskólarektor hefur lagt á það mjög mikla áherslu og það hef ég einnig gert með ítrekuðum hætti, bæði á opinberum vettvangi og eins á ráðstefnum sem haldnar hafa verið um þróun háskólastigsins en nú er unnið að stefnumótun um háskólastigið í heild á vegum menntmrn. í samráði við allar háskólastofnanir.
Ég get reyndar sagt það að sú stefnumótun er vonum seinna á ferðinni. Ég held að betra hefði verið fyrir þjóðina og fjárveitingavaldið og þingið og háskólasamfélagið á Íslandi að menn hefðu komið sér að því fyrr að móta heildarstefnu í málefnum háskólastigsins hér á landi.
Ályktanir Alþingis í þessum efnum hafa t.d. verið fjarska misvísandi, að ekki sé meira sagt, og það er útilokað að sjá að Alþingi hafi einhvern einn vilja í þessum efnum. Þar virðist margt stangast á. En varðandi sjávarútvegsnám við Háskóla Íslands þá hefur Alþingi aftur og aftur gert samþykktir um að fela ríkisstjórninni að undirbúa sjávarútvegsnám við Háskóla Íslands. Fyrst árið 1981, 1982 skipaði Ingvar Gíslason sérstaka nefnd til að undirbúa sjávarútvegsnám við Háskóla Íslands. Árið 1983 skilaði sú nefnd áliti. Árið 1984 bað Háskólinn um fjárveitingu til að geta hafist handa um kennslu í sjávarútvegsfræðum. Árið 1985 bað Háskólinn enn um fjárveitingu í þessu skyni. Árið 1987 var 15 manna hópur starfsmanna Háskólans að störfum til að undirbúa háskólarannsóknir í sjávarútvegi og fiskvinnslu og þannig mætti lengi telja. Það er því ekki svo að Háskóli Íslands hafi, vegna þess að Háskólinn á Akureyri var settur á stofn, allt í einu fundið það út að hann þyrfti núna á árinu 1989 að fara að sinna sérstaklega sjávarútvegsrannsóknum. Málin hafa tekið þessa stefnu. Alþingi hefur ákveðið með lögum að stofna Háskólann á Akureyri. Við höfum lagt á það áherslu í samræmi við vilja Alþingis á síðasta þingi að sjávarútvegsbrautin verði burðarásinn í Háskólanum á Akureyri. Þannig vil ég framkvæma málið.