Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson):
Virðulegi forseti. Ég fagna því að fá þetta tækifæri til að gera grein fyrir störfum vinnuhóps utanríkisráðuneyta Norðurlanda um kjarnorkuvopnalaust svæði á norðurslóðum, en í mars á næsta ári verða liðin þrjú ár frá því þessi hópur var settur á laggirnar.
Svo ég komi strax að kjarna málsins tel ég að vinnu þessa hóps hafi miðað með fullnægjandi hætti. Þrátt fyrir það er enn ekki tímabært að segja fyrir um hvenær endanlegar niðurstöður kunni að liggja fyrir. Áður en ég skýri þessi orð mín nokkru nánar er rétt að ég rifji upp í stuttu máli hvernig hópurinn hagar störfum sínum.
Í hópnum sjálfum eiga sæti forstöðumenn stjórnmáladeilda utanríkisráðuneyta Norðurlandanna. Skömmu eftir að þessi hópur var settur á fót varð þó um það samkomulag að yfirmenn þeirra deilda í utanríkisráðuneytunum sem fjalla um afvopnunarmál skyldu kallaðir til starfa fyrir hann. Deildarstjórar afvopnunarmála hafa komið reglulega saman til undirbúnings fundum forstöðumanna stjórnmáladeildanna sem eru haldnir að meðaltali tvisvar milli funda norrænu utanríkisráðherranna. Sú venja hefur myndast að forstöðumennirnir geri ráðherrunum grein fyrir störfum vinnuhópsins á reglulegum fundum þeirra. Utanríkisráðherrar Norðurlanda hlýddu síðast á greinargerð starfshópsins á fundi sínum á Ísafirði 15.--16. ágúst sl. Vitna má í þessu sambandi í yfirlýsingu Ísafjarðarfundarins þar sem fjallað er um störf vinnuhópsins frá næsta ráðherrafundi á undan. Með leyfi hæstv. forseta ætla ég að vitna í þessa skýrslu.
,,Á þessu tímabili hefur vinnuhópurinn unnið stöðugt að ýmsum undirstöðuatriðum um hugsanlegt fyrirkomulag á slíku [þ.e. kjarnorkuvopnalausu svæði]. Nú hafa menn því sem næst lokið við þann kafla sem fjallar um hliðarráðstafanir og skyldur þeirra ríkja sem hlut eiga að máli. Enn fremur hefur verið haldið áfram að vinna að þeim kafla þar sem fjallað er um skipulag svæðisins í tengslum við önnur Evrópuríki. Auk þess hefur verið hafin vinna við kafla um stöðu Eystrasalts.``
Við þetta er síðan því að bæta að deildarstjórar afvopnunarmála hafa komið saman tvisvar það sem af er vetri. Kafladrög sem þegar liggja fyrir hafa verið endurskoðuð og grunnur lagður að nýjum köflum skv. þeim efnisramma sem unnið hefur verið eftir. Það var ráðgert að forstöðumennirnir hittust síðan 28. nóv. og veit ég ekki betur en þeir hafi gert það. Óhætt er því að fullyrða að vinnunni hafi miðað í jöfnum takti áfram. Ég tel hins vegar eins og ég sagði í byrjun ógerlegt að slá því á þessu stigi föstu hvenær vænta megi endanlegrar niðurstöðu af starfi hópsins. Ástæður fyrir þessu eru einkum tvær.
Í fyrsta lagi er atburðarásin í alþjóðamálum nú með þeim hætti eins og hv. fyrirspyrjandi minntist á að erfitt er að einangra einstök viðfangsefni í öryggismálum og leiða þau til lykta án tillits til
pólitískra aðstæðna í víðara evrópsku, og reyndar alþjóðlegu, samhengi. Verkefni vinnuhópsins er að kanna forsendur fyrir kjarnorkuvopnalausu svæði á norðurslóðum. Með því að samskipti austurs og vesturs hafa afgerandi áhrif á forsendur kjarnorkuvopnalauss svæðis er augljóslega varhugavert að reyna að draga saman niðurstöður af starfi hópsins fyrr en séð er fyrir endann á þeim miklu breytingum sem nú eru í gerjun. Á þessari stundu skal hins vegar ósagt látið hvort hinar öru breytingar í alþjóðastjórnmálum sem heimurinn verður vitni að þessa dagana muni hafa áhrif til þess að flýta eða tefja störf vinnuhópsins um kjarnorkuvopnalaust svæði.
Í öðru lagi er skylt að taka tillit til þess að í erindisbréfi hópsins er kveðið á um að hann skuli í störfum sínum m.a. taka mið af skuldbindingum Norðurlandanna þriggja í Atlantshafsbandalaginu annars vegar og hinna tveggja sem hlutlaus eru hins vegar. Af þessu leiðir að þræða þarf mjóan stíg milli ólíkra sjónarmiða í öryggis- og varnarmálum sem útheimtir hvort tveggja, tíma og þolinmæði. Þrátt fyrir að vel hafi miðað í störfum hópsins til þessa vil ég þó alls ekki gera lítið úr þeim úrlausnarefnum sem enn eru óleyst. Þegar á heildina er litið treysti ég mér því ekki til að nefna ákveðin tímamörk fyrir verkalok hjá hópnum.
Ég vil að lokum, virðulegi forseti, bæta því við að utanrrh. hefur lagt á það áherslu að embættismenn utanrrn. sem sæti eiga í vinnuhópnum taki mið af ákvæðum ályktunar Alþingis um vígbúnaðar- og afvopnunarmál frá í maí 1985, en í erindisbréfi vinnuhópsins kemur skýrt fram að störfum hans skuli hagað í samræmi við viðeigandi ályktanir þjóðþinga Norðurlandanna í þessu efni. Á þennan hátt hefur utanrrh. gert sér far um að tryggja að Alþingi geti síðar sameinast um endanlegar niðurstöður starfshópsins.