Danfríður Skarphéðinsdóttir:
Virðulegi forseti. Aðeins örstutt athugasemd. Ég þakka hv. fyrirspyrjanda fyrir að bera þetta brýna mál hér inn og vil í framhaldi af orðum hans, þar sem hann gat um að fylgi við þessa hugmynd væri mikið, benda á að á fundum Vestnorræna þingmannaráðsins undanfarin tvö ár hefur einmitt verið ályktað um kjarnorkuvopnalaus svæði á Norðurlöndum og afvopnun á höfunum. Mig langar, með leyfi forseta, að lesa hér eina setningu úr þskj. sem liggur núna fyrir þinginu og er til umfjöllunar í utanrmn., en þar segir:
,,Ráðið skorar því á landsstjórnir Færeyja og Grænlands og ríkisstjórn Íslands að þær geri allt sem í þeirra valdi stendur til að beita stórveldin þrýstingi í því skyni að flýta afvopnun á Norður-Atlantshafi.``
Ég vildi aðeins gera þessa athugasemd og undirstrika að þetta mál er mjög þýðingarmikið. Vil ég um leið benda á að í Vestnorræna þingmannaráðinu eiga sæti fulltrúar allra stjórnmálaflokka á Alþingi þannig að víðtæk samstaða virðist um málið hér í Alþingi.