Opinbert eftirlit með lífeyrissjóðum
Fimmtudaginn 07. desember 1989


     Fyrirspyrjandi (Alexander Stefánsson):
    Virðulegi forseti. Á þskj. 130 hef ég borið fram fsp. til hæstv. fjmrh. um opinbert eftirlit með lífeyrissjóðum. Ég vil segja það í upphafi að eins og kunnugt er er engin heildarlöggjöf í gildi hér á landi um lífeyrissjóði. Fjmrh. þarf aðeins að gefa lífeyrissjóði starfsleyfið.
    Lífeyrissjóðir í landinu munu vera 85--90 talsins. Eignir lífeyrissjóða í árslok 1988 eru taldar nema um 75 milljörðum. Þetta eru þó bráðabirgðatölur frá Seðlabanka þar sem ekki hafa enn borist upplýsingar frá allmörgum lífeyrissjóðum. Á sama tíma voru eignir bankakerfisins um 133 milljarðar.
    Útlán lífeyrissjóða eru áætluð í árslok 1988 um 67 milljarðar kr. Eins og sjá má af þessum tölum eru lífeyrissjóðirnir með verulegan hluta af fjármagni á innlendum lánamarkaði sem fer árvaxandi. Því hljóta að vakna spurningar hvers vegna opinbert eftirlit með þessum þýðingarmiklu sjóðum virðist vera af skornum skammti. Lífeyrissjóðirnir starfa að mestu eftirlitslaust. Skipulag þeirra er ekki samræmt og réttindi einstaklinga með aðild að sjóðunum í mörgum tilfellum óljós. Upplýsingar um ýmsa rekstrarþætti sjóðanna virðast vera óljósar og liggja seint fyrir, sbr. upplýsingar Seðlabanka Íslands.
    Í fjárlögum og lánsfjárlögum eru upplýsingar um ráðstöfunarfé sjóðanna byggðar á áætlunum sem hafa nú síðari árin í fæstum tilfellum staðist. Árið 1989 er ráðstöfunarféð talið nær 20 milljarðar en var áætlað 16 milljarðar. 1990 er áætlunin 24--25 milljarðar. Þessar áætlanir byggja ekki á reikningsskilum allra sjóðanna. Óánægja með skort á reikningsskilum og upplýsingum lífeyrissjóðanna fer vaxandi, ekki síst hjá sjóðfélögum sem gengur erfiðlega að fá stöðu sína í sjóðunum upplýsta. Það hlýtur því að vera eðlileg krafa að opinbert eftirlit þurfi að koma til með þessum fyrirferðarmiklu og þýðingarmiklu peningastofnunum sem lífeyrissjóðir í landinu eru sem stunda útlánastarfsemi í stórum stíl og hafa þannig víðtæk áhrif á efnahagskerfið og ekki síst á hlutverk þeirra að tryggja sjóðfélögum lífeyri. Þess vegna legg ég þessa fyrirspurn fram til hæstv. fjmrh.:
,,1. Hvernig er háttað opinberu eftirliti með starfsemi og fjárreiðum lífeyrissjóða?
    2. Telur fjármálaráðherra að núverandi eftirlit, þar með taldar fjárreiður sjóðanna, sé fullnægjandi?
    3. Er þörf á lagabreytingu hvað þetta varðar?``
    Ég vænti þess að fá svar við þessari fyrirspurn.