Samræmt lífeyriskerfi
Fimmtudaginn 07. desember 1989


     Eiður Guðnason:
    Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. fjmrh. svörin og vona að það verði sem fyrst sem þetta frv. um samræmt lífeyriskerfi verði lagt fram hér á Alþingi því það er rétt sem hann segir að hér er um mjög mikilvægt mál að ræða. Hér er um mál að ræða sem varðar bókstaflega alla landsmenn. Einnig er ljóst að hér er um mjög vandmeðfarið mál að ræða sem ýmsar skoðanir eru uppi á en það er mikilvægt að hæstv. ráðherra skuli hafa lýst því yfir að þetta frv. verði nú lagt fram, og ég segi því fyrr því betra, þannig að góður tími gefist til umræðu og athugunar málsins, bæði hér á hinu háa Alþingi og eins í þjóðfélaginu almennt. Það er líka fagnaðarefni að ráðherra skuli lýsa því yfir að hann muni beita sér fyrir sérstakri umfjöllun um málið á öðrum vettvangi en hér á Alþingi vegna þess að það skiptir líka miklu máli í þessu sambandi.