Lækkun eignarskatta
Fimmtudaginn 07. desember 1989


     Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson):
    Virðulegi forseti. Hér er borin fram svohljóðandi fsp.:
    ,,Hyggst fjmrh. beita sér fyrir einhverri lækkun eignarskatta sem komi til framkvæmda á árinu 1990?``
    Svarið við þessari spurningu er mjög einfalt. Það er já.
    Í gær var lagt á borð þingmanna frv. um tekju- og eignarskatt þar sem kemur fram að ríkisstjórnin leggur til við Alþingi að tvíþættar breytingar verði gerðar á eignarsköttum til lækkunar. Annars vegar lækki hærra þrepið í eignarskatti um helming, úr 1,5% í 0,75%. Í þessu felst að skattur á skuldlausa eign hjá einstaklingi yfir 8 millj. kr. lækkar úr 2,7% í 1,95%.
    Í öðru lagi er ákveðið að taka upp tekjuviðmiðun hvað þetta hærra þrep snertir. Þessi tekjuviðmiðun felur það í sér að einstaklingar sem eiga þessa skuldlausu eign en hafa undir 70.000 kr. í mánaðartekjur af launatekjum og sambærilegum tekjum --- ekki fjármagnstekjum, ég tek það skýrt fram --- greiða ekki þennan eignarskatt og hann er greiddur í ákveðnu hlutfalli stig af stigi á bilinu 70.000 kr. mánaðartekjur upp í 140.000 kr. mánaðartekjur hjá einstaklingi og 280.000 kr. hjá hjónum en kemur ekki til greiðslu að fullu fyrr en hjá hjónum sem hafa yfir 280.000 kr. í mánaðartekjur og hjá einstaklingum sem hafa yfir 140.000 kr. í mánaðartekjur. Með þessari breytingu lækka eignarskattar að raungildi um 20% miðað við gildandi lög og kemur breytingin sérstaklega til góða einstaklingum sem eru með lágar tekjur eða eru undir þeim tekjumörkum sem hér er lýst. Hjá þeim getur lækkunin numið 35% að raungildi.
    Það er hins vegar ljóst samkvæmt opinberum upplýsingum að það er nokkur fjöldi fólks í okkar þjóðfélagi sem á gífurlega miklar eignir og hefur jafnframt mjög miklar tekjur, sem nemur mörg hundruð þúsund krónum á mánuði af venjulegum launatekjum. Vek ég þá athygli á því að fólk getur til viðbótar haft allverulegar tekjur af fjármagnseign án þess að þær komi nú til skatts. Mér finnst, og það er stefna ríkisstjórnarinnar, að það sé eðlilegt sjónarmið á erfiðleikatímum að slíkt hátekju- og stóreignafólk greiði ákveðið framlag til hins sameiginlega sjóðs landsmanna.
    Svarið við spurningunni er þess vegna skýrt og við höfum tækifæri til þess að ræða breytinguna nánar þegar ég mæli fyrir frv. til laga um breytingar á tekju- og eignarskatti.