Fyrirspyrjandi (Ingi Björn Albertsson):
    Hæstv. forseti. Á þskj. 193 leyfi ég mér að flytja svohljóðandi fsp. til hæstv. fjmrh.:
    ,,Með hvaða hætti verður ofgreiddur söluskattur af tryggingaiðgjöldum endurgreiddur, skv. yfirlýsingu fjármálaráðherra á þingi 13. nóv. síðastliðinn? Fá tryggingatakar endurgreiðsluna með vöxtum og verðbótum, eða verður fylgt endurgreiðslureglum 121. gr. tekjuskattslaga?``
    Þannig hljóðar fsp. og þarf í rauninni ekki að hafa fleiri orð um hana. Hún er einföld. Hins vegar tel ég það rétt að greiðendur þessara iðgjalda fái það hreint út hvernig að þessu verður staðið og hvort þeir fái andvirði sinnar greiðslu fyllilega endurgreitt.