Fyrirspyrjandi (Ingi Björn Albertsson):
    Hæstv. forseti. Aðeins örstutt. Það er rétt hjá hæstv. ráðherra að söluskattur var innheimtur umfram þörf og skilað inn í ríkissjóð. Það losar engu að síður ríkisvaldið ekkert undan því að endurgreiða ofgreiddan söluskatt. Ef um ofgreiddan söluskatt er að ræða þá á viðkomandi aðili sem hann greiðir rétt á að fá hann endurgreiddan til baka. Og ef hann liggur inni í ríkissjóði á þeim vöxtum sem hann getur ávaxtað það fé, þá ber honum að skila því öllu til baka með vöxtum og verðbótum. Það hlýtur að vera réttmæt krafa. Mismuninn ætlar hæstv. fjmrh., eins og ég sagði áðan, að setja í eigin vasa.