Guðmundur H. Garðarsson:
Virðulegi forseti. Ég vil endurtaka þá kröfu hv. þm. Inga Björns Albertssonar að fjmrh. svari því hvort hann ætli ekki að endurgreiða fólki réttmætar eigur þess sem eru núna í vörslu ríkisins. Hér er um mjög alvarlega spurningu að ræða, sérstaklega í ljósi þess sem stjórnarstuðningsmaður, hv. þm. Jóhann Einvarðsson, upplýsti hér áðan þar sem hann sagði að hæstv. fjmrh. virti menn, þ.e. fólkið í landinu, ekki svars. Þetta eru alvarlegar ásakanir, sérstaklega þar sem hér er um stjórnarstuðningsmann að ræða, einn vandaðasta þingmann í því liði. Ég óska eftir því að hæstv. ráðherra svari því hvort hann ætli ekki að virða þá aðila svars sem hafa ritað bréf til hans með þeirri kröfu sem hér er til umræðu.