Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson):
Virðulegi forseti. Ég veit nú ekki hvort hv. þm. Guðmundur H. Garðarsson var hér í salnum þegar ég svaraði fsp. í upphafi. Það liggur alveg ljóst fyrir, eins og ég gerði reyndar grein fyrir hér á Alþingi fyrir nokkrum vikum síðan, að fjmrn. hefur ákveðið að beita sér fyrir því að þessar endurgreiðslur verði framkvæmdar og ákveðnu kerfi verði komið á það mál. Og tryggingafélögin sem beindu þessum fyrirspurnum til yfirvalda hafa fengið alveg skýr svör í þeim efnum. Ég hef hins vegar lýst þeirri skoðun minni að ég varð dálítið undrandi á því að tryggingafélögin skyldu ekki gera sér grein fyrir því að gildandi lög eru gildandi lög og samkvæmt gildandi lögum á ekki að innheimta söluskatt fyrir tímabilið eftir 1. jan.