Málsókn á hendur Magnúsi Thoroddsen
Fimmtudaginn 07. desember 1989


     Dómsmálaráðherra (Óli Þ. Guðbjartsson):
    Hæstv. forseti. Fsp. þessi á þskj. 205 er í tveimur liðum eins og fyrirspyrjandi tók fram og hljóðar sá fyrri þannig, með leyfi hæstv. forseta:
    ,,Hvað veldur því að mál Magnúsar Thoroddsens hefur ekki verið rannsakað að hætti opinberra mála eins og boðið er í 8. gr. laga nr. 38/1954, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, og full tilefni virðast hafa verið til ef marka má kvartanir lögmanns Magnúsar, Jóns Steinars Gunnlaugssonar hrl.?``
    Hin tilvitnaða lagagrein hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:
    ,,Nú hefur starfsmanni ríkisins verið veitt lausn um stundarsakir fyrir meintar misfellur í starfi, og skal þá þegar mál hans rannsakað af kunnáttumönnum eða fyrir dómi að hætti opinberra mála, ef ástæða þykir til, svo að upplýst verði, hvort rétt er að veita honum lausn að fullu eða láta hann aftur taka við starfi sínu.
    Úrslit um stöðuna skulu ráðin strax og lokaniðurstöður rannsóknar eru kunnar.``
    Í máli því er dómsmrh. fyrir hönd ríkisvaldsins höfðaði gegn Magnúsi Thoroddsen var kveðinn upp dómur í bæjarþingi Reykjavíkur þann 26. júní sl. Í niðurstöðu dómsins í aðalsök segir m.a. svo, með leyfi forseta:
    ,,Samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/1954 skal mál ríkisstarfsmanns, sem hefur verið veitt lausn um stundarsakir fyrir meintar misfellur í starfi, rannsakað af kunnáttumönnum eða fyrir dómi að hætti opinberra mála, ef ástæða þykir til.
    Samkvæmt 12. tölul. 2. gr. laga nr. 74/1974, um meðferð opinberra mála, fer fram eftir þeim lögum rannsókn eftir sérstöku boði dómsmrh.
    Ekki verður sagt að tilefni þess að stefnda var veitt lausn um stundarsakir séu misfellur í starfi. Þegar mál þetta var höfðað voru öll atvik varðandi háttsemi stefnda, þá er mál þetta snýst um, fullljós og enginn ágreiningur um staðreyndir að því leyti. Önnur atvik málsins hafa að mati dómsins verið nægilega upplýst undir rekstri þess og verður ekki talið að skortur rannsóknar standi því í vegi að lagður verði efnisdómur á málið.``
    Og enn fremur segir í þessum undirréttardómi, með leyfi forseta:
    ,,Samkvæmt 8. gr. starfsmannalaganna, sbr. 7. gr. og 28. gr. sömu laga, virðist rétt að veita ríkisstarfsmanni lausn að fullu ef framkoma hans eða athafnir í starfi eða utan þess þykja ósæmilegar, óhæfilegar eða ósamrýmanlegar starfinu. Þessi regla gildir samkvæmt framansögðu um hæstaréttardómara að svo miklu leyti sem aðrar réttarheimildir mæla ekki á annan veg.``
    Í hinum tilvitnuðu orðum úr dómi undirréttar felst í raun það eina svar við þessari fsp. sem hægt er að gefa á þessu stigi. En ég vil þó taka skýrt fram að með þessari tilvitnun er ég ekki að taka efnislega afstöðu til þessa þáttar málsins.
    Seinni liður fsp. hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:

    ,,Hvað veldur því að aðeins er höfðað mál á hendur Magnúsi Thoroddsen vegna áfengiskaupa hans sem einum af handhöfum forsetavalds vegna fjarveru forseta en ekkert gert í áfengiskaupum annarra sem virðast þó sambærileg að verulegu leyti?``
    Ég vil minna á að hv. fyrirspyrjandi lagði fram fsp. á Alþingi í jan. sl. um áfengiskaup handhafa forsetavalds sem beint var til dómsmrh. Forveri minn í dómsmálaráðherraembætti svaraði fsp. þessari skriflega þann 16. febr. sl. Einn liður fsp. var svohljóðandi, með leyfi hæstv. forseta:
    ,,Nú hefur dómsmrh. veitt einum hæstaréttardómara lausn til bráðabirgða úr starfi vegna áfengiskaupa. Upplýst hefur verið að fleiri hafa notað þennan meinta rétt til áfengiskaupa í verulegum mæli. Hvað verður gert í málum þeirra?``
    Svarið var svohljóðandi, með leyfi hæstv. forseta:
    ,,Forseti Íslands hefur samkvæmt tillögu dómsmrh. veitt Magnúsi Thoroddsen lausn um stundarsakir frá embætti hæstaréttardómara. Jafnframt hefur dómsmrh. falið ríkislögmanni að höfða mál á hendur Magnúsi Thoroddsen til embættismissis skv. 61. gr. stjórnarskrárinnar. Ekki eru uppi ráðagerðir um aðrar aðgerðir.``
    Við þetta svar hef ég í sjálfu sér litlu að bæta. Málið er í raun óbreytt frá þeim tíma. Ég vil þó taka fram að fsp. Stefáns Valgeirssonar nú er víðtækari þar sem spurt er almennt um handhafa forsetavalds. Ég vil í því sambandi taka fram að ég er ekki réttur aðili til að svara fyrir um aðgerðir gagnvart öðrum handhöfum forsetavalds en forseta Hæstaréttar.
    En ég vil enn fremur taka fram að ég greiddi atkvæði með því að fsp. þessi yrði leyfð og fengi hér þinglega meðferð. Það gerði ég vegna þess að ég tel þann rétt þingmanna það mikilsverðan að fram hjá honum verði varla gengið. Hins vegar er ljóst að það er erfitt og tæpast rétt að ræða mjög ítarlega um þessi mál á Alþingi meðan beðið er dóms Hæstaréttar í máli ríkisvaldsins gegn þeim sem hér á hlut að máli.