Tryggingasjóður fiskeldis
Fimmtudaginn 07. desember 1989


     Fyrirspyrjandi (Halldór Blöndal):
    Hæstv. forseti. Ég vil þakka hæstv. landbrh. hans svör. Það var að vísu ekki fullt samkomulag um hvernig frá reglum Tryggingasjóðs yrði gengið. Skal ég ekki fara neitt út í þá sálma en það sem okkur og þeim ber á milli í því efni er smávægilegt. Aðalatriðið er hitt að gera ráðstafanir til að fiskeldi komist yfir þá byrjunarörðugleika sem það á við að stríða nú. Auðvitað er fiskeldi hér á landi enn sem komið er meira og minna tilraunastarfsemi og ég tel nauðsynlegt að við reynum að standa á bak við þessa nýju útflutningsgrein með það í huga. Ég held líka að það hljóti að koma verulega til athugunar, þegar þessi mál eru stokkuð upp nú, hvort rétt sé að hafa sama háttinn á og ég skýrði frá að væri í Noregi, að fiskeldisfyrirtækjum yrði gefinn kostur á því, í stað rekstrarlána, að fá lán til nokkurs tíma. Sú leið yrði athuguð og er ég þá vitaskuld ekki að tala um neitt gjafafé í því sambandi. Það sem ég er að tala um er að hið opinbera reyni að standa þannig að þessum rekstri að einstaklingarnir geti með góðri samvisku lagt sitt áhættufé í reksturinn þannig að hann geti haldið áfram.
    Það er auðvitað rétt að bankarnir eru búnir að herða reglurnar vegna þess að áhættan við þennan rekstur er meiri en menn héldu. Sumir eru mjög bölsýnir um framtíð þessa rekstrar hér á landi. Þess vegna held ég að betra sé að gefa sér kannski 2--3 dögum lengri tíma til að ná niðurstöðunni en að hlaupa að einhverju sem er ófullnægjandi til að þessi atvinnugrein geti náð þroska og blómstrað svo hún verði enn ein stoðin undir okkar útflutningsframleiðslu.
    Ég held ég fari rétt með að mörg undanfarin ár hefur framboð á eldisfiski á mörkuðum Evrópu, ferskfiskmörkuðum Evrópu, tvöfaldast, þannig að við erum að tala hér um atvinnugrein sem er í miklum vexti hvarvetna í kringum okkur.