Stefán Valgeirsson:
Virðulegi forseti. Það er alveg rétt sem kom fram hér hjá hæstv. ráðherra að þetta hefur ekki náð fram eins og stefnt var að. Það er af þrennum ástæðum. Í fyrsta lagi eru sum þessara fyrirtækja með það miklar skuldir að bankarnir vilja ekki lána þeim afurðalán nema hafa fullar tryggingar þar á bak við. Í öðru lagi hefur reynst mjög torsótt að fá nægar upplýsingar hjá hinum ýmsu aðilum og það hefur tafið fyrir. En sú tala sem hæstv. ráðherra minntist á hér áðan er raunar mikið hærri, það vantar t.d. aðeins vátryggingaskírteini og um leið og það kemur verður ábyrgðin gefin út. Og það munar verulegum upphæðum, þó ég hafi það ekki í kollinum hér og nú. --- Bara eina setningu, virðulegi forseti, í viðbót. Ef það er rétt sem ég hef heyrt um þetta frv. sem liggur fyrir vil ég segja þetta við ráðherrann: Það leysir ekki þessi mál nema fyrir örfáa.