Landbúnaðarráðherra (Steingrímur J. Sigfússon):
Hæstv. forseti. Spurt er í fyrra lagi: ,,Er lagaheimild til niðurskurðar á fjárbústofni bónda ótvíræð þegar einstaka bæir á sama stað sleppa við niðurskurð?``
Fyrirspyrjandi á væntanlega við þau tilvik þegar niðurskurður er fyrirskipaður af landbrh. Í 42. gr. laga nr. 23 frá 10. mars 1956, um varnir gegn útbreiðslu næmra sauðfjársjúkdóma og útrýmingu þeirra, sbr. breytingu á þeim lögum, nr. 12 frá 1967, er gert ráð fyrir að landbrh. geti fyrirskipað niðurskurð sauðfjár telji sauðfjársjúkdómanefnd nauðsynlegt að útrýma sauðfjársjúkdómi með niðurskurði á sýktu eða grunuðu svæði. Ákvæðið gerir ráð fyrir að ákvörðun ráðherra að þessu leyti byggi á rökstuddri tillögu sauðfjársjúkdómanefndar. Í baráttunni við útrýmingu á riðuveiki hefur verið farin sú leið og unnið hefur verið samkvæmt þeirri vinnureglu mörg undanfarin ár að skera niður allt sauðfé á staðfestum riðubæjum á ákveðnum svæðum landsins. Slík svæði eru að sjálfsögðu sýkt eða grunuð um að þar sé sjúkdómur í merkingu nefndrar 42. gr. laganna.
Í öðru lagi spyr hv. fyrirspyrjandi um einstakt tilvik, þ.e. á bænum Sauðanesi við Siglufjörð og fsp. er svohljóðandi:
,,Nú er Sauðanes við Siglufjörð afskekktur bær, sem blandar vart bústofni við aðra bæi, þótt Fljótin séu næsta sveit. Er ástæða til að skera bústofn á slíkum bæ þegar riða hefur ekki fundist þar í meira en hálfan áratug?``
Ég vil taka það fram, virðulegur forseti, að ég ræði mjög ógjarnan einstök tilvik af þessu tagi og hefði kosið að þurfa ekki að gera það en úr því að hv. fyrirspyrjandi hefur tekið málið upp með þessum hætti sé ég mig að sjálfsögðu knúinn til að svara því, og svara því svohljóðandi:
Á árinu 1988 var skorið niður allt sauðfé í Siglufirði með samningum við fjáreigendur að undanskildu sauðfé hjá tveimur aðilum sem ekki náðist samkomulag við um niðurskurðinn. Því kom til þess að beitt yrði heimild nefndrar 42. gr. laganna um fyrirskipun um niðurskurð vegna riðuveiki. Það liggja fyrir frá fundum sauðfjársjúkdómanefndar tillögur frá árunum 1986, 1987 og 1988 um niðurskurð á þeim bæjum öllum þar sem riðuveiki hefur verið staðfest á árinu 1983 eða síðar. Þessi vinnuregla hefur verið fest í sessi og unnið hefur verið á grundvelli hennar undanfarin ár. Ég hef ekki talið forsendu til þess né það vera skynsamlegt að hverfa nú frá þessari reglu sem mótuð var af sauðfjársjúkdómanefnd í upphafi þessara aðgerða eða snemma í þessum aðgerðum og fylgt hefur verið eftir af forvera mínum í landbrn. Nú á síðasta ári aðgerðanna teldi ég óskynsamlegt, hvað sem um þessa reglu má annars segja, að hverfa frá henni og breyta þannig vinnureglu, grundvallarvinnureglu aðgerðanna á lokastigi. Þá kæmu auðvitað upp ýmsar spurningar um mismunun gagnvart þeim aðilum sem þegar hafa orðið að sæta
niðurskurði vegna þessara vinnureglna og væntanlega væri það erfið ákvörðun að taka að veita undanþágur frá þessari reglu, væri nokkur minnsta hætta á að með því væri tekin áhætta gagnvart árangri aðgerðanna sjálfra.
Það er líka rétt að nefna að í þessar aðgerðir hafa runnið hundruð milljóna króna, þannig að hér er ekki um neitt smámál á ferðinni.
Svona snýr þetta að þessu tiltekna tilfelli sem hv. fyrirspyrjandi nefnir, bænum Sauðanesi við Siglufjörð. Þar var riðuveikin staðfest árið 1983. Unnið hefur verið samkvæmt þeirri reglu að haustið 1989 yrði síðasta niðurskurðarhaustið og þetta síðasta stóra árið í þessum framkvæmdum og síðan yrðu eingöngu teknar þær hjarðir hjá einstökum bændum þar sem veikin kynni að koma upp og verða staðfest á næstu árum ef til slíks kemur.
Ég vona að þetta skýri hvers vegna bærinn Sauðanes við Siglufjörð er, ásamt þó nokkuð mörgum öðrum sem svipað háttar til um, með í þessum aðgerðum af þeim ástæðum sem ég hef sem sagt gert grein fyrir. Hér eru að sjálfsögðu erfið og óskemmtileg mál á ferðinni sem engum þykir gaman að þurfa að standa að. En hér er mikið í húfi, það þekkja þeir sem búið hafa við þessa veiki eða séð hvaða afleiðingar hún hefur á búfé og ég held að ljóst sé að það er svo mikilvægt atriði að takist að stemma stigu við veikinni og helst útrýma henni í kjölfar þessara aðgerða að ekki er réttlætanlegt, hversu mjög sem menn mundi langa til þess, jafnvel hugsanlega landbrh. einnig, að geta gert undantekningar í einstökum tilvikum. Að fara út á þá braut væri, held ég, mjög erfitt að réttlæta eftir það sem á undan er gengið og í ljósi þess hversu mikið hagsmunamál allra sauðfjárbænda í landinu er hér á ferðinni.