Ingi Björn Albertsson:
Hæstv. forseti. Ég skal nú ekki lengja þessa umræðu mjög, enda sagði ég mitt álit á þessari tillögugerð á síðasta þingi og kom þar mjög berlega í ljós að ég er mjög ósammála þessari hugmynd. Ég tel að hér sé verið að fara fram á nánast óútfylltan víxil. Þó að sagt sé að samkvæmt þeim tölum sem reiknaðar voru út fyrir sex mánuðum ætti þetta að kosta um 200 millj. er það nokkuð ljóst, eins og allir vita með reynslu af slíkum útreikningum, að nær væri sennilega að tala um tvöfalt meira eða 400 millj.
Tillagan gerir ráð fyrir að ganga til samninga um kaup á Hótel Borg, en í sjálfum tillögutextanum er síðan sagt: ,,eða öðru húsnæði í nágrenni við Alþingishúsið``. Þetta þykir mér reyndar æði loðið og reyndar má segja að alveg eins megi túlka þetta sem fleiri en eitt húsnæði ef menn kjósa að líta þannig á það.
Þar sem segir hins vegar í grg. að eftir viðræður forseta Alþingis við borgarstjóra nýlega sé ljóst að borgaryfirvöld hafi hvorki í hyggju að kaupa Hótel Borg né stuðla fjárhagslega að rekstri þess sem hótels er manni nú spurn: Hvað í ósköpunum kemur það yfir höfuð Alþingi við hvað borgarstjórnin í Reykjavík ætlar sér að gera? Er það hlutverk Alþingis að hlaupa upp til handa og fóta ef eitthvert fyrirtæki er hér að fara á hausinn í bænum, að grípa þar inn í og kaupa það húsnæði? Mér þykir þessi röksemd í grg. alveg fyrir neðan allar hellur og alls ekki eiga við.
Hins vegar finnst mér það skjóta verulega skökku við að á sama tíma og verið er að skattpína hér allan almenning og þrengja allverulega að fyrirtækjum í landinu ætli sjálft Alþingi að koma fram fyrir skjöldu með útgjöld upp á fleiri hundruð millj. kr. sem hlýtur náttúrlega einhvers staðar að verða að taka. Það hlýtur að verða að spyrja 1. flm. að því hvernig forsetar Alþingis hugsi sér að fjármagna þessi kaup. Ég spyr: Á að setja kannski nýja
skattlagningu á, svipaða og þjóðarbókhlöðuskattinn? Á að setja borgarskattinn hér á? Mér finnst þetta algjörlega fyrir neðan allar hellur. Það væri þá nær, ef Alþingi er reiðubúið að eyða hér fleiri hundruð millj., að eyða þeim í að laga stöðu heimilanna og fyrirtækjanna í landinu. Ég skal taka undir það að eyða 400 millj. kr. í að lækka matarskattinn. Er Alþingi til í það? Svari hver sem getur.
Varðandi hins vegar þetta húsnæði sjálft tel ég persónulega að það sé mjög óhentugt undir þessa starfsemi. Það segir sig sjálft, eftir því hvernig það er byggt og hvernig herbergjaskipan þar er, og ég tel reyndar að sé einhver alvara að baki þessu máli ætti að fara bara með þingflokkana út og sýna þeim þetta hús og þá held ég að menn kæmust fljótlega að þeirri niðurstöðu að það hentaði alls ekki þeirri starfsemi sem við erum að tala um. Ég tek hins vegar fyllilega undir með hv. þm. Pálma Jónssyni að auðvitað á að gera nákvæma könnun á þessum málum áður en þetta mál er sett hér inn í þingið. Það er fjöldi annarra möguleika í myndinni og hefur verið bent á það hér
í umræðunni.
Ég vil hins vegar gagnrýna það að þeirri skýrslu, sem hæstv. forseti lyfti trúnaði af, eins og hæstv. forseti sagði hér áðan, var dreift hér fyrir rúmum klukkutíma síðan og hv. þm. hafa alls ekki haft tíma til þess að kynna sér innihald þeirrar skýrslu. Bara af þeirri einni ástæðu væri rétt að fresta þessari umræðu þannig að menn hefðu nú tíma til þess að skoða málið niður í kjölinn og ræða það þá með hliðsjón af þeirri þekkingu sem sú skýrsla veitir okkur.
Ég veit reyndar til þess, af því að menn hafa áhyggjur af því hvað verður rekið í þessu húsnæði, sem ég tel reyndar að komi okkur ósköp lítið við hér í þessum sal, að þeir sem eru með rekstur þar í dag hafa áhuga á því að halda þeim rekstri áfram. Þeir hafa að vísu ekki bolmagn til að kaupa þessa eign en þeir hefðu áhuga á að halda þessum rekstri sem þar er núna áfram, enda tel ég, þó ekki væri nema bara fyrir borgarlífið, að við ættum frekar að stuðla að því að þarna yrði einhvers konar samkomuhús eða veitingastaður eða hótel eða hvað sem menn vilja kalla það, því að nóg hefur nú þrengt að miðbæjarlífinu þó að við förum ekki að stuðla að því að það steindrepist nú í eitt skipti fyrir öll, og þarf væntanlega ekki að færa rök fyrir því þó að að sjálfsögðu megi nefna Kringluna sem hefur tekið alla verslun í burt frá miðbæjarkaupmönnum.
Það er líka spurning: Hvað er hið raunverulega kaupverð? Hver er raunverulegur viðgerðarkostnaður? Hafa menn í rauninni gert sér grein fyrir því? Ég hef upplýsingar um að þetta hús er meira og minna gallað og það þurfi verulegar viðgerðir á því, bæði á heitavatnspípum og þaki, til að mynda, að allur breytingarkostnaður yrði því mikill, þannig að þegar ég slæ hérna fram tölum eins og 400 millj. held ég að það sé langt frá því að vera út í hött.
Menn hafa komið hér aðeins inn á framtíðarskipan húsnæðis fyrir Alþingi og þá teikningu sem hefur verið gerð að nýju Alþingishúsi. Það liggur ljóst fyrir mér að ef við förum út í það að kaupa Hótel Borg verður þeim áformum um að reisa nýtt þinghús fyrir Alþingi frestað um ókominn tíma, sennilega alllangan, og þá má allt eins spyrja í ljósi þess að við höfum eytt tugum milljóna bara í þá hönnun: Erum við þá að staðfesta þá sóun á peningum sem þar hefur átt sér stað? Það liggur ekki fyrir nein samþykkt um það að fara yfir höfuð út í byggingu nýs þinghúss, einungis hönnunin. Þar hefur Alþingi af örlæti sínu spreðað tugum milljóna út í loftið og nú ætlum við að setja það í hættu. Þar með er ég reyndar ekki að tala fyrir því ákveðna þinghúsi. Ég hef ákveðna skoðun á því hvar Alþingi Íslendinga eigi að vera þó að sumir mundu segja að það væri kannski gamaldags hugsun. Ég er þeirrar skoðunar að Alþingi eigi að eiga höfuðsetur á Þingvöllum. Þó að ekki væri nema vegna sögunnar tel ég það rétta staðinn og hef engar áhyggjur af staðsetningunni gagnvart veðri eða öðru slíku eins og hér var komið inn á áðan. En það eru nú kannski aðrir sálmar.
Hæstv. forseti. Ég ætlaði ekki að eyða tíma
þingsins í þetta. Ég ræddi þetta ítarlega á síðasta þingi en vil ítreka andstöðu mína við þáltill.