Guðni Ágústsson:
    Það gerist auðvitað í þessu máli, eins og svo oft áður hjá okkur hér í þessu blessuðu þingi, að umræðan fer út á vettvang kannski lengra frá efninu en við sjálfir kysum og væri þessari stofnun heppilegt. Þeir sjálfstæðismenn sem hér hafa talað hafa talað í sparnaðartón en þó hefur maður fundið að á bak við sparnaðartóninn er auðvitað hinn möguleikinn að ganga til enn meiri eyðslu á þessu sviði. Og konurnar í Kvennalistanum eru nú farnar að tvístíga í þessu máli. En ég held að mjög mikilvægt sé að við gerum okkur grein fyrir stöðu þessa máls.
    Við vitum að umfang starfsemi Alþingis hefur vaxið á síðustu árum eins og svo margt annað en þó kannski ekki í jafnmiklum mæli og ýmislegt annað hjá ríkinu. Ég held að það sé öllum ljóst sem hér starfa að starfsaðstaða þingmanna og ekki síður starfsfólks er með þeim hætti að vart verður við unað. Ég held að enn fremur geri allir þingmenn sér grein fyrir því að á næstu árum verða þeir að taka ákvörðun í þessu máli með einhverjum hætti og þá þurfa menn að hafa tvennt í huga, í fyrsta lagi hagsmuni Alþingis sjálfs og þá mikilvægu aðstöðu sem þingið þarf að hafa fyrir starfsemi sína. Í öðru lagi verða menn að hugleiða: Hvernig verja menn sem minnstum peningum í að ná þessari mikilvægu ákvörðun?
    Þegar ég kom hér inn í þetta þing sem ungur maður fyrir tveimur árum lágu fyrir teikningar að miklu húsi sem ég ætla ekki í þessari ræðu að gagnrýna. Ég geri mér grein fyrir því að þessi þjóð hefur ekki efni á að byggja slíkt hús yfir sitt þing og er með öllu óþarft. Það er bygging upp á 1 1 / 2 --2 milljarða að lágmarki. Það er hús sem kallar á slíkt umfang í búnaði að það getur ekki einu sinni haft aðstöðu hér á þessum stað sem Alþingi hefur starfað á svo lengi. Þess vegna tel ég að sú hugmynd sé of dýr og það sé skynsamlegra með búmannlegum hætti að líta í kringum sig á þessum stað og spyrja: Getum við með einföldum hætti og ódýrum leyst húsbyggingarvanda Alþingis? Við sjáum í þessari greinargerð að í dag er Alþingi komið í sjö eða átta hús með verkefni sín. Starfsemi þingsins er að færast á marga staði. Það hlýtur að vera dýrt og við sjáum bara það eitt í þessari skýrslu að það er mikill hagnaður að hætta að leigja þessi hús og það er fljótt að skila sér. Kannski skilar kaupverðið á Hótel Borg sér, sem menn ræða nú um svona á 120 millj., á 10 árum, bara með sparnaði á leigutekjum. Hver er leigan sem Alþingi greiðir fyrir þessi leiguhús? Hér kemur það fram að menn greiða 8 millj. kr. í húsaleigu og með hagræðingu geta menn sparað 5 millj. í viðbót eða 13 millj. Á 10 árum verða þetta 130 millj. eins og sagt er að Hótel Borg muni kosta. Og ég trúi því að Hótel Borg sé í það góðu standi að þar þurfi í sjálfu sér ekki mikið að gera til þess að húsið verði nothæft fyrir skrifstofur þingmanna í næstu 5--10 ár. Ég sé því í þessu sparnað.
    Ég virði þetta hús sem er Hótel Borg og tel að það eigi mikla sögu að baki og það er í nánd við þetta

hús. Hér kom það fram í umræðunni að norska Stórþingið hefur leyst sín húsnæðisvandræði með því að kaupa Hótel Astor sem er í álíka fjarlægð frá þeirra þingi og Hótel Borg hér þannig að fjarlægðin skiptir engu máli, enda sjáum við hér bara í gegnum gluggann yfir að Hótel Borg. Það eru engin rök að halda því fram að fjarlægðin sé óviðráðanleg.
    Menn geta selt eignir þegar sem þingið á og eru metnar upp á 20 millj., þannig að ég sé fyrir mér að þetta er sparnaðartillaga og ég skammast mín ekkert fyrir það í þeim vanda sem við stöndum frammi fyrir, að þurfa að leysa vandræði Alþingis, að vilja styðja það að kaupa Hótel Borg sögunnar vegna og vegna þess að þetta er lang-, langódýrasti kosturinn sem Alþingi á til þess að leysa sín húsnæðismál í eitt skipti fyrir öll. Þess vegna lýsi ég yfir fullum stuðningi við þá þáltill. sem hér er sett fram og bið menn um að tala ekki tveimur tungum í þessu máli, að vera bæði að tala um sparnað en meina kannski eyðslu.
    Ég geri mér grein fyrir því að nýja húsið sem menn ræða um kostar 1 1 / 2 --2 milljarða. Á því hefur þjóðin ekki efni. Ég geri mér grein fyrir því að þjóðin og þingið munu nokkuð sammála um að Alþingi skuli vera staðsett hér á þessum stað í framtíðinni og þess vegna vil ég með búmannlegum hætti leysa þetta mál, með þessum einfalda hætti að ganga til kaupa á Hótel Borg, og sé í því mikinn peningalegan sparnað og auðvitað allt aðra aðstöðu til framtíðar, bæði fyrir þingmenn og starfsfólk þingsins.
    Tvennt verða menn aldrei ásáttir um. Í fyrsta lagi næst aldrei samstaða um að byggja nýtt hús á allt öðrum stað. Í öðru lagi er það þrengt að hér að staðsetning á nýju húsi á lóð Alþingis gengur ekki upp. Hótel Borg er því eina leiðin fyrir Alþingi til að komast með skjótum og ódýrum hætti út úr vanda sínum.