Eyjólfur Konráð Jónsson:
    Hæstv. forseti. Hér áðan í umræðunum kom það mér mjög á óvart að hv. 1. flm. þessarar þáltill. sagði efnislega, vonandi hef ég skilið það rétt, að það væri a.m.k. sæmileg sátt á milli Alþingis og borgaryfirvalda og að þar væri ekki um þann ágreining að ræða sem áður hefði verið. Um hann vitum við. Borgarráð samþykkti einróma að andmæla þessum fyrirætlunum á sínum tíma. Af þessu tilefni hafði ég samband við borgarstjórann í Reykjavík og hann staðfesti það að sú ályktun stæði óhreyfð en hins vegar hefði verið spurt á fundi, væntanlega þeim sama sem hæstv. forseti Sþ. sagði hér frá áðan, hvort Reykjavíkurborg hygðist kaupa Hótel Borg og því hefði verið svarað að engin ályktun lægi fyrir um það efni. Þetta væri það efnislega í þessu: annars vegar mótmæli og athugasemdir borgarinnar standa óbreytt, borgin er á móti þessu og getur auðvitað stöðvað það vegna þess að það má ekki breyta atvinnuhúsnæði í skrifstofuhús eða hóteli í skrifstofuhúsnæði nema með samþykki borgarinnar. Borgarráð í heild sinni hefur andmælt þessum fyrirætlunum, og hitt er líka rétt að borgin hefur ekki ákveðið að kaupa hótelið. Þetta er mergurinn málsins og ég vona að þessi leiðrétting komist rétt á framfæri, enda efa ég ekki að borgarstjóri hefur það rétt og ef einhver misskilningur hefur þá verið milli borgarstjóra og hæstv. forseta verða þau að útkljá það.