Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Ég þakka fyrir þessa efnislegu áminningu sem flutt er úr forsetastóli og skal þess vegna ekki lengja mál mitt verulega. Hér kom forusta Sjálfstfl. og hafði eitt og annað að segja um námslán og námsstyrki og ber að þakka sérstaklega fyrir það. Sérstaklega af því að hún afhjúpaði sig náttúrlega eins og fyrri daginn og hafði ekkert um málið að segja.
Í fyrsta lagi hélt hún ræðu um það hvílíkur vesalingur menntmrh. væri að draga ekki inn í sjóðinn hálfan milljarð í viðbót, rétt si svona, vegna þess nýja vanda sem um er að ræða, fjölgun, það eru 300 millj., og 200 millj. vegna tekjufalls. Forusta Sjálfstfl. taldi að þetta væri auðvitað hreint smámál að ná þessu upp. Ég spyr hana og óska eftir að sjá þær tillögur við afgreiðslu fjárlaga: Hvar verða þessir peningar teknir? Hvar verða þeir nákvæmlega teknir?
Ég býst ekki við að það komi neitt frá þeim vegna þess að í næstu setningu segir formaður Sjálfstfl.: Ja, ráðherrann fer illa með fé Lánasjóðs ísl. námsmanna og eyðir í raun og veru allt of miklu úr sjóðnum. Það stendur sem sagt ekki steinn yfir steini, hann snýr sér 180 gráður í þessum ræðustól í afstöðu sinni til sama málsins. Minnir þess vegna meira en nokkuð annað á tiltekna persónu sem skemmtir landsmönnum einu sinni í viku og er einhver mesti snillingur sem birtist á sjónvarpsskermi reglulega í þessu landi og skiptir ævinlega um afstöðu 180 gráður í sömu ræðunni --- hann heitir Ragnar Reykás. Ég vissi ekki að hann væri genginn í Sjálfstfl. ( Gripið fram í: Ætlar ráðherrann ekki að standa við loforðin?)