Skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði
Föstudaginn 08. desember 1989


     Frsm. minni hl. fjh.- og viðskn. (Friðrik Sophusson):
    Hæstv. forseti. Hv. frsm. meiri hl. fjh.- og viðskn., formaður þingflokks framsóknarmanna, kom hér í ræðustól og sagði m.a. að þessi skattur, sem nú er veri að endurnýja, hefði áður verið hærri. Þar kom hann dálítið upp um sig vegna þess að skatturinn hefur aldrei verið hærri en nú. ( PP: Það hafa verið sett lög um hann hærri.) Það er allt annað mál, þau lög voru dregin til baka á miðju ári án þess að hafa samráð við Alþingi og þess vegna finnst okkur vel við hæfi hér nú þegar við erum að ræða um þennan skatt enn einu sinni, að Alþingi fái um þetta mál að segja, ekki síst þegar fyrir liggur sú skýrsla sem hv. þm. vitnaði til. Það er dálítið sérkennilegt að heyra hv. formann þingflokks framsóknarmanna segja að skýrslan sé góðra gjalda verð en því miður hafi hún komið svo seint fram að ekki hafi verið hægt að taka tillit til hennar við gerð fjárlaga.
    Má ég minna hv. þm. á að á miðju sl. ári var þessum skatti, sem við erum nú að ræða, breytt án samráðs við Alþingi vegna þess að upp komu þær aðstæður í þjóðfélaginu að slíkt þótti nauðsynlegt. Nú, áður en við afgreiðum fjárlög, áður en við afgreiðum þennan skatt kemur hv. þm. hér í ræðustól og segir: ,,Niðurstaða skýrslunnar er góðra gjalda verð, en það er ekki hægt að taka mark á henni vegna þess að hún kom of seint fram.`` Má ég spyrja hv. þm.: Er búið að afgreiða fjárlög? Hefur það farið fram hjá okkur hinum að fjárlög hafi verið afgreidd hér á Alþingi í ár fyrir næsta ár? Hafa verið haldnir einhverjir leynifundir hér og fjárlög afgreidd? Ég veit ekki betur en fjárlagafrv. liggi núna hjá hv. fjvn. og sé til umræðu þar. Ég veit ekki betur en meiri hluti fjvn. sé núna að fást við svona eins og 2--3 milljarða sem vantar í fjárlagafrv. vegna þess að það var svo vitlaust saman sett. Og svo kemur hv. þm. hér upp og segir: ,,Niðurstaða þessarar nefndar`` --- og hann var einn þeirra sem settu þessa nefnd á laggirnar --- ,,er góðra gjalda verð en hún kemur of seint fram.`` Ég held að hv. þm. verði að átta sig á því að þau atriði sem skipta máli eru enn til meðferðar á hinu háa Alþingi. Fjárlagafrv. hefur ekki verið afgreitt að því er ég best veit. Meira að segja hefur 2. umr. ekki enn farið fram né heldur sú 3. og ég get ekki séð annað en það sé fullt tilefni til þess að ræða þessa skýrslu. Þess vegna fer ég fram á það að milli 2. og 3. umr., til þess að við tefjum nú ekki hér þingstörf, fari fram í nefndinni umræða um þessa skýrslu, ekki síst vegna þess að það er niðurstaða stjórnskipaðrar nefndar að taka skuli þennan skatt sem hér er verið að fjalla um og nota hann á sérstakan hátt.
    Ég er ekki með þessu, þar sem ég hef ekki fengið skýrsluna í hendur, að lýsa því yfir að ég sé þeirrar skoðunar að fara beri að niðurstöðum nefndarinnar. En það er út í bláinn að koma hér í ræðustól og segja að skýrslan hafi komið of seint fram þegar ljóst er að þau mál sem við erum nú að
ræða hér og enn fremur fjárlagafrv. eru aðeins stutt á

veg komin í meðferð Alþingis.
    Það hefði líka, virðulegur forseti, vissulega verið fengur að því ef einhver af hv. þm. Borgfl. hefði verið viðstaddur þessa umræðu til þess að gera þjóðinni grein fyrir því hvernig á því stendur að Borgfl., þ.e. meginþorri hans því hann var auðvitað klofinn í málinu, hefur skipt um skoðun á þeim skatti sem hér er til umræðu. Það er ljóst að á síðasta þingi studdi a.m.k. einn þm. eða sat hjá við afgreiðslu málsins til þess að bjarga ríkisstjórninni. Þá sögu þekkja allir. Aðrir hv. þm. Borgfl. greiddu atkvæði gegn skattinum, meira að segja þeir sem nú sitja í ráðherrastól. Nú sést enginn þeirra hér í dag til þess að gera grein fyrir því hvernig á því standi að Borgfl. hefur skipt um skoðun. Og þó hefur Borgfl. og talsmenn hans lýst því yfir að þeir beri nánast ekki ábyrgð á fjárlagafrv., enda hafi það verið tilbúið áður en þeir komu í ríkisstjórnina. Það hefði verið fengur að því, forseti, ef einhver þeirra hefði komið hér upp og gert grein fyrir því hvort um sinnaskipti sé að ræða hjá hv. þm. Borgfl. En þeir kjósa að þegja. Og þeir gera meira, þeir láta ekki einu sinni sjá sig hér í þessum þingsal, sjálfsagt af ótta við að nú sjáist hvers konar skopparakringlur þar eru á ferðinni. Menn sem snúast út og suður valdanna vegna.
    Aðalatriði málsins er þetta og það hefur komið fram hér í þessari umræðu: Stjórnskipuð nefnd skilar áliti. Formaður þingflokks stærsta stjórnarflokksins kemur í ræðustól og segir: Niðurstaðan er góðra gjalda verð, en ég ætla bara ekkert með hana að hafa núna, jafnvel þó að eftir sé að afgreiða fjárlög og eftir sé að afgreiða þau skattalög sem nú eru til meðferðar. Og hér inni, beint fyrir framan mig, situr hv. 6. þm. Norðurl. e., sá maður sem mest hefur baðað sig í því sviðsljósi að vera sá sem ávallt hefur landsbyggðina fremsta í flokki þegar verið er að setja hluti í forgangsröð. Ætlar hann, hv. þm. Stefán Valgeirsson, að sitja undir því sem stjórnarþingmaður, berandi fulla ábyrgð á öllum gerðum ríkisstjórnarinnar, maður sem átti kost á því að segja já við vantrauststillögu en sagði nei til þess að lengja líf þessarar ríkisstjórnar, nú situr hann og þegir þegar formaður stærsta stjórnarþingflokksins kemur í ræðustól og segir: Við ætlum ekkert á þessu stigi málsins að gera fyrir landsbyggðarverslunina. Þetta eru athygli verð tíðindi (Gripið fram í.) í ljósi þess að þessir hv. þm. fara síðan í sín kjördæmi og segja: Við erum á Alþingi til þess að berjast fyrir landsbyggðina. Við ætlum okkur að gera þar allt sem við getum gert. En svo þegar tillögur koma frá nefndum sem þeir skipa, þá er sagt: Niðurstöðurnar eru góðra gjalda verðar, en við ætlum bara ekki að taka mark á þeim að sinni. Og það er gert á fölskum forsendum.