Skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði
Föstudaginn 08. desember 1989


     Ingi Björn Albertsson:
    Hæstv. forseti. Ég skal nú ekki lengja þessa umræðu en ég lagði hér eina spurningu fyrir hæstv. fjmrh. og ég hlýt að óska þess að hann svari þeirri spurningu. Hún var sú að í fjárlögum líðandi árs er gert ráð fyrir 425 millj. kr. tekjum af skatti á skrifstofu- og verslunarhúsnæði. Eins og alþjóð veit var í kjarasamningum samið um að lækka þetta hlutfall úr 2,2% niður í 1,5% og þar með væntanlega lækka tekjur ríkisins í því hlutfalli. Engu að síður kemur það í ljós, þrátt fyrir þessa lækkun, að tekjur ríkisins af þessari skattlagningu hafa aukist um 40 millj. kr. Það hlýtur að vera krafa til hæstv. fjmrh. að hann skýri fyrir þingheimi hvað þarna er á ferðinni, hvað hefur skeð. Og það hlýtur einnig að vera krafa að hann segi okkur hvað þessi tekjulind hefði þá í raun orðið ef þessi 2,2% hefðu verið tekin eins og áætlað var því það verður ekki annað séð en forsendur þessara fjárlaga hafi verið alrangar miðað við það sem nú kemur í ljós.
    Ég sé að hæstv. fjmrh. hefur beðið um orðið og væntanlega skýrir hann þá þingheimi frá því hvað þarna hefur skeð.