Eyjólfur Konráð Jónsson:
Herra forseti. Hæstv. fjmrh. hefur nú mælt fyrir skattafrv. og er það ekki í frásögur færandi. Hitt er það að hann nefndi hér að á þinginu 1978--1979 hefði hann verið kominn til þó nokkurra áhrifa í íslenskum stjórnmálum. Það er líka rétt. Hvort það var nú af hinu góða að fá þann ágæta mann, hæstv. fjmrh., til mikilla áhrifa í þessu þjóðfélagi, það ætla ég að láta liggja á milli hluta. Það hlýtur hver og einn að dæma um. En hitt er ljóst að enginn er annar eins skattheimtumaður og hann. Það hefur ekki þekkst í sögu landsins. (Gripið fram í.) Jón Baldvin? Nei, nei, hann komst nú ekki í hálfkvisti við hæstv. núv. fjmrh. (Gripið fram í.) Jú, jú, Jón Baldvin ... (Gripið fram í.) (Forseti hringir.) Jón Baldvin, hæstv. núv. utanrrh., lagði hér á skatta þegar hann hafði verið ráðherra í um það bil þrjá mánuði haustið 1987. ( Gripið fram í: Var það ekki í tíð Sjálfstfl.?) Þetta var haustið 1987. Þá lagði sá hæstv. ráðherra á mikla skatta, ógæfusamlega skatta, rétt aðeins um það bil tveim eða þrem mánuðum eftir að hann varð fjmrh. Þá var sagt að það væri gat á fjárlögunum sem jafnvel nálgaðist 3 milljarða kr. Það væri svo gífurlegt gat á fjárlögum að þau mundu verða með kannski allt upp í 3 milljarða kr. halla á árinu 1988, komandi ári. Og ráðið var þetta: Dengja yfir sköttum og hafa þá svona 5 eða 6 milljarða í staðinn fyrir 2--3 til að hafa borð fyrir báru, sagði sá hæstv. fyrrv. fjmrh.
Menn vita nú hver niðurstaðan af því varð. Okkur var sagt þá þegar líða tók fram á haust að það gæti orðið 1 milljarður í halla á þeim fjárlögum, fjárlögum hæstv. þáv. fjmrh., Jóns Baldvins Hannibalssonar. Úr því að spurt er um hans afrek, þá er rétt að vara því. Síðan var upp staðið og þá voru reiknimeistararnir komnir með tölvurnar sínar í gang og reyndu nú að reikna rétt. Þeir stungu ekki í vitlausum spólum eins og lengst af er nú gert hjá þessum embættismönnum sem telja það meginhlutverk sitt að vernda ráðherrana,
hve slæmir sem þeir eru og svikulir og lygnir. Þá voru nú sagðar nokkurn veginn (Gripið fram í.) Þetta er gott íslenskt orð. Þá var nú reiknað --- við skulum segja rétt þó alltaf sé hægt að deila um það hvað sé rétt varðandi halla á fjárlögum og það veit hv. formaður fjh.- og viðskn. nú. Hann er að kynnast því hvernig fjárlög eru saman sett og fjáraukalög og sérstaklega lánsfjáráætlanir, hvað satt er mikið af þeim tölum sem þar eru settar inn og samþykktar af mér og honum venjulega. Þá kom talan ef ég man rétt, og áreiðanlega muna þeir hæstv. ráðherrar það sem sitja nú hér inni okkur til heiðurs --- það er ekki of oft sem við sjáum þá, við viljum gjarnan sjá þá oftar --- en þeir muna sjálfsagt hvort niðurstaðan varð ekki sú þegar upp var staðið eftir fjárlög hæstv. ráðherra Jóns Baldvins Hannibalssonar að það væri 7,4 milljarðar sem hallinn var. Getur það passað? Það er nokkuð nærri? Á árinu 1988. ( Fjmrh.: Það er nokkuð nærri.) Það er nokkuð nærri, já.
Síðan gerist það á því herrans ári 1988 að það
kemur nýr fjmrh. og hann var nú hálfu verri en sá fyrri sem skilaði ríkissjóði með 7,4 milljarða kr. halla, Jón Baldvin Hannibalsson, flokksbróðir hv. þm. Karvels sem er að grípa hér fram í nú ( KP: Hann var ekki góður.) Hann var ekki góður, nei, en þá kom annar hálfu verri og sá heitir Ólafur Ragnar Grímsson, hæstv. fjmrh. Hann er nú örugglega methafi. Hann byrjaði, sagði hann hér áðan, að leggja á þennan skatt sem nú er til umræðu á þinginu 1978--1979. Hann hafði ítök í að leggja á miklu fleiri skatta þá. Og hann var einn mesti ráðamaður í þeirri stjórn sem við tók af minnihlutastjórn Alþfl. sem skotið var þarna inn í bili, 1979 eins og menn muna, þá kom nú önnur stjórn sem hefur verið versta stjórnin fram undir þennan dag, fram á þetta ár skulum við segja. En nú er komin stjórn sem auðvitað slær öll heimsmet eða a.m.k. Íslandsmet í skattlagningu. Hún er miklu, miklu hærri en samanlagðar skattlagningar þessarar uppáhaldsstjórnar hæstv. ráðherra Ólafs Ragnars Grímssonar á árunum 1980--1983. Þá var nú aldeilis gaman að lifa. Þá var nú maðurinn í essinu sínu, hæstv. fjmrh. Það var skattur á skatt ofan, verðbólga á verðbólgu ofan, launaskerðing á launaskerðingu ofan, mánuð eftir mánuð. Þessi stjórn var að vísu sæmilega vinsæl fyrsta árið meðan enginn vissi hvað hún ætlaði að gera en það fór heldur að fara af henni skrautið þegar kom fram á annað ár, þegar hún var álíka gömul og núv. ríkisstjórn er. (Gripið fram í.) Hún varð allt of gömul, já, já, hún varð allt of gömul. Þessi er líka orðin allt of gömul. (Gripið fram í.) Já, já, það er allt í lagi, herra forseti, að gripið sé fram í, bara að einn grípi fram í í einu, ég vil það mjög gjarnan, ég skal alltaf stoppa um leið og einhver vill segja eitthvað.
Þessi stjórn er náttúrlega orðin óvinsælli, það er rétt hjá hæstv. ráðherra menntamála. ( Gripið fram í: Hver sagði það?) Hann sagði það, hæstv. ráðherra menntamála, að stjórnin á árunum 1980--1983 hafi alltaf verið mjög vinsæl. Hún var vinsæl í upphafi en vinsældirnar fóru nú af henni. Ef þessi hæstv. ráðherra heldur að sú stjórn hafi alltaf verið vinsæl, þá er nú rétt að líta svolítið til baka, að hann geri það sjálfur. Hvernig fór hans flokkur t.d. út úr því ævintýri öllu saman? Ætli hann hafi beðið þess bætur? Ég held ekki. Þessir tveir herramenn urðu ekki neinir sérstakir einkavinir upp úr því öllu
saman og ég held nú að ástandið í því bandalagi alþýðunnar sem þeir kalla sig hafi ekki borið sitt barr enn þann dag í dag, eftir þau ævintýri öllsömul. En sé því haldið fram að sú stjórn hafi verið vinsæl til síðasta dags, sem ég held nú ekki, þá er kannski von að þessir hæstv. ráðherrar ætli sér að halda áfram, helst út kjörtímabilið. (Gripið fram í.) Var hann að minna á sig já? Já, nýliðinn? (Gripið fram í.) Já, þegar þeir komu? Æ, ég nenni ekki að eyða orðum að því, af því að ég er að tala við valdamenn, a.m.k. fyrrverandi og enn verandi.
Sannleikurinn er nú sá og --- ja, í gríni, það hefur nú enginn verið beint að grínast, þetta hefur verið ágætis og skemmtileg umræða --- að þessi stjórn sem
hæstv. ráðherra minntist hér á, vitnaði til, sem fyrst lagði á þennan skatt, hún var ólánssöm stjórn. Henni gekk illa. Ég hafði raunar þá um sumarið lagt henni til, ég vissi nú ekki hvaða stjórn kæmi, en ég skrifaði þá grein þar sem ég vildi leggja hverri þeirri stjórn, sem við tæki, til heilræði og það væri veruleg skattalækkun, sérstaklega neysluskatta. Að stöðva verðbólguna með því að lækka verulega neysluskatta. Hefði sú stjórn gert það, jafnvel sú stjórn með þeirri samsetningu sem á henni var, held ég að við byggjum nú við allt annað þjóðfélagskerfi. Þjóðfélagskerfi réttlætis og vaxandi velmegunar, því að verðbólgan hefði þá að líkindum stöðvast. Það hefði mátt stöðva hana líka mun síðar en þá fór hún á fleygiferð. Þegar stjórn Ólafs Jóhannessonar sagði af sér var hún komin á ferð. Síðan kom þarna millibilsástand sem allir þekkja og síðan kom stjórn Gunnars Thoroddsens og þá keyrði um þverbak. Að vísu ekki svo mjög fyrsta árið og sú stjórn var vinsæl út eitt ár. Þessi var það eiginlega aldrei, núverandi ríkisstjórn, og síst nú.
Mér finnst vera farið mjög svipað að og gert var á þessum árum nema hraðinn er bara meiri núna. Nú er þessi ríkisstjórn rúin öllu trausti, einkum og sér í lagi láglaunafólks og þeirra sem berjast í bökkum. Svo ekki sé nú talað um atvinnuleysið og það heyrðu menn í fréttum í útvarpi nú í morgun og í hádeginu, hygg ég að hafi verið, að atvinnuleysi væri meira á Íslandi núna, í jólamánuðinum sjálfum. Það verður glatt og bjart hjá sumum fjölskyldum eða hitt þó heldur. Því miður. ( Gripið fram í: Það kemur ekki heim og saman við yfirlýsingar fjmrh.) Jú, þetta kom nú meira að segja frá einhverjum opinberum aðila að atvinnuleysi á Íslandi núna í þessum mánuði, jólamánuðinum, er meira en nokkru sinni áður síðan farið var að halda skrá yfir atvinnuleysi á Íslandi. Meira atvinnuleysi, verri kjör en nokkru sinni áður. --- Ég sé að hv. þm. Stefán Guðmundsson tekur þessum fréttum ekki vel. Hann er ekki hrifinn af því að standa að stjórn sem þannig heldur á málum. En það eru aðrir sem eru hrifnir og segja: Allt er í blóma. Kjör láglaunafólksins batna. Skattalagabreytingin þýðir að kjör láglaunafólksins, hinna lægst launuðu, fara batnandi. Virðisaukaskatturinn sem á að koma á núna bætir kjör, sérstaklega láglaunafólks og lágtekjufólks og einkum og sér í lagi þeirra sem eru atvinnulausir eða eru að missa atvinnuna. Þessi hæstv. ráðherra segir það og hv. þm. Karvel Pálmason leiðrétti hann hér fyrir ekki löngu síðan þegar hann hélt þessu fram. Og hann gerir það enn, í hvert einasta skipti sem maður sér hann á skjánum. Ég loka nú helst fyrir eða horfi út í horn. ( KP: Mig?) Nei, nei, nei, hæstvirtan ráðherra.
En ég kemst ekki hjá því að hlusta á það sem maðurinn er að segja hér í þinginu og annars staðar. Og inntakið er þetta: Aldrei hefur láglaunafólkið haft það eins gott og nú. Hafa menn ekki heyrt það? Tekjuskattinum er þannig hagað að kjör láglaunafólksins batna. Kjör fólksins sem er með 60--70 þús. kr. á mánuði fara batnandi. Ég tala nú ekki um þegar virðisaukaskatturinn kemur með fullum
þunga á allar vörur, þá batna nú fyrst kjör láglaunafólksins. Og þegar atvinnuleysið er orðið meira en nokkru sinni áður í sögunni, þeirri sem atvinnuleysi hefur verið skráð í, því þess vegna höfum við það skráð niður. Auðvitað hefur einhvern tímann áður, fyrir stríð t.d., það veit ég, verið meiri og alvarlegri kreppa en sú sem nú er verið að búa til. En það er ekkert langt í að þessi kreppa, þessi heimatilbúna kreppa, geti orðið eins og var fyrir stríðið. Og hvernig er þessi kreppa tilbúin? Ég skal segja ykkur það rétt strax en fyrst ætla ég að halda áfram hinni sögunni með núv. hæstv. ráðherra.
Hver var hallinn á fjárlögunum hjá honum, hver verður hann á þessu fyrsta heila ári hans? Hver verður hann? Hann er eitthvað að tala um svona fimm, sex, sjö milljarða, er það ekki? Ætli þeir geti ekki orðið tíu, tólf, fimmtán, þegar upp verður staðið. Og hverju spáir hann svo sjálfur að verði á næsta ári? Fyrst á að taka að láni sex milljarða eða svo hjá fólkinu í landinu. Ætli þeir geti ekki orðið tíu? Það er halli samkvæmt þessum útreikningsdæmum þeirra. Á hverjum degi er verið að bæta við nýjum sköttum en á hverjum degi heyrum við líka að hallinn sé að aukast á fjárlögunum. Formaður fjvn. segir t.d. á forsíðu Alþýðublaðsins fyrir viku: Hallinn verður miklu meiri en spáð er í fjárlagafrv. Það á víst að ræða fjárlögin hér í þinginu á morgun. Ætli við fáum þá ekki einhverjar upplýsingar um að samhliða öllum þeim gífurlegu skattaálögum sem dynja yfir á hverjum einasta degi, alls staðar og alltaf,
aukist hallinn á fjárlögunum álíka mikið, um sömu prósentutölu? Hvers vegna fara menn þá ekki að átta sig á því að samfara skattahækkunum, samfara ríkisútgjöldum, vex hallinn á fjárlögum en minnkar ekki. Menn segja: Það er halli á fjárlögunum. Hvað ætlar þú að skera niður? spyr þessi hæstv. ráðherra. Hvar á að skera niður? Bentu á það. (Gripið fram í.) Þessi hæstv. ráðherra og margir aðrir, þeir segja: Hvar á að skera niður? Hvar ætlar þú að skera niður? Þeim dettur ekki í hug að horfa til baka, bara síðustu árin, og átta sig á því að þeim mun meira sem heimt er af sköttum, þeim mun meiri verður hallinn. Leiðin er auðvitað sú að lækka skatta verulega þannig að fólkið haldi eftir aflafé sínu svo það geti komið undir sig fótunum, einstaklingarnir, bæði húsnæði og eins auðvitað atvinnurekstri, til þess að fyrirtækin haldi nægilega miklu eftir til að geta aukið framleiðsluna, fjárfest, bætt aðstöðu sína og borgað skatta. Þá geta fyrirtækin borgað skatta en gjaldþrota fyrirtæki borga enga skatta. Maður sem er orðinn gjaldþrota, búinn að missa húsnæði sitt, hann borgar hvorki skatta né getur lifað mannsæmandi lífi eða yfirleitt framfleytt fjölskyldu, yfirleitt verið sá þegn sem hann vill vera. Honum eru ekki búin þau skilyrði í þessu þjóðfélagi að geta verið heilbrigður þegn með fjárhagslegt sjálfstæði og atvinnuöryggi. Og þeir brosa, þessir kallar. Finnst þetta bara voða gaman.
Ég skal svo sem ekkert endilega vera að fara núna á þessu augnabliki út í langa, efnahagslega umræðu en vildi þó gjarnan koma þessum sjónarmiðum á
framfæri sem menn ættu að vera farnir að skilja.
Við höfum auðvitað, hæstv. ráðherra og ég, oft og mörgum sinnum haft svona kappræðu hér í þingsölum og víðar um mismunandi skoðanir okkar á efnahags- og fjármálum. Auðvitað má hann hafa sína skoðun og hann kom sínum sjónarmiðum frekar á framfæri en flestir menn aðrir í þeirri stjórn sem við tók af stjórn Ólafs Jóhannessonar og minnihlutastjórn kratanna, þess tímabils sem þá var í mótun, tímabils ofstjórnar og ofsköttunar og meiri og minni falsana á öllum tölum. Þar sem reynt var að telja öllu láglaunafólki trú um að það væri alltaf að græða á kostnað auðmannanna. Þar sem atvinnulífið var meira og minna lagt í rúst. Það tókst að vísu að rétta það nokkuð við á árunum næstu þar á eftir þegar Sjálfstfl. var í stjórn. (Gripið fram í.) 1988? Ég skal segja hv. þm. hvernig var umhorfs haustið 1988. Lífskjör hafa líklega aldrei verið betri á þessu landi en á árinu 1988. Hagur fyrirtækja var slæmur, það er rétt. En þá flutti Sjálfstfl. tillögu um gengisfellingu og lækkun, stórfellda lækkun á öllum sköttum á allri matvöru, brýnustu nauðsynjum fólksins. Þegar sú tillaga var flutt fóru formenn tveggja stjórnmálaflokka í sjónvarpssal og slitu stjórnarsamstarfinu þar. Þeir slitu því vegna þess að bæta átti hag útflutningsframleiðslunnar með gengisfellingu, sem kannski hefði verið nægilega stór þá, 12% held ég að hafi verið talað um. Líklega hefur hún samt verið of lítil, hefði þurft að vera meiri. En til að vega upp verðlagsáhrif af þessari gengisfellingu þá var gerð tillaga um að lækka skatta á matvörur, til að þær lækkuðu beinlínis í verði eða hækkuðu a.m.k. ekki.
Nú get ég til fróðleiks sagt hv. þm. sem var að spyrjast hér fyrir um hvernig ástandið hafi verið, að 12--13% gengisfellingu mundi að fullu vera hægt að vinna upp með u.þ.b. 5% lækkun, hvort heldur er á virðisaukaskatti eða söluskatti. Og á því ári, 1988, flutti ég raunar tillögur, oftar en einu sinni í mínum þingflokki, um að gengið yrði lækkað um u.þ.b. 12% og söluskattur lækkaður í 20% til að vega að fullu og öllu upp verðhækkanir af gengisbreytingunni og stöðva jafnvel verðbólguna. Kannski þyrfti að bæta einhverju meiru við og þá helst því að fara með matarskattinn eða skatta, söluskatt eða virðisaukaskatt á matvæli, brýnustu nauðsynjar, t.d. niður í helming af þessu, 10%. Það er nefnilega ekki meiri vandi að stöðva verðbólguna en felst í þessum tölum. En hvað gera menn, þessir spekingar nauðsynjarinnar á því að hafa ríkissjóð alltaf hallalausan, sem aldrei verður auðvitað hallalaus heldur vex ár frá ári og alveg endalaust með svona gífurlegum skattahækkunum? Það er sagan búin að sýna. Þeir fara auðvitað þveröfuga leið, spenna verðlagið upp með hækkun á neyslusköttum og svo auðvitað tekjusköttum og öllu því í leiðinni. Það eru fyrst og fremst neysluskattarnir sem keyra verðbólgu áfram. Lækkun á tekjuskatti er auðvitað sjálfsögð við núverandi aðstæður enda er það fullkomið brjálæði sem er að gerast nú þessa dagana eins og á öllum sviðum skattamála yfirleitt. En lækkun tekjuskatts gerir mönnum auðvitað léttara að geta komist áfram
á sínum launakjörum, millistéttarfólkinu. (Gripið fram í.) Það er nú meira og minna blekking sem ráðherra setur þar fram og það veit hv. þm. Karvel Pálmason alveg eins vel og ég.
Ef ég held þessari sögu áfram, um lækkun tekjuskatta og allra mögulegra skatta annarra. Menn verða að hafa það vel í huga og ég veit að allir hér inni gera sér grein fyrir því að allir skattar, hverju nafni sem nefnast, eru í eðli sínu eignaupptaka, færsla á eignarrétti frá borgurunum og fyrirtækjunum yfir til ríkisins. Auðvitað verðum við að hafa einhverja skatta, það er ljóst. En ef menn lækka t.d. tekjuskatt, þá verkar það þannig að auðveldara er fyrir fólkið á öllum tekjustigum að draga fram lífið. Það verkar þannig. Lækki maður
hins vegar neysluskatt, þá verkar það í sjálfu sér tvöfalt. Það bæði lækkar beinlínis verðlag miðað við það sem ella hefði orðið, á ákveðnum vörutegundum, helst á öllu, að hann sé lækkaður það mikið. T.d. ef virðisaukaskatturinn yrði 20% í staðinn fyrir 25% eða 24,5%, þá mundi verðbólga beinlínis stöðvast vegna þess að skattarnir, þessir neysluskattar, hár söluskattur og nú komandi virðisaukaskattur leggjast á á svo miklu breiðari grundvelli en gengisbreyting. Ef gengið væri fellt um 12--13% mundi vöruverð hækka um 5%. Það þýddi að verðlag mundi gegnumsneitt lækka um ca. 2 / 3 af því sem gengisfellingin aftur leiddi af sér.
Mergurinn málsins er sá að þá mundi verðlagið lækka beinlínis og þar með mundi fólkið líka geta betur lifað af sínum launakjörum. Þannig eru neysluskattarnir miklu meira hvetjandi til verðbólguaukningar en tekjuskattarnir. Þess vegna, ef menn hafa það að meginmarkmiði að stöðva verðbólgu, þá gerist það auðvitað í gegnum neysluskattana. Að lækka beinlínis verðlagið það mikið að bæði þjónusta og vörukaup, öll útgjöld sem virðisaukaskattur og söluskattur leggst á, mundi hafa a.m.k. núll-áhrif og helst eitthvað negatíft, þannig að verðbólgan beinlínis stöðvaðist á einum degi. Þetta er nú galdurinn. Þannig ættum við auðvitað að halda á okkar málum og þannig verður haldið á málum. Ég held nærri því, þó að einhverjir núverandi flokkar yrðu við stjórnvölinn þegar næsta stjórn verður mynduð, að þá hafi menn lært það af reynslunni sem er núna að koma í ljós, kreppunni sem er heimatilbúin, erfiðleikum atvinnuveganna og náttúrlega fjöldaatvinnuleysi og gjaldþrotum, bæði fjölskyldna, einstaklinga og fyrirtækja, að lengra verður ekki haldið á þessari braut. Auðvitað verður uppspretta skattanna alltaf þeim mun minni sem minna er framleitt og tekjurnar eru minni, bæði tekjuskatta og líka náttúrlega skatta á neysluvörum, innflutningsvörum o.s.frv. Þetta er nú svona einfalt í mínum huga.
Um þetta höfum við deilt og ég hef haft mjög gaman af að deila í rólegheitum við hæstv. fjmrh. um þessa hluti. Og við höfum deilt um annað. Það er um hallann á fjárlögunum. Hæstv. ráðherra var hér í gamla daga og er enn að leggja áherslu á hallalaus fjárlög. Hann gat ekki komið þeim saman nú á þessu
ári og ekki heldur á komandi ári hallalausum og mun aldrei geta. Hvers vegna? Vegna þess að hann er alltaf að leggja á nýja skatta sem knýja áfram verðbólgu og knýja áfram kauphækkanir og gengisfellingar. En einnig deildum við um hvort þjóðin yrði skuldugri ef ríkissjóður tæki lán. Það hefur verið sagt að komandi kynslóðir þurfi að borga þau innlendu lán sem ríkissjóður tæki til þess að fjármagna framkvæmdir t.d. Við deildum um það á tímabili en vorum orðnir nokkuð sáttir fyrir allmörgum mánuðum um að þetta væri reginmisskilningur vegna þess að ef ríkið væri skuldari að kannski 105 milljörðum kr., eitthvað svoleiðis, eftir að hafa tekið lán hjá borgurunum árum saman eins og Bandaríkjamenn hafa gert alla öldina. --- Tvö ár, 1928 þegar Hoover kom af stað heimskreppunni og þegar Carter kom af stað verðbólgunni, kom henni upp í 12--14%, það eru einu tvö árin á þessari öld sem Bandaríkin hafa verið með hallalaus fjárlög. Þau hafa alltaf tekið peninga að láni hjá borgurunum til að fjármagna rekstur ríkisins og framkvæmdir. --- Ég spurði hæstv. ráðherra hvort þetta væri rétt, hvort þjóðin yrði skuldugri fyrir það og komandi kynslóðir yrðu að borga ef ríkið hefði tekið lán, t.d. 100 milljarða kr., stórar upphæðir, væri sem sagt skuldari, ríkissjóðurinn okkar. Við værum skuldari. Þá hlyti einhver kröfuhafi að vera og hver væri hann? Og um það er lauk svaraði hæstv. ráðherra þessu í fjórða skiptið sem ég spurði hann, þá svaraði hann því. Fyrst sagði hann: Þú veist það, það er eitthvað svona, en í fjórða skipti sagði hann þegar ég spurði: Hver er kröfuhafinn ef þjóðin er skuldari? Hann sagði: Þjóðin sjálf. Hann sagði að hún væri það og ég var að vona að hann læri núna eitthvað af því sem ég er að segja við hann um fjármálin almennt og skattheimtustefnuna. Það er nefnilega kominn tími til að fara að læra vegna þess að hann réð ferðinni í þessari stjórn Gunnars Thoroddsens mjög lengi. Hann var mjög duglegur eins og allir vita, getur verið það, útsmoginn og hafði gaman af að vefja mönnum um fingur sér, láta þá gera eitthvað sem þeir vissu ekki að þeir voru að gera, blekkja svolítið, plata svolítið, sumir láta plata sig eins og menn vita. Hann var snillingur í þessu. Ég fylgdist með honum. Við vorum saman í fjh.- og viðskn. Einu sinni lét hann t.d. stilla upp fjh.- og viðskn. allri inni og sjónvarpið tók mynd af okkur, við vorum voða kát að komast í sjónvarpið. Svo var þetta sýnt um kvöldið. En hvað haldið þið að hafi verið á undan? Það var sagt frá því að hæstv. núv. fjmrh., sem þá var formaður fjh.- og viðskn. Ed., þessarar virðulegu deildar, hefði lýst því yfir að fjh.- og viðskn. væri að ræða um skuldamál Flugleiða og lét að því liggja að þar væru nú skúrkar á ferð og lítið að marka upplýsingarnar sem fram hefðu komið. Og í baksýn var svo nefndin, við öll. Það leyndi sér ekki að við áttum öll að hafa verið þessi skotmörk. Ég gerði mér reyndar lítið fyrir og hringdi niður í sjónvarp --- ég bý rétt hjá sjónvarpinu --- og sagði að ef það yrði ekki leiðrétt hér og nú og sagt skýrt og skorinort að allt sem Ólafur Ragnar Grímsson hefði
sagt áðan væru ósannindi, þá mundi ég koma, hlaupa inn í salinn
og segja það þar sjálfur. Sjónvarpið varð við þessari ósk minni, þetta var bæði vélritað upp og sett á skerminn og sagt. Morguninn eftir var hann algerlega eins og lamb. Þeir komu þarna skúrkarnir og þá var hann nú ekki mikill fyrir mann að sjá á þeim fundi.
Þetta kunni hann og þetta kann hann enn þá og nú ætlar hann sem sagt að halda áfram. Við vorum á fundi að ræða virðisaukaskattinn rétt einn ganginn nú í morgun og það eru nú heldur betur aðfarir sem á að hafa, loka bara eftir 30 daga. Fyrst að skuldajafna allar skuldir sem ríkið getur hugsað sér. Svo má ríkið skulda fyrirtækjunum í hálf og heil ár án þess að borga svo mikið sem vexti, hvað þá dráttarvexti, þannig að ef einhver lendir í erfiðleikum (Gripið fram í.) jú, það er möguleiki á því, hv. þm. Stefán Guðmundsson, ef einhvers staðar í útgerð eða fiskvinnslu, og reyndar alls staðar, ef menn lenda í erfiðleikum með að standa skil á þessu öllu saman, (Gripið fram í.) að standa skil á þessu öllu í svona 30 daga, ef þeir nú gera það ekki og innan 30 daga, þá skal loka. Það er nefnilega það sem á að láta þig og aðra samþykkja, þá skal loka fyrirtækjunum. En það er þó til ein undantekning sem þeir gera sem hafa að rekstri staðið, en það hefur enginn þessara manna sem á toppinum eru gert. Þeir hafa ekki hundsvit á neinum rekstri, ráðherrarnir, enginn þeirra. Ekki vit á því, og hafa aldrei þurft að standa í rekstri eins og hv. þm. Stefán Guðmundsson þurfti að gera. Jú, það er eitt leyfilegt og það er að fá bankaábyrgð bara í hvelli, svona út um allt land og þá er þetta allt saman klappað og klárt.
Nei, allt er þetta á sömu bókina lært, líka þessi skattur á skrifstofu- og verslunarhúsnæði sem er kannski ekki verri en aðrir skattar. En það er verið að taka skatta af þjóðinni í heild og fyrst og síðast auðvitað af lágtekjufólkinu sem á erfiðast með að láta endana ná saman. Auðvitað eru skattarnir fyrst og fremst lagðir á það. Þeir eru lagðir á allar neysluvörur, þeir eru lagðir á helstu lífsnauðsynjar hvar sem þær er að finna. Náttúrlega á svona ofboðslegan lúxus eins og þann að eiga Trabant. Það á nú aldeilis að skattleggja það rétt einn ganginn. Fólk má ekki einu sinni eiga einhverja bíltík, það á víst að vera lúxus. Það er alls staðar drepið niður hvar sem nokkur lifandi leið er. Það er nefnilega lítið sem hundstungan finnur ekki. Það er alls staðar verið að þefa og neyða sköttum upp á fólk.
Þetta getur ekki endað nema með skelfingu. Það endar með því sem við sjáum fyrir augunum, fjöldaatvinnuleysi, minnkandi framleiðslu, gjaldþroti fyrirtækja í bókstaflegri merkingu. Og hver á þá að borga skattana í framtíðinni? Auðvitað fer hallinn vaxandi. Hann vex í réttu hlutfalli við aukna skatta alveg eins nú og í fyrra og hittiðfyrra. Og hann gerir það á næsta ári og þar næsta ef þessi stjórn verður við lýði. Þetta er mergurinn málsins. Fram hjá þessu komast stjórnarherrarnir ekki neitt. Þetta eru tölurnar sem þeir sjálfir sýna okkur, vinstristjórnarmennirnir,
þegar upp er staðið.
Í öllum öðrum ríkjum, a.m.k. í Evrópu og er þar meðtalin Austur-Evrópa, eru núna undirstraumar að brjótast upp á yfirborðið. Og hverjir eru þeir? Þeir eru minnkun ofbeldisvalds og skattheimtuvalds. Þeir eru aukið frjálsræði og einkarekstur, frjálst eigið fjármagn. Þegar alls staðar er verið að brjóta þetta ofurvald niður, þá færist allt þess háttar í aukana á Íslandi. Á öllum sviðum skal flokka fólkið og gera því sem erfiðast að lifa og gera atvinnulífið þannig að það geti ekki skilað þeirri auðlind sem þarf til þess að skattar geti vaxið í framtíðinni, að framlagið til sameiginlegs ríkissjóðs geti vaxið. Til þess þarf auðvitað einhver að vera sem getur borgað. En það á að hindra hér. Þegar öll önnur ríki í Evrópu a.m.k., og eins og ég sagði líka í Austur-Evrópu, eru að reyna að brjótast til frelsis, þá er lagt á okkur --- þá er ekki frelsi hér heldur helsi þessara manna.
*lu03