Kjarasamningar opinberra starfsmanna
Mánudaginn 11. desember 1989


     Karvel Pálmason:
    Virðulegur forseti. Það gerist nú margt skjótt hér á hv. Alþingi og trúlega gefst þm. ekki öllum kostur á að fylgjast með því sem hér er verið að gera.
    Ég skal ekki tefja umræðu um þetta mál og skal á engan hátt gagnrýna meðferð þess. Mér hefur hins vegar ekki gefist kostur á að kynna mér það nægjanlega til að geta myndað mér skoðun á málinu. Ég held að nauðsynlegt sé að velta því mjög fyrir sér hvort, og þá með hvaða hætti ef af yrði, þetta hefði áhrif á hin almennu verkalýðsfélög á hinum dreifðu svæðum sem hafa að mörgu leyti samið við sveitarfélög fyrir ófaglært fólk. Það hefur verið mikil togstreita annars vegar á milli BSRB-félaga og hins vegar hinna almennu félaga innan Alþýðusambandsins, ekki bara um að halda félögunum inni heldur ná í þá sitt á hvað hvort frá öðru. Það kæmi mér ekki á óvart, án þess að ég vilji nokkuð um það fullyrða, en vildi gjarnan beina því til hv. nefndar sem fær málið til umfjöllunar hvort þetta kynni að geta raskað eitthvað þeirri stöðu sem er í þessum málum frá því sem nú er. Mér er það ljóst að hún er ekki nægilega trygg milli þessara aðila eins og er og ekki væri það til hins betra ef henni væri raskað enn frekar frá því sem hún er núna.
    Ég held að nauðsynlegt væri að ræða við fulltrúa Alþýðusambandsins og kanna með hvaða augum þeir líta á þetta mál. Það er út af fyrir sig ágætt ef BSRB hefur samþykkt þessa hluti, en ég held að það þurfi að líta til fleiri átta en verið hefur í þessum efnum því að þetta kann að geta skarast á fleiri en einn eða tvo vegu. Það gætu t.d. hugsanlega komið upp tvenns konar eða þrenns konar samningsaðilar á vissum svæðum. Um þetta vil ég ekki fullyrða, en kannski hefur hæstv. fjmrh. látið skoða þetta mál, hvernig það horfir við félögum innan Alþýðusambandsins. Ef svo er ekki, þá vildi ég beina því til hv. nefndar að hún leitaði eftir áliti fulltrúa Alþýðusambandsins á því hvort og þá með hvaða hætti þetta mál kynni að hafa áhrif á áframhaldið er varðar samningsréttinn.