Almannatryggingar
Mánudaginn 11. desember 1989


     Sjávarútvegsráðherra (Halldór Ásgrímsson):
    Herra forseti. Það eru einkum tvær spurningar sem hér hafa komið fram. Í fyrsta lagi hvort ríkisstjórnin hafi áform um það að breyta reglum að því er varðar aðrar lýtalækningar. Það hafa verið uppi hugmyndir um það að gera breytingar í þeim efnum þannig að viðkomandi greiði hluta af þeim kostnaði sem af því hlýst, en það liggur ekki fyrir endanleg niðurstaða í því máli. Hér er að sjálfsögðu ekki um einfalt mat að ræða hvenær á að gera þá kröfu að viðkomandi aðili greiði hluta af þeim kostnaði. Hins vegar er talið nauðsynlegt við þær aðstæður sem nú eru að slík athugun fari fram og að því hefur verið unnið af heilbr.- og trmrn.
    Að því er varðar endurskoðun á almannatryggingalöggjöfinni, sem hv. 1. þm. Vestf. spurði hér um, þá hefur farið fram mjög viðamikið starf í þessari nefnd og hún haldið mjög marga fundi eins og gengur og gerist í svo umfangsmiklu starfi. Hins vegar liggur ekki niðurstaða þar fyrir. M.a. er beðið eftir útreikningum á ýmsum tillögum sem hafa komið fram í nefndinni, en ég vænti þess að betur sé hægt að upplýsa um málið í meðferð nefndar á þessu máli hér fyrir Alþingi.
    Ég get verið sammála hv. þm. með það að það er óheppilegt að vera að setja fram alveg ákveðnar dagsetningar í máli sem þessu en hann veit það jafn vel og ég að það er nú oft erfitt að áætla tíma nákvæmlega í þessu efni. Ég get hins vegar verið því algjörlega sammála að menn ættu að gera minna af því að ákveða alveg ákveðnar dagsetningar í málum sem þessum.
    En hitt er svo annað mál að það er mjög brýnt að þessi endurskoðun fari fram og það er mjög brýnt að draga úr kostnaði hins opinbera í þessum málaflokki eins og svo mörgum öðrum vegna þess að það hefur verið stöðug útgjaldahækkun í þessum málaflokki og ýmsum öðrum um margra ára skeið og ríkissjóður ræður ekki lengur við þessa miklu útgjaldahækkun. Menn eiga engan annan kost en að draga
úr útgjöldunum ef standa á við þau fyrirheit flestra ef ekki allra stjórnmálaflokka að auka ekki skattheimtu í landinu.
    Hins vegar er þetta aðeins brot af því sem gera þarf og því finnst mér að sjálfsögðu að skoða eigi allar þær hugmyndir sem upp koma, m.a. þá hugmynd hv. þm. Geirs Haarde að hver og einn greiði hluta af tannlækningakostnaði. Hitt er svo annað mál að það er nauðsynlegt að það sé nokkurt samræmi í greiðslu á slíkum kostnaði og öðrum kostnaði í heilbrigðiskerfinu en ég er honum sammála í því að það þarf að leita hér allra leiða. Og ég bendi á þá staðreynd að heilbr.- og trmrh. skipaði sérstaka nefnd, eins og vitnað er hér til í athugasemdum með frv., þann 22. ágúst sl. til þess að semja frv. til laga um skipulagða tannlæknaþjónustu. Honum var hins vegar falið að koma með tillögur að sparnaði í heilbrigðiskerfinu, þ.e. að því er varðar lyfjakostnað og sjúkratryggingarnar sem nemur 500 millj. kr. Hann

hefur komið með þær tillögur og mun að sjálfsögðu gera allt sem í hans valdi stendur til að tryggja framkvæmd þeirra. Ég get tekið undir það með hv. þm. Geir Haarde að það er ekki minna mál að hafa nokkra vissu fyrir því að slík framkvæmd sé möguleg og hægt sé að fylgja sparnaðartillögunum eftir.
    Herra forseti. Ég vil annars þakka fyrir góðar undirtektir við þetta mál og þann vilja þeirra sem tekið hafa til máls að taka til hendinni í sparnaði í ríkiskerfinu og vonandi verður sá vilji ríkur hjá öllum hv. þm. hér á Alþingi þó að stundum hafi nokkuð skort á þann vilja.