Stofnun og slit hjúskapar
Mánudaginn 11. desember 1989


     Dómsmálaráðherra (Óli Þ. Guðbjartsson):
    Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um breytingu á lögum um stofnun og slit hjúskapar, nr. 60 frá 29. maí 1972, sem hér er flutt á þskj. 52. Samkvæmt 44. gr. 1. mgr. laga nr. 60/1972, um stofnun og slit hjúskapar, verður hvorki skilnaður að borði og sæng né lögskilnaður veittur nema leitað hafi verið um sættir með hjónum og á sáttatilraun að hafa átt sér stað á síðustu sex mánuðum. Gegnir hér einu hvort skilnaðar er leitað hjá yfirvaldi eða dómsmrn. eða dómstólum.
    Samkvæmt þessu ákvæði leitar sáttanefnd um sættir ef bæði fara fram á það eða hvort heyrir til sínu trúfélagi. Endranær leitar prestur eða forstöðumaður trúfélags um sættir með þeim.
    Með lögum nr. 28/1981 voru sáttanefndir lagðar niður. Eftir það hafa hjón leitað til presta í þessu efni eða forstöðumanna trúfélaga. Dómsmrn. telur rétt að tveggja kosta sé völ, sátta hjá presti, eða forstöðumanni trúfélags, og svo hjá borgaralegu yfirvaldi. Sifjalaganefnd vinnur að heildarendurskoðun laga nr. 60/1972, en þar sem nokkurn tíma mun taka að ljúka því verki telur dómsmrn. nauðsyn bera til að breyta 1. mgr. 44. gr. laga nr. 60/1972 sem yrði þó aðeins til bráðabirgða. Hér er lagt til að yfirvald leiti um sættir í stað sáttanefnda, þ.e. bæjarfógetar og sýslumenn, yfirborgardómari og borgardómari í Reykjavík og lögreglustjórinn á Keflavíkurflugvelli, en auk þess eftir venju
og lögum héraðsdómarar þar sem þeir starfa og löglærðir fulltrúar þeirra embættismanna sem nefndir voru. Dómsmrn. fer ekki með störf yfirvalds í þessu sambandi.
    Að því er varðar heimild hjóna til að leita atbeina yfirvalds er þess sérstaklega getið að þetta eigi við ef annað eða bæði hjóna standi utan trúfélaga. Þar sem hér er aðeins stofnað til breytinga á 44. gr. laga nr. 60/1972 til bráðabirgða er frv. einskorðað við óhjákvæmilega breytingu á 1. mgr. greinarinnar. Bíður heildarendurskoðun greinarinnar eftir frv. sem sifjalaganefnd vinnur að svo sem áður greinir.
    Að lokinni þessari umræðu vildi ég fara þess á leit, hæstv. forseti, að málinu verði vísað til 2. umr. og hv. allshn.