Fjárlög 1990
Þriðjudaginn 12. desember 1989


     Alexander Stefánsson:
    Virðulegi forseti. Ég hlustaði með athygli á hv. 5. þm. Vesturl. ljúka máli sínu hér áðan og af því svo margir eru komnir hér í salinn sem ekki heyrðu hans ræðu, þá langar mig til að rifja aðeins upp. Hv. þm. sagði: Ekki fræðslustofur í kjördæmum, ekki skattstofur í kjördæmum, ekki svæðisstjórnir í kjördæmum, ekki framlag í Byggðasjóð, ekki framlag í Lánasjóð ísl. námsmanna, mennta dreifbýlisfólk gegnum skólasjónvarp og lánasjóðir yrðu ekki til og hætta svo útflutningsbótum. Mér þótti þetta hugvekja sem vekur athygli og af vinsemd við félaga minn í þingmannaliði Vesturl. þótti mér ástæða til að rifja þetta upp um leið og ég kem hér í ræðustól til þess að sem flestir heyri boðskapinn frá frjálslyndum hægrimönnum.
    Við þessa 2. umr. fjárlaga skal ég reyna að stytta mál mitt, hæstv. forseti. Ég vísa að sjálfsögðu til ítarlegrar ræðu formanns fjvn. sem mælti fyrir áliti meiri hl. nefndarinnar. Þar komu fram mjög miklar upplýsingar og skýringar sem ég trúi að einstaka þingmenn hafi ekki talið nægjanlegar en að mínu mati er þar að finna mjög ítarlegar upplýsingar. Ég vil um leið benda á að fjvn. hefur skilað hér till. sem eru í meira magni í raun og veru en nokkurn tímann hefur áður verið við afgreiðslu fjárlaga og eru skýringar við það sem kom fram í ræðu hv. formanns nefndarinnar.
    Ég vil byrja mál mitt með því að þakka meðnefndarmönnum fyrir ágætt samstarf í fjvn. við erfiðar aðstæður og einnig endurtaka það sem hér hefur komið fram, þakkir til starfsfólks og embættismanna sem þar hafa að máli staðið. Mér finnst nauðsynlegt að rifja hér upp aðstæður við þessa fjárlagagerð. Ég þarf ekki að endurtaka það sem kom fram við 1. umr. fjárlaga, það er skjalfest. Þar vakti ég athygli á ýmsum þáttum í fjárlagagerðinni sem mundu verða óvenjulegir. Mér finnst ástæða til að leggja áherslu á að við þessa yfirferð fjárlagafrv. eru óvenjulegar aðstæður. Aðstæður sem við margir hverjir höfum óskað eftir að fá fram í sambandi við meðferð fjárlaga. Þar á ég í fyrsta lagi við ríkisreikning fyrra árs sem hefur verið til meðferðar og er til meðferðar. Einnig það sem er nýtt í sögunni, eins og kom hér fram við 1. umr. fjárlaga, að nú í fyrsta sinni í áratugi liggja fyrir fjáraukalög fyrir yfirstandandi ár, þ.e. fyrir árið 1989, jafnhliða til afgreiðslu og meðferðar. Þetta gerir það að verkum að í fyrsta sinn hefur fjvn. Alþingis möguleika á því að sannreyna, eftir því sem mögulegt er, allar tölur í sambandi við gerð fjárlaga. Ég held að það fari ekki fram hjá neinum sem nærri þessum málum hefur komið að hér eru einhverjar þýðingarmestu framfarir í sambandi við afskipti Alþingis af fjárlagagerð sem komið hafa fram í áratugi.
    Hins vegar er alveg ljóst að þetta leiðir í ljós að fjvn. Alþingis á að
starfa allt árið. Hún hefur, með þessari breytingu sem er orðin á fjárlagakerfinu, möguleika til þess að grípa inn í og hafa bein afskipti af fjárlagagerðinni á

hverjum tíma sem hún hefur ekki haft miðað við núverandi þingsköp. Þetta er atriði sem ég vil endurtaka hér og leggja áherslu á miðað við það sem fram hefur komið nú á þessu hausti þegar fjvn. hóf störf sín í byrjun október. Og miðað við að hafa öll þessi mál undir höndum núna á tiltölulega skömmum tíma í meðferð fjárlagafrv. kemur einmitt þetta enn þá betur í ljós en nokkurn tímann áður. Þess vegna var það auðvitað augljóst mál að fjvn. þarf að skoða grunn fjárlaga, hvort þessi grunnur byggði á áætlunum, eins og gert hefur verið á undanförnum árum, þar sem tekið er tillit til hækkana milli ára og menn áætla gjarnan á auðveldan hátt slíkar tölur, eða á raunverulegum staðreyndum eins og ríkisreikningi fyrra árs og fjáraukalagafrv. sem við höfum undir höndum. Þess vegna er eðlilegt að menn rækju upp stór augu sumir, og eiga kannski eftir að verða meira hissa þegar kemur að 3. umr., þegar fram koma beinar hækkanir á rekstrarliðum í gegnum vinnu fjvn. eins og raunin er í því þskj. sem hér liggur fyrir með brtt. nefndarinnar.
    Fjárlagagerðin hefur með þessu móti tekið á sig nýjan svip sem stefnir að því að reyna að leiða fram raunveruleikann í þessum málum. Við höfðum sem sagt ríkisreikninginn, við höfðum fjáraukalögin til að kanna það sem er í fjárlagafrv. fyrir næsta ár og eðlilega var ljóst að við yrðum að kanna hvort þær tölur sem eru í fjárlagafrv. stæðust þessar staðreyndir eða ekki. Því miður hefur komið í ljós að grunnur fjárlagafrv. byggir ekki á raunverulegum staðreyndum í allt of mörgum tilfellum. Þess vegna verður að leiðrétta bæði fjárlagafrv. við 2. umr. og jafnhliða að gegnumlýsa fjáraukalagafrv. fyrir árið 1989 miklu meira en menn hafa e.t.v. gert sér grein fyrir áður. Og þetta sýnir ljóslega um leið gildi þess að herða reglur um meðferð fjárlaga, með því m.a. að draga úr heimildum til að greiða úr ríkissjóði umfram samþykkt fjárlög og ef nauðsyn krefur að þá verði að leggja fram fjáraukalög. Í þessari meðferð allri kemur að sjálfsögðu upp á borðið nauðsyn þess að endurskipuleggja fjárlagagerð þannig að það séu rammafjárlög til lengri tíma sem falla inn í þessa umgjörð sem hér hefur verið lýst.
    Mér finnst ástæða til að fagna því, þrátt fyrir alvöru þess að sú staðreynd liggi fyrir að það skuli þurfa að hækka fjárlagafrv. um hundruð milljóna.
Vegna þess að staðreyndirnar í sambandi við raunverulegar rekstrartölur, bæði frá ráðuneytum og stofnunum, eru þessar sem hér hafa komið fram, þá finnst mér nauðsynlegt að rifja hér upp að fjvn. hefur haft og hefur til meðferðar ákveðnar till. til úrbóta á þessu sviði. Ég á von á því að áður en margir dagar líði komi hér fram frv. um breytingar og þá þarf um leið að taka ákvörðun um breytingu á þingsköpum Alþingis þannig að fjvn. komi meira inn í þessi mál allt árið eins og ég áður sagði.
    Mér finnst ástæða til að geta þess í þessu sambandi, af því að það hefur komið fram áður bæði í umræðum hér á Alþingi og eins í fjölmiðlum, að á vegum Framsfl. starfaði nefnd þingmanna í sumar og

haust sem lagði fram ákveðnar tillögur í efnahagsmálum og fjármálum þjóðarinnar. Hluti af þeim tillögum sem samþykktar voru á miðstjórnarfundi flokksins gengu yfir á þetta svið. Til staðar hefur verið um nokkurt skeið ákveðin þáltill. um þetta mál, sem ég hef ekki viljað að lögð verði fram fyrr en sýnt væri hvort fjvn. afgreiðir þau lagafrv. sem gert er ráð fyrir, eftir vinnu nefndarinnar í haust, að komi fram.
    Mér finnst ástæða til, virðulegur forseti, að fá heimild til þess að lesa hér upp ákveðna liði í þessum tillögum sem skýra mál mitt e.t.v. betur. Þær hljóða þannig:
    ,,Starfsmarkmið ríkisstofnana verði endurmetin og þau markmið sem til grundvallar eru lögð við rekstur skilgreind að nýju og afnumin sjálfvirkni í útgjöldum. Þetta verði gert í samstarfi og samvinnu við forstöðumenn viðkomandi stofnana. Þannig verði hlutverk stofnana endurskilgreint og mat lagt á hagkvæmni í rekstri þeirra. Stofnanir verði sameinaðar, starfsemin einfölduð og hagræðingu komið á. Lagðar verði niður stofnanir þar sem færa má starfsemina undir aðrar stofnanir. Flestar ríkisstofnanir fái sjálfstæðan fjárhag og stjórnendur beri ábyrgð á að halda stofnuninni innan fjárlagarammans. Gerð verði úttekt á ýmsum þáttum í rekstri ríkisstofnana sem bjóða má út og haldið verði áfram athugun á sölu ríkisfyrirtækja. Verkaskipting starfsmanna verði ekki eins afmörkuð og nú er en gert er ráð fyrir tilfærslum innan stofnana eftir álagi. Stjórnkerfi ríkisstofnana verði gert virkara og við það miðað að stjórnendur þeirra geti lagað reksturinn að fjárlögum. Miðað verði við að fækka ríkisstarfsmönnum um 1,5--2% á næstu þremur árum.`` Og til að móta þetta starf, þessa hagræðingu og uppskurð í ríkiskerfinu, verði skipaðir vinnuhópar sem taki mið af þessum og öðrum atriðum sem fram koma til að ná þessu markmiði.
    Ég held að það sé alveg ljóst að sú mikla ofþensla sem er í okkar þjóðfélagi umfram þjóðartekjur gengur ekki öllu lengur. Það verður að kryfja þessi mál til mergjar og taka upp ný vinnubrögð. Um þetta mætti að sjálfsögðu færa fram ýmis rök og halda um það langa ræðu sem sýnir staðreyndir sem þjóðinni allri væri hollt að horfast í augu við. Ég held að það sé komið að því að ábyrg stjórnvöld taki upp aðrar skýringar og aðrar orðræður um þennan mikilvæga vanda sem okkar litla en háþróaða þjóðfélag á í raun og veru við að stríða.
    Það er ljóst að útgjöld eru komin langt fram úr tekjum ríkissjóðs og það er einfalt að vísa í staðreyndir þar um. Ef ég tek þróun ríkisútgjalda t.d. á ákveðnu árabili þá er það alveg ljóst. Við getum tekið árabilið 1984--1989. Ríkisútgjöld A-hluta ríkissjóðs sem hlutfall af vergri landsframleiðslu hafa aukist frá því að vera árið 1984 22,8% í 28,7% árið 1989. Aukningin nemur á verðlagi ársins 1989 hvorki meira né minna en 17 milljörðum kr. Og ef litið er á þá þætti sem aukning hefur orðið mest í kemur eftirfarandi í ljós:
    Vaxtagjöld hafa aukist um 6,6 milljarða, aukning í mannahaldi um 3 milljarða og félagsmál hafa aukist

um 7 milljarða kr. Aukning vaxtakostnaðar stafar fyrst og fremst af tvennu. Hið fyrra er að hallarekstur ríkissjóðs á undanförnum árum hefur leitt til aukinna vaxtagreiðslna bæði vegna fjárþarfar innan ársins og síðan vegna lántöku ríkisskulda. Hið síðara að ríkissjóður hefur yfirtekið skuldir orkugeirans t.d. sem nú eru áætlaðar um 10 milljarðar króna.
    Ef við skoðum í hverju aukning mannaflans er fólgin sem hægt er að heimfæra undir þetta dæmi um 3 milljarða kr., þá er aukningin á árabilinu 1984--1989 um 2000 manns, á árabilinu 1980--1989 er aukningin um 3300 manns. Hluti af þessari aukningu er vegna félagsmála, þ.e. málefna fatlaðra, sjúkrahúsa og nokkur vegna bættrar talningar á starfsmönnum. Ef við færum ofan í þessi mál og gerðum grein fyrir þeim á aðgengilegan hátt fyrir almenning í landinu er ég í engum vafa um að hægt er að fá næman skilning fyrir því hvernig þjóðfélag okkar stendur í þessum málum og um hvaða aðgerðir væri hægt að ná samkomulagi til að forða okkur frá því að stefna í ógöngur í sambandi við næstu framtíð.
    Ég held í þessu sambandi, þegar við tölum um fjárlög og fjármál yfirleitt og þær staðreyndir sem blasa víðs vegar við í efnahagskerfi þjóðarinnar, að ekki sé hægt að komast hjá því að undirstrika það sem raunar hefur komið hér fram áður í þessum umræðum, og að nokkru leyti í máli hv. formanns fjvn., að Alþingi sjálft á vissa sök á því hvernig þessi þensla er. Það er hægt að heimfæra það undir lagasetningu sem kemur frá Alþingi. Það ætti í raun og veru að vera regla að engin lög ætti að samþykkja frá Alþingi nema áður hafi verið
gerð nákvæm könnun á fjárhagsáhrifum slíkra laga. Og að fjármagn væri tryggt til að framkvæma lögin. Það sama ætti að gera í sambandi við breytingar á kjarasamningum. Það ætti strax eftir slíka samninga eða um leið og þeir eru gerðir að gera nákvæma útreikninga á því hvað þeir þýða í sambandi við þjóðarútgjöldin. Þetta kemur auðvitað á okkur hér þegar við erum að ræða um fjárlagagerðina og afgreiðslu fjárlaga. Núna fáum við áhrifin af kjarasamningum aftur á bak, sem ekki hafa legið fyrir, akkúrat núna á lokastigi fjárlaga fáum við langan lista um þessi áhrif sem ekki hafa verið reiknuð inn. Við þurfum að taka ákvörðun um hvort það á að hækka fjárlög til þess að framkvæma samþykkt lög frá Alþingi, sem alls ekki lá fyrir þegar lögin voru samþykkt. Ekki er um neitt annað að ræða í þessari stöðu en að fresta framkvæmd slíkra laga um eitt ár, tvö ár eða hvað það verður. Auðvitað er þetta til þess að skapa óróa í meðferð þessara mála en þetta eru staðreyndirnar.
    Ég vil segja það hér og nú að mér finnst að á sama hátt ætti að taka til hendi í sambandi við lánsfjárlög. Lánsfjárlögin eru slitin úr sambandi við fjárlögin sjálf. Þau fara í gegnum fjh.- og viðskn. Alþingis. Og hvað gerist? Innibyggðar í lánsfjárlögum eru ýmsar ákvarðanatökur sem eru ekki í takt við fjárlögin sjálf sem verið er að fjalla um og oftar en ella hafa valdið miklum erfiðleikum í sambandi við

meðferð fjármála þegar þau hafa verið samþykkt á þennan hátt sem ég gat um hér áðan. Sama er með 6. gr. fjárlaga. Þar þarf að taka upp ný vinnubrögð. Það er alveg ljóst að slík meðferð sem við höfum viðhaft hér á Alþingi á undanförnum árum gengur ekki upp. Í 6. gr. er alltaf mikið af opnum heimildum sem eru nýttar á þann hátt að menn standa frammi fyrir gífurlegum útgjöldum sem staðreynd, ef þess er ekki gætt að það þurfi að vera í takt við það markmið sem viðkomandi fjárlög hafa hverju sinni.
    Ég vil aðeins segja í sambandi við þessar hugleiðingar mínar að lokum að ég tel að þessi nýja aðstaða sem í fyrsta sinni í áratugi hefur komið upp í sambandi við meðferð fjárlaga, þ.e. fjáraukalögin jafnhliða fyrir yfirstandandi ár, tengist ákaflega vel því sem áður var búið að gera til framfara, þ.e. að Ríkisendurskoðun kemur nú undir Alþingi og getur verið virkur aðili að upplýsingum í sambandi við fjárlagameðferðina. Það hefur sennilega sýnt sig enn betur nú en áður hvaða gildi Ríkisendurskoðun hefur í sambandi því þessi mál öll. Hún tengist upplýsingum sem Fjárlaga- og hagsýslustofnun hefur og er vissulega mikilvægt að þessar tvær stofnanir séu virkar í fjárlagagerðinni.
    Virðulegur forseti. Ég ætla aðeins að koma hér að örfáum atriðum í sambandi við frv. sjálft og þá vil ég byrja á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Það er alveg augljóst mál að þessi mikla kerfisbreyting, ef það má orða það svo, að færa verkefni til sveitarfélaga og frá sveitarfélögum yfir á ríkið, hefur e.t.v. komið meira á óvart í kerfinu heldur en eðlilegt hefði verið. Þegar til þessa er litið þá er náttúrlega augljóst mál að í viðkomandi ráðuneytum hefur ekki verið tekist á við þessi mál eins og skyldi eftir gildistöku laganna á síðasta Alþingi. Það er alveg ljóst að það þyrfti að hefja miklu markvissari vinnu í sambandi við framkvæmd þessara laga heldur en staðreyndir sýna. Og þar eiga stjórnvöld ekki ein sök heldur einnig stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga eða forusta sveitarfélaganna í þessum málum. Það segir sig náttúrlega sjálft að slíkar stórbreytingar geta varla gerst á einum degi þegar komið er fram í desember, nema eitthvað bjáti á, þegar ekki hafa legið fyrir neinar reglugerðir eða ákvarðanir um það hvernig á þessum málum skyldi haldið.
    Ég tel í sjálfu sér að þetta þurfi kannski ekki að vera svona mikið vandamál því að auðvitað þarf að ganga í gegnum vissa erfiðleika í upphafi til að leysa svona mál. Það er ekkert við því að segja, en ég er alveg viss um að það hefur komið fram sem ég hafði efasemdir um þegar þessi lög voru til meðferðar hér á hv. Alþingi. Ég hafði efasemdir um að rétt hefði verið í þessari lotu að taka heilbrigðisþáttinn yfir í meðferð mála. Sá þáttur var miklu minna undirbúinn á vegum þeirra aðila sem fjölluðu um þessi mál þar sem gert var þá ráð fyrir að heilsugæslustöðvar yrðu áfram undir stjórn sveitarfélaganna og þau bæru á vissan hátt áfram ábyrgð á rekstrinum. En þessi meðferð hér á Alþingi varð samt staðreynd og er ekkert um það segja. Ég er í sjálfu sér ekkert hissa þó

að hæstv. fjmrh. sé hikandi nú þegar hann sér tölur eins og í sambandi við sjúkrasamlögin sem eru í dag miðað við ár komnar í rúmlega 2 milljarða og tölur í sambandi við yfirtöku heilsugæslustöðva sem eru á stærðargráðunni rúmlega 800 millj. Þetta er náttúrlega efnislega séð mikil breyting sem hlaut að valda því að staðan í þessum málum er allt önnur fyrir ríkissjóð. Eigi að síður er ekki ástæða til þess að gera ráð fyrir því að ríkissjóður falli frá því að standa við þau lög sem sett hafa verið. Ég tel að það sé útilokað að ganga aftur á bak í sambandi við þetta mál, en það verður eigi að síður að skoða framhaldið í sambandi við þær tölulegu staðreyndir sem hér liggja fyrir. Og guð hjálpi sveitarfélögunum ef þau hefðu verið áfram með greiðslur í sjúkrasamlögin miðað við þær gífurlegu hækkanir sem hafa orðið á þeim lið
undanfarið eitt og hálft ár og hann heldur áfram að hækka hröðum skrefum að sjálfsögðu.
    Það sem mér finnst aðalatriðið nú er að það sé eigi að síður staðið við þau verkaskipti sem lög gera ráð fyrir og uppgjörsmálið sé til lykta leitt á eðlilegan máta. Og eins og stendur í þeirri grein laganna sem miðað er við, þá eru það nokkuð skýrar línur að skv. 75. gr. laga um verkaskiptinguna er gert ráð fyrir því að ríkissjóður greiði sveitarfélögum og félagasamtökum framlög vegna áfallinna skuldbindinga ríkissjóðs um byggingu dagvistunarheimila, grunnskóla, íþróttamannvirkja og félagsheimila miðað við stöðu framkvæmda í árslok 1989. Við mat á þessum skuldbindingum ríkissjóðs skal miða við núgildandi lagaákvæði um hlutdeild ríkissjóðs í byggingarkostnaði fyrrgreindra mannvirkja, svo og sérsamninga sem gerðir hafa verið við einstök sveitarfélög um skólamannvirki. Þátttaka ríkissjóðs í framkvæmdum sem unnar eru á árinu 1989 skal þó miðuð við þau framlög sem eru á fjárlögum 1989. Þetta ákvæði er mjög skýrt og greinilegt en hins vegar er slæmt að um þetta skuli ekki vera komnar reglugerðir þannig að menn þurfi ekki að vera í vafa um hvað við er átt eins og virðist vera hjá mörgum aðilum.
    Fjvn. hefur, eins og kom fram í máli formanns hennar, tekið þetta mál til ítarlegrar skoðunar í samráði við ráðuneytið. Við höfum fengið öll þau gögn frá viðkomandi ráðuneyti sem um þessi mál þarf að hafa í höndum. Frá menntmrn. komu upplýsingar um verkstöðuna í öllum þessum málaflokkum og niðurstöðurnar liggja fyrir í töflum sem eru eins aðgengilegar og þær hafa verið á undanförnum árum við uppgjör á byggingarkostnaði þessara framkvæmda og fjárveiting undanfarinna ára hefur verið miðuð við skiptingu.
    Samkvæmt þessari verkstöðu skuldar ríkið grunnskólum 875 millj. og miðað við 1 / 4 af því, það deilist á fjögur ár, þá eru það 218 millj. sem grunnskólarnir eiga að fá. Íþróttasjóður er með 220 millj. miðað við verklok núna í árslok sem þýðir að framlag til sveitarfélaga úr Íþróttasjóði þarf að vera 55 millj. Félagsheimilasjóður skuldar félagsheimilum um 60 millj. kr. Það þýðir 15 millj. kr. framlag. Varðandi

dagvistunarstofnanir er skuld ríkisins við sveitarfélögin 176 millj. kr. sem gerir 45 millj. Þessi heildarskuldastaða miðað við verkþáttalok er því 1 milljarður 331 millj. sem þýðir að það sem vantar inn í fjárlögin til að standa við þetta uppgjör eru 333 millj. sem þurfa að koma inn við 3. umr. fjárlagafrv.
    Það er eitt atriði sem mér finnst ástæða til að nefna hér við 2. umr. vegna þess að margir þingmenn og sveitarstjórnarmenn spyrja mjög stíft núna um þessi mál og það eru atriði í sambandi við samninga. Það eru sjö sveitarfélög á Íslandi sem hafa notið þeirra forréttinda á undanförnum árum að hafa fastan greiðslusamning við ríkissjóð í sambandi við skólamannvirki. Þessi sveitarfélög eru Kópavogur, Bessastaðahreppur, Akranes, Reykholtsdalshreppur, þ.e. Hvanneyri og Kleppjárnsreykir, Stykkishólmshreppur, Ísafjörður og Akureyri. Ef þessir samningar ættu að vera í gildi og tækju ekki tillit til verkstöðu mannvirkja hjá þessum sveitarfélögum, þá þyrfti að greiða þessum sveitarfélögum á næsta ári 101 millj. kr. miðað við samningana. Hins vegar ef tekin er verkstaðan og ekki tekið tillit til samninganna að öðru leyti, þá þarf að greiða þessum sveitarfélögum 40,7 millj. kr. sem er innifalið í þeim tölum sem ég nefndi hér þaðan, þ.e. um 218 millj. Hins vegar kemur þetta þannig út að sum sveitarfélögin, sem þarna eiga hlut að máli, geta ekki fengið raunverulega neina fjárhæð í uppgjörið vegna þess að verkstaðan er núll eða það lítil að það dregur ekki vegna þess að sum þessi sveitarfélög ætluðu ekki að hefja áfanga sem er á bak við þennan samning fyrr en á næsta ári og treystu þá á að fá samninginn náttúrlega að fullu uppi borinn. Þess vegna þarf hér að reikna með því að ef þessir samningar falla úr gildi vegna verkaskiptalaganna, sem má gera ráð fyrir, þá komi upp sú staða að þessi sveitarfélög muni gera athugasemdir og krefjast þess að halda þeim rétti sem þau höfðu samkvæmt þessum samningum. Og það sem verra er og mér þykir ástæða til að nefna hér af því að það hefur valdið misskilningi líka, það eru aðeins örfá af þessum sveitarfélögum sem falla undir Jöfnunarsjóð sveitarfélaga hér eftir. Það eru ekki nema þau sveitarfélög sem eru með 2000 íbúa og færri þannig að það eru aðeins þrjú af þessum sjö sem geta fallið undir Jöfnunarsjóð hér eftir með fullum rétti, með 50% þátttöku í skólamannvirkjum, en hin ekki.
    Ég ætla ekki að hafa fleiri orð um þetta en vil aðeins geta þess hér vegna þeirra fyrirspurna sem alltaf eru að koma um þessi mál að það verður náttúrlega að fara eftir lögunum og ég vek athygli á því, hæstv. menntmrh., að það sem menn spyrja mest um núna og þarf að koma úrskurður um í sambandi við reglugerðina er það sem stendur hér: ,,Við mat á þessum skuldbindingum ríkissjóðs skal miða við núgildandi lagaákvæði um hlutdeild ríkissjóðs í byggingarkostnaði fyrrgreindra mannvirkja, svo og sérsamninga sem gerðir hafa verið við einstök sveitarfélög um skólamannvirki.`` Sumir leggja þann skilning í þessa setningu í þessari lagagrein að hún þýði það að samningarnir séu í gildi. En hitt er svo

aftur annað mál að fyrr segir í þessu að miða skuli við verkstöðu. Svo að ég taki t.d. Akranes sem er stór aðili að þessum samningi og
hefði átt að fá yfir 20 millj. á næsta ári, þá fær hann ekki nema 1100 þús. vegna þess að verkstaðan er þannig að þeir eru aðeins með hönnunarkostnað en ætla ekki að hefja framkvæmdir fyrr en e.t.v. á næsta ári. Ég vek þess vegna athygli á því að það þarf að skoða þetta mál, en fjárhæðin er óbreytt miðað við það að taka tillit eingöngu til verkstöðu, án þess að líta á samningana að öðru leyti, þá er það innifalið í þessum 330 millj. sem augljóslega þarf til þess að standa við skiptinguna á mismun við ráðuneytin eins og málið stendur í dag.
    Ég held að það sé líka ástæða til og hefði e.t.v. verið ástæða til hjá formanni fjvn. að nefna hér frekar ýmis atriði í sambandi við landshafnirnar. Það er náttúrlega alveg ljóst að lögin gera ráð fyrir að landshafnirnar séu ekki lengur til eftir 1. jan. nk. og þess vegna er ekki nokkur ástæða til að láta eina krónu í framkvæmdir við landshafnir á árinu 1990. En það þarf, og hefur komið í ljós, að vinnan við að semja við landshafnirnar og sveitarfélögin sem eiga að taka við hlutverki landshafna hefur verið ákaflega lítil, svo að ekki sé meira sagt, þannig að fulltrúar landshafnanna koma á fund fjvn. og segja að þeir eigi eftir að fá upplýsingar um það hvernig þeirra mál standa og þeir gera kröfu til þess að þeir taki ekki við höfnum þó að þær heiti landshafnir sem þeir geta hvorki komist inn í eða út úr með eðlilegum hætti með þann skipastól sem þangað sækir. Þar af leiðandi vildu þeir fá skýr svör um það hvaða framkvæmdir þeir fengju í sambandi við landshafnir áður en þetta gengur í gildi. Og það verður að segjast eins og er að það er nokkuð seint hugsað til þessara hluta, þar sem um er að ræða tugi milljóna, þegar aðeins eru nokkrar vikur eftir til áramóta. Þess vegna er það að fjvn. gerir ráð fyrir 50 millj. kr. til uppgjörs við landshafnir í fjáraukalögin 1989. Þannig yrði gengið í það að gera upp stöðu landshafnanna og ganga frá því dæmi bæði framkvæmdalega séð og rekstrarlega þannig að viðkomandi sveitarfélög gætu unað við þessi skipti.
    Þetta er mál sem var því miður ekki unnið eins og hefði átt að gera og tíminn hjá samgrn. alls ekki notaður á réttan hátt til að koma þessum málum þannig fyrir að ekki þyrfti að vera að ræða það á síðustu stundu í sambandi við meðferð fjárlaga og fjáraukalaga.
    Virðulegi forseti. Ég get í sjálfu sér farið að stytta mál mitt. Það er alveg ljóst að það er óvenjulegt nú, sem tengist því sem ég sagði í upphafi, hve mikið er af atriðum eftir til 3. umr. umfram B-hluta stofnanir. Ég vil þó í leiðinni áður en ég kem að því --- og ég vil að það komi hér fram í umræðunni um fjárlög --- ég vil fagna samstöðu í fjvn. um Háskóla Íslands, samstöðu um það að ekki verði skert sjálfsforræði Háskólans til ráðstöfunar á því aflafé sem hann hefur, þ.e. happdrættisfé, og ég tel að hafi reynst þjóðinni ómetanlega við uppbyggingu æðstu menntastofnunar á Íslandi sem þjóðin er að sjálfsögðu öll stolt af. Ég

held að mikilvægt sé að það náðist samstaða um lausn á þessu máli og hæstv. menntmrh. á heiður skilið fyrir að hafa tekið myndarlega á því miðað við þá aðstöðu sem upp var komin eftir að búið var að leggja mikla vinnu í það að átta sig á stöðu þessara mála. Það hefur einnig orðið til góðs fyrir Háskólann og þeir sem þar ráða ríkjum hafa sjálfsagt áttað sig betur eftir þessa yfirferð á því hlutverki og þeirri ábyrgð sem þeir raunverulega bera um leið á málefnum Háskólans.
    Mér finnst einnig ástæða til að fagna sérstaklega samtöðu í fjvn. um nýtt verkefni sem var ákveðið í sambandi við framhaldsskóla, þ.e. byggingu á sundlaug við íþróttamannvirkin á Laugarvatni. Þó að þetta sé ekki stór upphæð þá er þetta gífurlega mikilvægt mál því að ástandið þar er þannig á þessu fjölbreytta menntasetri sem þar er, bæði menntaskóla og íþróttakennaraskóla og héraðsskóla, að þar er engin sundlaug. Hún var byggð 1928 og hún er hrunin. Þetta er líka verðugt atriði í sambandi við uppbyggingu á íþróttamiðstöð sem er að rísa og er raunverulega að hluta til risin á Laugarvatni. Ég sé ástæðu til að fagna sérstaklega þeirri samstöðu sem náðist um þetta atriði. Einnig vil ég nefna annað af því að það komu fram einhverjar efasemdir hjá hv. 5. þm. Vesturl. Það tókst samstaða um það í nefndinni að auka fé til Íþróttasjóðs til úthlutunar á árinu 1990 um 100%, þ.e. í staðinn fyrir 7 millj. í fjárlagafrv. fær sá sjóður nú í tillögum nefndarinnar allrar 7 millj. í viðbót, þ.e. 14 millj. alls, sem er alla vega annað andlit á hlutverki þessa sjóðs heldur en hefði verið með 7 millj.
    Ég vil einnig þakka samstöðu í sambandi við Iðnskólann í Reykjavík sem er einn fjölmennasti skóli landsins en hann hefur orðið að búa við það árum saman að hafa allt að 40 ára gömul kennslutæki í sambandi við iðngreinar. Það náðist samstaða í nefndinni um það að sérmerkja Iðnskólanum 15 millj. í tækjakaup á árinu 1990 sem er ábyggilega mikilvægt fyrir framtíð skólans. En það hefur verið mjög gagnrýnt af þeim sem eru að læra prentiðn að tækjabúnaður skólans hefur ekki staðist þær kröfur sem nútíminn gerir til þessarar kennslu en vonandi verður úr því bætt með þessu.
    Það mætti, virðulegi forseti, tala mikið meira um þessi mál en ég skal reyna að stytta mál mitt. Ég ætla ekki að fjölyrða um Þjóðleikhúsið. Þar eru ýmsar
hugmyndir uppi sem vert væri að tala um hér. Ég tel ástæðu til að þær tillögur verði vel skoðaðar. Frá mínum bæjardyrum séð er útilokað að ljúka viðgerðum á Þjóðleikhúsinu innan dyra, sem óhjákvæmilegar eru, á nokkrum mánuðum. Það tekur a.m.k. eitt til eitt og hálft ár að gera Þjóðleikhúsið að innan að því musteri sem það á skilið að vera og verður að vera. Þó að ekki sé tekið tillit til þeirra gífurlegu umbóta sem vissir aðilar hafa lagt til, þá hlýtur að vera sjálfsagt mál að gera þetta myndarlega. En alla vega þarf að átta sig á því hvort þá sé eðlilegt að halda uppi rekstri Þjóðleikhússins eins og ekkert hafi í skorist og gera það annars staðar, utan veggja þess. Það er mál sem þarf að taka afstöðu til.

    Í sambandi við landbúnaðarmálin vil ég aðeins nefna það hér, af því að þau hafa verið til umræðu hér áður við fjárlagagerð á sl. ári, að það verður náttúrlega ekki lengur hjá því komist að gera þau mál hreint upp. Og ég vil aðeins endurtaka það að við samþykktum ný jarðræktarlög og ný búfjárræktarlög á sl. vori á Alþingi með því fororði að ná nýjum tökum á þessum málum og um leið var ákveðið að gera upp eldri skuldir samkvæmt eldri lögum og koma þessum málum í það form að ekki þyrfti sífellt að vera að deila um það hér á hv. Alþingi við fjárlagagerð eða á annan hátt hvað væri útistandandi, hvað væri óbreytt o.s.frv. Ég treysti á það að við 3. umr. takist að ganga frá þessum málum eins og samkomulag hefur verið um og í samræmi við ákvæði í gildandi lánsfjárlögum þannig að ekki verði lengur vafi á því hvernig þessi mál standa. Við höfum fengið í hendur í fjvn. fyrir 3. umr. nákvæmlega skuldastöðuna í þessum málum og það er ekki ágreiningur lengur í sambandi við jarðræktarframlögin og búfjárræktarlögin. Vegna ársins 1987 eru enn samkvæmt jarðræktarframlögum 8 millj. ógreiddar og búfjárræktarlögum 37 millj. eða samtals 45 millj. Þessi fjárhæð verður öll að fara eins og hún leggur sig inn í fjáraukalögin fyrir 1989. Síðan eru jarðræktarframlögin 1988 162 millj. og búfjárræktarframlög 60 millj. eða samtals 222 millj. kr. Og 1989, sem er áætlað, jarðræktarframlög 125 og búfjárræktarframlög 60 eða 185 millj. kr.
    Hér þarf að ganga frá málum þannig að gerður verði um það samningur e.t.v. með skuldabréfaútgáfu sem tryggir uppgjör á þessum ógreiddu framlögum á næstu tveimur til þremur árum, hvernig sem það verður endanlega. En við skulum bara fá þetta í hendur að það sé ekki ágreiningur um að gera þetta upp. Ég held síðan að vegna ársins 1990, sem fer eftir nýjum búfjárræktar- og jarðræktarlögum, verði að liggja fyrir hvernig uppgjör á þeim fjárhæðum á að fara fram en ég þykist sjá í þessu dæmi að það þarf að hækka framlagið í fjárlögum 1990 til að standa við þessi ákvæði.
    Virðulegi forseti. Ég held að ég láti hér staðar numið. Það hefði verið ástæða til að fara yfir fleiri þætti, eins og t.d. húsnæðismál, vegagerðarmál og annað slíkt, en ég ætla að sleppa því við þessa umræðu vegna þess að við eigum eftir að koma að þessum málum við 3. umr. og vinna í þeim á milli umræðna.
    En í sambandi við húsnæðismálin vil ég aðeins endurtaka að það vakti furðu mína sem kom hér fram í ræðu hv. 18. þm. Reykv. í sambandi við vaxtabætur o.fl., þar sem hún upplýsti að milliþinganefndin, sem átti að gera tillögur eða taka ákvarðanir í sambandi við húsbréfin og þar með vaxtabæturnar og átti að skila af sér áliti til Alþingis í þingbyrjun til þess að Alþingi gæti ákveðið hvort gera þyrfti breytingar á lögunum miðað við þær rannsóknir sem viðkomandi nefnd hafði átt að gera eða breytingar á öðrum þáttum, hefur ekki starfað nema mjög lítið og kom aldrei með neinar tölur um þetta mál sem vissulega

hefði getað skýrt hér mál í meðferð sem ganga einnig inn á fjárlögin. Þetta er nokkuð sem hefði verið hægt að taka sem sérstakan þátt í fjárlagaumræðunni einni. Ég geri það ekki hér en ég minni aðeins á það að ekki hefur verið staðið við það sem var ákveðið í sambandi við þetta mál á sl. vori.
    Virðulegi forseti. Ég vil svo endurtaka þakkir mínar til meðnefndarmanna fyrir það mikla starf sem við höfum átt saman og vona að okkur takist í framhaldinu að gera fjárlög fyrir árið 1990, miðað við allar þær upplýsingar sem við höfum, raunhæfari en áður hefur tekist.