Fjárlög 1990
Þriðjudaginn 12. desember 1989


     Danfríður Skarphéðinsdóttir (um þingsköp) ;
    Virðulegi forseti. Vegna tilkynningar hér á fundinum fyrr í dag um að hér yrði gert hlé kl. 7 hafði ég, sem er víst næst á mælendaskrá að því er mér skilst, gert ráðstafanir og búist við að þessi tími væri laus. Ég vil því einnig mælast til þess að það hlé sem fyrirhugað var verði gert núna.