Forseti (Guðrún Helgadóttir):
Forseti mun nú taka sér fimm mínútna hlé til að fá úr þessu skorið. --- [Fundarhlé.]
Forseti vill fyrst upplýsa að sú ráðgjöf sem hv. þm. hafa veitt forseta nú var algjörlega óþörf. Forseti fór hárrétt að að mati vísustu manna. Áður en brtt. við umræddan lið eru bornar upp hefur þingmaður óskað eftir að atkvæði falli um einn lið í sömu grein í fjárlagafrv. og vitaskuld bar að bera hann upp og verður það nú gert.