Fjárlög 1990
Miðvikudaginn 13. desember 1989


     Þorsteinn Pálsson:
    Frú forseti. Sá útgjaldaauki sem hér er verið að mæla fyrir um er fyrst og fremst kominn til vegna þess að hæstv. ríkisstjórn sá ástæðu til að kaupa fimm atkvæði til viðbótar hér í þinginu. Sjálfstæðismenn eru andvígir því að stofna nýtt ráðuneyti, telja fremur vera þörf á fækkun ráðuneyta og sameiningu ráðuneyta. Þeir hafa lagt fram frv. um stjórnskipulega meðferð umhverfismála sem mælir fyrir markvissari yfirstjórn umhverfismála og kostnaðarminni. Fyrir þá sök segi ég nei.