Geir H. Haarde:
Virðulegi forseti. Það er rétt og eðlilegt að kaupa dagblöð fyrir sjúkrastofnanir ríkisins eins og tíðkast hefur árum saman, en það er rangt að gera það með þessum hætti. Það er rangt að veita sérstaka heimild á fjárlögum með þessum hætti. Það sem er rétt að gera er að taka þennan kostnað inn á almennan rekstur þessara stofnana eins og allan annan kostnað. Þess vegna er þessi liður óþarfur. Hann er vitleysa. Það hefur verið margbent á þetta hér í þinginu áður. Það var gert hér á síðasta ári og ég undrast tregðuna hjá þeim sem þessum málum ráða í fjmrn. og hjá hv. fjvn. að kippa þessum málum ekki í það eðlilega horf sem öllum á að vera ljóst hvert er. Ég segi nei.