Tekjustofnar sveitarfélaga
Miðvikudaginn 13. desember 1989


     Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir):
    Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 91/1989. Í frv. þessu eru lagðar til nokkrar breytingar, ekki efnislegar heldur tæknilegar, á lögum um tekjustofna sveitarfélaga. Breytingarnar í 1. og 2. gr. eru eftir ósk Fasteignamats ríkisins. Þar er lagt til að einfalda meðferð ágreiningsmála að því er varðar gjaldstofn fasteignaskatts með því að fela Fasteignamati ríkisins að úrskurða í slíkum málum á fyrsta stigi í stað yfirfasteignamatsnefndar eins og nú er.
    Breytingarnar sem lagðar eru til í 3.--5. gr. eru á aðstöðugjaldskafla laganna. Markmiðið með þeim er að koma í veg fyrir ágreining við framkvæmd laganna. Þessar breytingar eru gerðar í samráði við embætti ríkisskattstjóra.
    Í 1. gr. er lagt til að í stað orðsins ,,matsverð`` komi orðið álagningarstofn. Breyting þessi er talin eðlileg með hliðsjón af ákvæðum 3. gr. laganna þar sem er að finna nýmæli um stofn til álagningar fasteignaskatts af húsum og öðrum mannvirkjum um allt land.
    Í 2. gr. er lögð til sú breyting frá gildandi lögum að fela Fasteignamati ríkisins að úrskurða í ágreiningsmálum sem varða gjaldstofn skv. 3. gr. þeirra. Ætlunin með þessu er sú að einfalda meðferð slíkra ágreiningsmála. Úrskurði þessum megi þó ætíð skjóta til yfirfasteignamatsnefndar.
    Í 3. gr. er lagt til að tekið verði upp skýrara og ákveðnara orðalag í 34. gr. til að koma í veg fyrir ágreining við framkvæmd laganna.
    Í 4. gr. eru lagðar til nákvæmari tilvitnanir en eru í núgildandi ákvæði.
    Í 5. gr. er í raun verið að leiðrétta prentvillu sem verið hefur í tekjustofnalögunum allt frá 1980, en allir úrskurðir varðandi þetta atriði hafa að sjálfsögðu verið felldir á grundvelli upphaflegs lagatexta.
    Virðulegi forseti. Þó hér sé nánast aðeins um tæknilegar breytingar að ræða er mikilvægt að þær nái fram að ganga og taki gildi um næstu áramót til að auðvelda framkvæmd laganna um tekjustofna sveitarfélaga.
    Ég legg til að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til 2. umr. og hv. félmn.