Frsm. minni hl. fjh.- og viðskn. (Friðrik Sophusson):
Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir minnihlutanefndaráliti hv. fjh.- og viðskn., en ásamt mér skipar þann minni hl. hv. 1. þm. Vestf. Matthías Bjarnason. Í nál. segir, með leyfi forseta:
,,Samkvæmt frv. verður gjalddögum launaskatts fjölgað og greiðslum til ríkissjóðs flýtt. Þess vegna vex fjárbinding þeirra fyrirtækja sem greiða launaskatt. Hér er því á ferðinni enn eitt frv. sem ætlað er að bæta stöðu ríkissjóðs á kostnað atvinnulífsins.
Ríkisstjórninni hefði verið nær að endurskoða lögin um launaskatt með tilliti til þeirrar mismununar sem fyrirtækin þurfa að búa við.
Minni hl. leggur til að frv. verði fellt.``
Það kom fram hjá hv. 1. þm. Norðurl. v., frsm. meiri hl. nefndarinnar, að í athugasemdum við lagafrv. segir að gera megi ráð fyrir að þessi breyting bæti greiðslustöðu ríkissjóðs á næsta ári um 200 millj. kr. Jafnframt er sagt í athugasemdunum að þessi breyting sé mikilvægt skref í þá átt að samræma stofn og innheimtukerfi launaskatts við stofn og innheimtukerfi staðgreiðslu.
Minni hl. sýnist það augljóst að batni greiðslustaða ríkissjóðs á næsta ári um 200 millj. kr. hljóti það að gerast vegna þess að greiðslustaða fyrirtækjanna versni að sama skapi, enda gengur dæmið ekki upp öðruvísi. Minni hl. hefur jafnframt fullan skilning á því að samræma þurfi innheimtukerfi launaskatts og innheimtukerfi staðgreiðslu, en sé hins vegar litið til þess að launaskattur leggst aðeins á sum fyrirtæki og ekki önnur, þ.e. launaskattur er lagður með mismunandi hætti á atvinnugreinarnar, sætir það furðu að hæstv. ríkisstjórn skuli ekki byrja á því að samræma launaskattinn á atvinnugreinunum áður en farið er að stunda samræmingarstörf fyrir ríkissjóð einan. Okkur sýnist sem hugsun ríkisvaldsins nái aðeins til hagsmuna ríkisins. Við teljum að nær hefði verið fyrir hæstv. ríkisstjórn að samræma fyrst skattinn á milli
fyrirtækja og síðan hefði verið hægt að ræða um það hvernig innheimta eigi skattinn af fyrirtækjunum. Þess skal jafnframt getið að hér er ekki um að ræða skatt sem innheimtur er af starfsfólki eða af öðrum og þess vegna er staðgreiðslukerfið með allt öðrum hætti. Þegar fyrirtæki þurfa að standa skil á hluta af launum starfsmanna eru fyrirtækin í því hlutverki að heimta innskatt af einstaklingum og greiða til ríkisins. Allt öðru máli gegnir um launaskattinn sem er veltuskattur á laun og leggst með mismunandi hætti á einstök fyrirtæki. Af þessari ástæðu, virðulegur forseti, finnst okkur þessi svokallaða samræming vera ótímabær og ósanngjörn. Okkur finnst sem hæstv. ríkisstjórn sé enn á ný að ráðast að atvinnulífinu í landinu og ætti þó engum að vera kunnugra um að rekstur fyrirtækjanna gengur ekki mjög vel um þessar mundir og allra síst þeirra fyrirtækja sem nú borga launaskatt. Ég óska eftir því að hæstv. fjmrh. taki til máls hér við 2. umr. um þetta mál og geri þingheimi grein fyrir hvort það
sé hugmynd ríkisstjórnarinnar á næstunni, fyrst hún hefur þegar hafið þessi samræmingarstörf í innheimtunni, að samræma launaskattinn á milli atvinnugreinanna.
Ég vil að lokum láta þess getið að í nefndinni kom fram það sjónarmið af hálfu fulltrúa úr stjórnarliðinu að ástæðulaust væri að eltast við þessa breytingu á lögum með tilliti til þess að þau fyrirtæki sem þarna ættu í hlut væru í miklum rekstrarörðugleikum og þess vegna óþarfi að vera að bæta greiðslustöðu ríkissjóðs um 200 millj. á næsta ári, sem auðvitað gerist aðeins einu sinni, sem eingöngu væri gert til þess að hrella þá sem stæðu í erfiðum rekstri þessara fyrirtækja.
Því miður virðist hæstv. ríkisstjórn ekki hafa tekið mark á þessum ummælum og þessari orðsendingu og óskaði eftir að málið fengi afgeiðslu nú á þessu þingi. Við sem skipum minni hl. teljum það ótímabært, teljum að réttara hefði verið að leiðrétta fyrst misræmið í launaskattsálagningunni á milli einstakra greina atvinnulífsins og síðan hefði verið ástæða til að samræma innheimtukerfið. Og enn á ný ítreka ég það að hér er ekki verið að heimta innskatt af öðrum eins og þegar um staðgreiðsluna er að ræða heldur er þetta veltuskattur á fyrirtækin sjálf.
Við leggjum þess vegna til, virðulegi forseti, að frv. verði fellt.