Launaskattur
Miðvikudaginn 13. desember 1989


     Frsm. minni hl. fjh.- og viðskn. (Friðrik Sophusson):
    Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að svara þessari fyrirspurn sem til hans var beint og fagna því að hæstv. ríkisstjórn skuli ætla sér að leggja fram tillögur væntanlega í frumvarpsformi um samræmingu á álagningu launaskatts þannig að ekki komi fram munur á fyrirtækjum sem starfa í mismunandi atvinnugreinum. Ég harma það hins vegar að hæstv. ríkisstjórn og hæstv. ráðherra skuli þrátt fyrir þetta ætla sér að breyta innheimtuaðferðinni með þeim hætti að sá munur sem nú er fyrir hendi á fyrirtækjum í mismunandi greinum hlýtur að vaxa frá því sem nú gildir þar sem skatturinn er aðeins innheimtur á tveggja mánaða fresti nú en verður innheimtur mánaðarlega á næsta ári verði frv. samþykkt. Ég hélt satt að segja að hæstv. ríkisstjórn hefði séð að sér og farið hefði verið að tilmælum sem komu m.a. frá hv. stjórnarþingmönnum. En svo virðist ekki hafa verið og það liggur fyrir nú að hæstv. ríkisstjórn ætlar að auka enn á þann mun sem fyrir hendi er samkvæmt gildandi lögum.