Skráning og meðferð persónuupplýsinga
Miðvikudaginn 13. desember 1989


     Kristín Einarsdóttir:
    Virðulegi forseti. Í Ed. stóð fulltrúi Kvennalistans í allshn. að þeim brtt. og því nál. sem nefndin gaf út við afgreiðslu þessa frv. frá Ed. Í Nd. á Kvennalistinn ekki fulltrúa í allshn. þannig að okkur hefur ekki gefist tækifæri í þessari deild til að fylgjast með meðferð nefndarinnar á málinu og þar af leiðandi ekki fjalla um þær brtt. eða tillögur sem ég býst við að hv. þm. Ingi Björn Albertsson, 5. þm. Vesturl., hafi kynnt í nefndinni. Þar sem ljóst er að við hljótum öll að stefna að því að vernda rétt einstaklingsins fer maður að velta fyrir sér hvort margar þær ábendingar og brtt. sem hv. 5. þm. Vesturl. hefur nú gert grein fyrir þurfi ekki frekari athugunar við.
    Ég stöðvast við 1. brtt. á þskj. 295 þar sem talað er um í 4. gr. frv. að tölvunefnd geti heimilað skráningu upplýsinga sem þó er kveðið á um að óheimilt sé að skrá. Það hlýtur að vera mjög mikilvægt að einstaklingurinn sé nokkuð öruggur um að ekki séu skráðar persónulegar upplýsingar. Ef farið er að athuga nánar á bls. 19 í athugasemdum við frv. kemur í ljós að í gildandi lögum er ekki tekið skýrt fram hvaða heimildir tölvunefnd hefur til undanþágu, en í athugasemdum með frv. stendur, með leyfi forseta: ,,Tölvunefnd hefur frá fyrstu tíð túlkað vald sitt skv. VIII. kafla gildandi laga svo að hún geti veitt slíkar undanþágur.`` Á þessu sést að tölvunefnd hefur nú þegar veitt undanþágur og mig langaði til að spyrja formann nefndarinnar, eða dómsmrh. eftir atvikum, að því í hvaða tilvikum tölvunefnd hefur veitt undanþágur og þá í hvaða tilfellum miðað er við að undanþágur verði veittar. Hér stendur í þessari grein, síðustu mgr. 4. gr., með leyfi forseta: ,,... ef ótvírætt er að skráningaraðila sé brýn nauðsyn vegna starfsemi sinnar að skrá upplýsingar.`` Þetta þarfnast nánari skýringa að því er ég tel og mér finnst þær ekki koma nægjanlega fram í athugasemdum við frv.
    Sama gildir um 5. gr. Í 2. mgr. 5. gr. er talað um að tölvunefnd sé heimilt að skýra frá upplýsingum, með leyfi forseta orðrétt: ,,... ef sýnt er fram á að brýnir almannahagsmunir eða hagsmunir einstaklinga, þar með taldir hagsmunir hins skráða,,, --- það er kannski eðlilegt að fara eftir hagsmunum hins skráða --- ,,krefjist þess.`` Og síðan kemur: ,,Skal þá ótvírætt að þörfin á að fá upplýsingarnar vegi þyngra en tillitið til þess að þeim sé haldið leyndum.`` Þetta þarf að vera mjög takmarkað vald, heimild tölvunefndar hlýtur að vera mjög takmörkuð þarna og mig langar enn að spyrja í hvaða tilvikum þetta hafi verið leyft hingað til, af því að mér skilst að það hafi verið gert, og hvernig reglurnar muni þá hugsanlega líta út. Ég tel að eftir orðanna hljóðan sé heimildin þarna mjög rúm. Þó svo talað sé um að það eigi að vera mjög takmarkað vald sem þessi tölvunefnd hefur til að veita heimildir til undanþága, geti það verið mjög misjafnt eftir þeim einstaklingum sem þarna eru ef reglurnar eru ekki skýrar.
    Í greinargerð eða athugasemdum með frv. er vitnað í reglur í Danmörku, en ekki er skýrt nánar hvernig

þær eru né hvort þær hafi verið notaðar hér.
    Ég tel ekki ástæðu til þess, virðulegi forseti, að fara yfir fleiri af þeim brtt. við þetta frv. sem hv. 5. þm. Vesturl. hefur gert grein fyrir. Sumar þeirra sem hann talaði um er ég ekki alveg eins sátt við. Ég geri mér grein fyrir því að nauðsynlegt getur verið að hafa einhverjar undanþáguheimildir en mér finnst heimildir eins og þær líta út í frv. núna allt of rúmar.
    Mig langaði að geta brtt. varðandi skoðanakannanir, þ.e. niðurfellingu á 24. gr. frv. Eins og þingmenn vita eru hvorki til lög né reglur svo að teljandi sé um markaðs- og skoðanakannanir en þyrftu þó svo sannarlega að vera til, ég tek undir það. En ég tel að sé betra að hafa eitthvað örlítið um þau mál í þessu frv. meðan ekki er til löggjöf um þau í landinu. En það breytir ekki því að ég tel nauðsynlegt að sett verði lög um skoðanakannanir eins og reyndar oft hefur verið talað um. M.a. hefur verið samþykkt tillaga hér á Alþingi, þáltill. að mig minnir á síðasta löggjafarþingi, um að svo skuli gert og væri fróðlegt að vita hvað þeirri lagasetningu líður.
    Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að gera þetta frv. frekar að umtalsefni, en ég finn fyrir því að ég hef ekki haft tækifæri til þess að fylgjast með störfum nefndarinnar og vildi þar af leiðandi fá svar við spurningum mínum annaðhvort frá formanni nefndarinnar eða hæstv. dómsmrh., ef upplýsingarnar liggja fyrir.