Skráning og meðferð persónuupplýsinga
Miðvikudaginn 13. desember 1989


     Friðjón Þórðarson:
    Herra forseti. Fyrstu lög um skráningu og meðferð persónuupplýsinga voru sett árið 1981 og voru síðan endurskoðuð 1985 og aftur nú. Áður höfðu verið fluttar tillögur um þetta efni sem voru skoðaðar og kannaðar. Það var sem sé augljóst að eitthvað þurfti að gera til að vernda einstaklinginn á tækni- og tölvuöld, eins og það er orðað. Ég man eftir því að ég mætti á þing dómsmálaráðherra Evrópu, ég held árið 1980, í Rómaborg. Þá voru tvö meginviðfangsefni sem þingið fjallaði um:
    Í fyrsta lagi hvernig ætti að hraða almennri meðferð dómsmála. Þetta er hið eilífa mál sem aldrei hefur verið leitt til lykta til fulls en alltaf er á dagskrá og alltaf er reynt að lagfæra og bæta.
    Í öðru lagi hvernig eigi að vernda einstaklinginn á tækni- og tölvuöld þegar hægt er að skrá um mann alls konar upplýsingar með aðstoð tækninnar og allt að því lesa hugsanir manna. Síðan hafa lög verið sett um þessi efni í flestum eða öllum Evrópulöndum a.m.k., að ég ætla. Við völdum þá leið hér á landi að setja tiltölulega einfalda löggjöf, gæta þess að hún yrði ekki of margbrotin og erfið í meðförum. Og ég held að við höfum valið hina réttu leið. Það er afskaplega vandasamt að setja lagaákvæði um þetta efni svo að þau verði ekki of flókin og vefjist fyrir mönnum. Það var ákveðið að hafa þriggja manna tölvunefnd og þrjá til vara. Sá háttur hefur verið hafður á, að ég ætla öll þessi ár, að varamenn hafa verið kvaddir á alla fundi, þannig að um þessi efni hafa fjallað sex menn, þrír aðalmenn og þrír varamenn. Nefndin hefur starfað í húsnæði dómsmrn.
    Ég hygg að þessi mál hafi þróast á mjög heppilegan hátt hjá okkur, svona hægt og rólega. Nefndin hefur unnið sín störf í kyrrþey og ekki lent í neinum sérstökum vanda sem ég man eftir. Hún hefur gefið út bók á ári hverju yfir þau mál sem hafa verið til meðferðar og í heildina held ég að þessi mál hafi þróast mjög vel hér á landi.
    Auðvitað eru lögin svo endurbætt að fenginni reynslu og hér er frv. til meðferðar sem nýlega hefur verið gengið frá og verður að öðlast gildi fyrir árslok þar sem núgildandi lög endast ekki lengur. Ný lög verða að taka gildi 1. jan. 1990.
    Ég hef að vísu ekki kynnt mér þetta frv. nægilega vel frekar en annað í þessum jólaönnum, en þó litið yfir það. Ég ætla að það sé vel úr garði gert, enda mjög vandaðir og góðir menn sem að þessum málum vinna. Það get ég borið um.
    Hv. 5. þm. Vesturl. hefur borið allmargar brtt. fram við þetta frv. Ég hygg satt að segja að margar af þessum tillögum séu byggðar á nokkrum misskilningi. Hann tók réttilega fram að flestar þeirra gengju í þá veru að vernda rétt einstaklingsins. Ég efast ekki um að þessi hugsun vaki fyrir honum og þetta er tilgangur frv. tvímælalaust, að vernda einstaklinginn og sjá til þess að hann sé ekki alveg gegnumlýstur upp við vegg hvenær sem einhverjum dettur það í hug og skráðar um hann alls konar upplýsingar. Þetta er

tvímælalaust rétt. En til þess að geta gert þetta þarf löggjöfin að vera þannig saman sett að tölvunefnd sérstaklega hafi víðtækar heimildir. Það er ekki þar með sagt að hún þurfi að nota þessar heimildir. Það er eitt að hafa skráða heimild í lögum eða annars staðar og annað að nota hana, enda er mér ekki kunnugt um að tölvunefnd hafi ofnotað þær heimildir sem í lögunum felast. Þess vegna verð ég að segja að ég er ekki beint hrifinn af þessum brtt. flestum þó ég viti að hv. flm. gengur gott til. Hann er auðvitað vísasti maður til þess að ganga fram í því að vernda rétt einstaklingsins, greiða götu hans.
    Það er auðvitað sjálfsagt að skoða þessar tillögur nánar og sumt er að sjálfsögðu rétt. Það er erfitt að setja lög um þetta efni svo öllum líki. Það er t.d. alveg óþarfi að tala um lækna og tannlækna í sömu andrá. Ég er alveg sammála hv. 5. þm. Vesturl. að því leyti og einnig tel ég að rétt sé að halda áfram að sníða þessari nefnd nokkuð þröngan stakk. Verkefni hennar og vinna er þess eðlis að það er hægt að þenja þetta út endalaust og þess verðum við að gæta og sporna gegn í okkar fámenna þjóðfélagi. Þess vegna er ég líka sammála honum um að rétt sé að hafa ritara nefndarinnar innan veggja dóms- og kirkjumálaráðuneytisins og að nefndin sé þar til húsa ef eitthvert herbergi er aflögu.
    Ég verð að lýsa því yfir, án þess að ætla að fara að gera þetta að lengra umræðuefni, að ég mun styðja þetta frv. í öllum meginatriðum, þó að ég athugi vinsamlega örfáar af brtt. hv. 5. þm. Vesturl.