Bifreiðagjald
Miðvikudaginn 13. desember 1989


     Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson):
    Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um breytingu á lögum um bifreiðagjald. Í frv. felst sú breyting að gert er ráð fyrir sérstakri hækkun á bifreiðagjaldi umfram almenna verðuppfærslu samkvæmt heimild í gildandi lögum.
    Í gildandi lögum er heimilt að hækka bifreiðagjald í réttu hlutfalli við breytingar á vísitölu byggingarkostnaðar, og hefði sú heimild haft í för með sér að bifreiðagjaldið mundi hækka nokkuð á næsta ári. Í frv. er hins vegar gert ráð fyrir að hækka gjaldið meira, og er það í samræmi við þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar þegar fjárlagafrv. var lagt fram og þegar ákvörðun var tekin um að breyta prósenthlutfalli í virðisaukaskatti og afla tekna á móti eftir öðrum leiðum, að sú hækkun, sem hér er lögð til, veiti ríkinu 550 millj. kr. viðbótartekjur fram yfir það sem ella hefði orðið.
    Á næsta ári er hins vegar gert ráð fyrir að heildartekjur ríkissjóðs af ýmsum öðrum tekjustofnum tengdum umferðinni, eins og t.d. bensíngjaldi, yrðu minni en heimild væri til samkvæmt lögum. Þess vegna er með frv. verið að breyta nokkuð hlutföllum milli þeirra tekjustofna sem tengjast umferðinni.
    Í upphaflegri áætlun var ætlunin að greina þetta gjald í tvennt, annars vegar hið hefðbundna bifreiðagjald og hins vegar sérstakt mengunargjald á bifreiðar sem væri greitt með nokkrum öðrum hætti en hið hefðbundna bifreiðagjald. Röksemdin var sú að víða um lönd er að verða sú breyting í
skattamálum að þeir sem valda mengun eru látnir greiða sérstaklega fyrir það og er slíkt skoðað sem mikilvægt tæki til þess að draga úr áhrifum mengunarvalda í daglegu lífi. Þessi breyting á skattkerfi í okkar heimshluta sem á ensku máli gengur undir heitinu ,,eco-taxes``, eða umhverfisskattar, á örugglega eftir að setja mjög svip sinn á skattaumræðu á næstu árum. Það eru einkum tvenns konar skattar sem menn ræða um í þessum efnum, annars vegar skattar af því tagi að umhverfisspillirinn greiðir hlutfallslega meira en aðrir og svo hins vegar skattar sem eru tekjustofnar vegna umhverfisverndar.
    Hins vegar var ákveðið í meðferð þingflokkanna að fara ekki nú inn á þessa braut með því að greina bifreiðagjaldið í slíka tvo hluta, heldur gefa sér lengri tíma til þess að undirbúa nánar breytingar á íslenskri skattalöggjöf sem tæki mið af þeim umhverfisþáttum sem ég vék hér að. Þess vegna er hér lagt til að bifreiðagjaldið breytist með hefðbundnum hætti í þeim tilgangi að skila ríkissjóði 550 millj. kr. í viðbótartekjur á næsta ári.
    Ég legg svo til, virðulegi forseti, að að lokinni þessari umræðu verði frv. vísað til hv. fjh.- og viðskn. og 2. umr.