Matthías Bjarnason:
Herra forseti. Ég ætlaði að hæla hæstv. fjmrh. örlítið en ræða hans breytti því þannig að ég verð eiginlega að láta af því. Ég ætla að hæla hæstv. fjmrh. fyrir það að í athugasemdum með þessu lagafrv. er sagt að frv. geri ráð fyrir sérstakri hækkun á bifreiðagjaldi. Þetta heyrir eiginlega algjörlega til undantekninga, að viðurkennt sé að með frv. sem valda landsmönnum auknum útgjöldum sé verið að hækka gjöld á landsmönnum. Ég ætlaði því að þakka fjmrh. fyrir þessa hreinskilni, að hann hefur brugðið í þessu eina tilfelli út af vananum, að rangfæra með öllu tekjuöflunarfrumvörpin. En svo kom hann að öðru sem er mjög eftirtektarvert, að frv. er ekki flutt til þess að fá peninga í ríkissjóð. Nei, þetta er mengunarskattur. Og þar hitti hann nú naglann á höfuðið, blessaður fjmrh. Þetta er mengunarskattur. Það er kannski von á stórfelldri löggjöf um skatta á alla mengunarvalda og sennilega væri hægt að koma því fram, jafnvel áður en stjórnarráðsfrv. verður að lögum sem veldur nú miklum titringi í hluta af hæstv. ríkisstjórn.
Mig langar að koma aðeins inn á þetta atriði sem frv. fjallar um, efnislega. Það er gert ráð fyrir að hækka bifreiðagjald úr 2,83 kr. í hvorki meira né minna en 5,20 kr. Hins vegar er það rétt sem segir í grg., að ef nýting á þeirri heimild sem er í gildandi lögum hefði verið notuð að fullu hefði þetta gjald farið í u.þ.b. 3,13 kr.
Ríkisstjórnin hæstv. hefur sýnt mikið örlæti á þessu ári. Hún hefur ekki nýtt sér heimildir til að hækka bensín eins og skyldi. Súperbensín mætti vera 21,05 kr. lítrinn en er 19,39 kr. Munurinn er því 1,66 kr. á lítrann. Á blýlausa bensíninu er aðeins minni munur. Það er núna á 17,74 kr. lítrinn en mætti vera 19,27 kr. þannig að mismunur á því er 1,53 kr. á lítra.
Menn spyrja: Hvers vegna eru ekki þessar heimildir notaðar? Er þetta umhyggja fyrir bíleigendum að þessi heimild er ekki notuð eða er þetta vegna
þess að með því að nota ekki heimildina er farið inn á þessa braut, að leggja 5,20 kr. skatt á hvert þungakíló í bíl. Það er gert, ekki vegna mengunarvarna, hæstv. fjmrh. --- það er gert til þess að leggja á nýjan skatt sem ríkissjóður hirðir. Þessari hækkun á þessu bifreiðagjaldi er ætlað að gefa 550 millj. kr. viðbótartekjur í ríkissjóð á næsta ári. En með því að nota ekki hækkunarheimild á bensínið er verið að hafa af Vegasjóði verulegt fjármagn. Tekjur Vegasjóðs, miðað við að full heimild væri notuð, mundu aukast á einu ári um 260--270 millj. kr. Víða úti um land er uppbygging vega ekki komin það langt að viðunandi sé eins og allir vita. Og mörg aðkallandi verkefni í vegamálum eru orðin brýn nauðsyn hér á höfuðborgarsvæðinu, sem við köllum. Með þessu móti er verið að hafa af Vegasjóði stórfé. Á þessu ári hefur verið haft af Vegasjóði fé sem nemur 130--150 millj. kr. eftir að horfið var frá því að nýta sér þessa heimild.
Ég minni á að Alþingi afgreiddi vegáætlun 20. maí
á þessu ári. Þá var mörkuð stefna í vegamálum. Þá var vegafé skipt af Alþingi og reiknað með ákveðnum tekjum. Þetta er stefna sem Alþingi hefur sjálft tekið. Sú stefna sem nú er tekin er í hróplegri mótsögn við stefnu Alþingis sem það markaði með samþykkt vegáætlunar 20. maí. Þess vegna er ég undrandi ef þingmenn stjórnarliðsins sætta sig við svona vinnubrögð, ef þeir sætta sig við að vegamálin séu skorin niður um rúman milljarð frá því í vor, eða 1 milljarð 15 millj., aðallega vegna framkvæmda og viðhalds eins og menn vita glögglega.
Í fjárlagafrv. finnur fjmrh. út að veruleg hækkun verði til vegamála. Og hann hefur alltaf sínar aðferðir við alla útreikninga og virðist hafa haldist þetta nokkuð sæmilega uppi. Hann telur að hækkun hafi orðið með því að miða við fjárlög sem afgreidd voru fyrir ári, draga frá þeim óleyfilegan niðurskurð sem engin heimild var fyrir. Út frá því finnur hann út að hækkun verði til vegamála. Ég held nú að hæstv. fjmrh. verði að eiga það að hann er eini fjmrh. sem hefur haft þessar aðferðir uppi og er eiginlega alveg á sérplani. En hvort mönnum líki þetta svona í framtíðinni, úr því verður sagan að skera þegar þar að kemur. En það eru svona einstaka sérvitringar eins og ég og mínir líkar sem líkar ekki þessir útreikningar og þessar aðferðir.
Ég vil leyfa mér að spyrja, og hefði þá gjarnan mátt vera eitthvað meira inni af stjórnarliðum, ég sé að þeir eru ekki nema tveir og jafnvel ekki nema einn og hálfur þegar maður sér hverjir það eru, þannig að þeir virðast ekki hafa mjög mikinn áhuga á framgangi þessa máls eða hlusta á rök á móti þessu máli og á móti þessari málsmeðferð. En ég ætla samt að leggja fram nokkrar spurningar til allra stjórnarliða og þá ekki síst til þeirra sem eiga heima úti á landi, sem vinna fyrir kjördæmi sem eru skammt á veg komin í vegauppbyggingu. Eruð þið ánægðir með að skera niður til vegamála yfir milljarð frá samþykkt Alþingis 20. maí í vor? Eruð þið ánægðir með að nýta ekki heimild sem felst í lögum um bensínverð til þess að tryggja meira fjármagn til vegagerðar?
Ég gæti vel skilið hæstv. fjmrh. ef tekjur ríkissjóðs og Vegasjóðs hefðu hrunið eða orðið alvarlegur samdráttur, þá þyrfti að grípa til niðurskurðar.
Það gæti ég vel skilið. En því er ekki að heilsa. Með öðrum orðum, með því að nýta ekki heimild af bensínverði á að svipta Vegasjóð 260--270 millj. á næsta ári. En það á ekki að létta á þeim sem bílana eiga og þurfa að aka. Ríkið ætlar að taka 550 millj. til viðbótar á einu bretti með þessu frv.
Mikið er talað um virðingu Alþingis og að hún fari þverrandi. Og mikið skil ég orðið vel það fólk sem þannig talar. Það er ekki hægt að segja að Alþingi haldi uppi fullri virðingu, síður en svo. Það eru samþykkt lög, það eru samþykkt áform um að gera þetta og hitt og síðan er samþykkt að fara í kringum lögin og hundsa þau og fólk spyr: Getum við treyst þessum alþingismönnum? Þeir samþykkja þetta í dag og svíkja það á morgun og gerbreyta því sem þeir eru búnir að lýsa yfir. Það er nú gaman að sjá og
heyra suma þingmenn þegar þeir eru komnir í kosningabuxurnar sínar út á land og lýsa yfir óskaplegum áhuga á því að byggja vegina upp, alveg óskaplegum áhuga. Þá vantar ekki áhugann. Svo þegar búið er að kjósa þá og þeir eru komnir hér inn í þessa stofnun sem á að vera virðulegasta stofnun þjóðarinnar, þá gerbreyta þeir um skoðun án þess að færa nokkur gild rök fyrir slíkum skoðanaskiptum. ( ÞP: Fjmrh. náði nú ekki kosningu.) Já, og meira að segja þeir sem falla geta gert stórskaða í þessum efnum.
Hvað eru bílar? Eru þetta einhver tæki sem eru óþörf? Er þetta ekki orðin almenningseign, bifreiðar? Þurfa ekki fjöldamargir atvinnu sinnar vegna að eiga bíl? Ég veit að það eru líka margir sem keyra óþarflega mikið og mættu gjarnan keyra minna. Þá á bara að láta þá borga rétt verð á bensíni. Það er þá um leið skattur, hemill á menn en ekki þá sem þurfa atvinnu sinnar vegna að hafa bíl, menn sem eiga langt í vinnu, hafa ekki almenningsfarartæki til að stóla á. Það er verið að bæta hér stórum útgjöldum á þá. Ég fullyrði, hæstv. fjmrh., í fullri vinsemd að hér eru fjmrh. og ríkisstjórnin að fara öfuga leið. Meira að segja þó þið ætlið að hirða hverja krónu, og verðið þá að breyta lögum um Vegasjóð, er miklu eðlilegra að nota heimildina á bensínverðið en fara þessa leið, miklu eðlilegra og sjálfsagðara.
Þingflokkur Sjálfstfl. er á móti þessu frv. af þeim ástæðum sem ég hef þegar rakið en þingflokkur Sjálfstfl. er ekki á móti því að heimildir séu notaðar lögum samkvæmt varðandi verðlagningu á bensíni. Við viljum ekki bregða fæti fyrir það. Við viljum að þær heimildir verði notaðar en horfið sé frá því að stórhækka skatta með þessum hætti. Ég skal segja hæstv. fjmrh., líka í fullri vinsemd, að á fundi í fjh.- og viðskn. Nd. í morgun komu fulltrúar launþegasamtakanna, að vísu út af öðru máli eða frv. um tekju- og eignarskatt, og það var ljótt hljóðið. Þeir töldu að hér væri um hækkun skatta að ræða. Þetta er einn liður í því að hækka skatta á almenning í þessu landi. Þetta er einn liðurinn líka í því að gera andrúmsloftið verra í hönd farandi kjarasamningum og það er þetta sem við sjálfstæðismenn erum að vara ríkisstjórnina við. Ei veldur sá er varar.
Nú er það þingmanna að taka ákvörðun og þetta er ekki eingöngu ákvörðun hæstv. fjmrh. Hann kæmi þessari skattahækkun ekki í gegn ef þingmenn héldu vöku sinni og væru allir með fulla meðvitund. Þá væri þetta frv. dautt. Nú ríður á því að þingmenn séu hristir aðeins til og minntir á það sem þeir segja fyrir kosningar og minntir á áhugamál sín í samgöngumálum. Það er kominn tími til að þeir svari til saka. Það er ekki eingöngu fjmrh., hann hefur ekki atkvæðisrétt hér í þinginu. (Gripið fram í.) Nei, hann verður nú ekki saklaus, hvorki í þessu máli né mörgum öðrum.
Við erum að fara alltaf meira og meira í aukna miðstýringu í þessu landi. Það er stór breyting að gerast í Búlgaríu. Þar ráku þeir formanninn í kommúnistaflokknum núna og meira að segja son
hans líka. Þeir eru óheiðarlegir, sögðu þeir. En við erum að stórauka miðstýringuna hérna og taka upp skömmtun á ýmsum sviðum. Nú má ekki opin trilla fara með nokkra öngla án þess að hún sé tekin af stærsta varðskipi íslenska flotans sem er yfir þessari trillu í 8 tíma. Síðan eru mennirnir fluttir á sakamannabekk og yfirheyrðir og afli og veiðarfæri gerð upptæk, það voru heil 45 kg, og línan var nú unnin heima í stofu hjá öðrum karlinum sem er gamall skipstjóri. Segið þið svo að það sé ekki miðstýring í þessu landi. Á sama tíma og vorvindar geysa víða um Evrópu grúfir myrkur yfir þessu þjóðfélagi.