Stjórnarráð Íslands
Miðvikudaginn 13. desember 1989


     Hagstofuráðherra (Júlíus Sólnes):
    Virðulegi forseti. Til mín hefur verið beint nokkrum spurningum sem ég skal reyna að svara eftir bestu getu. Það er að vísu svo, eins og hefur komið fram hér í máli hv. þm., að þessi umræða er búin að taka langan tíma og kannski sumir farnir að gleyma því um hvað var spurt og hvað var rætt um á hinum ýmsu stigum hennar. En ég hef nú haldið þessu til haga hvað sjálfan mig varðar og vonast til þess að ég geti þrátt fyrir allt gefið fullnægjandi svör við þeim spurningum sem til mín var beint.
    Fyrstur talaði í umræðunni hv. þm. Ingi Björn Albertsson. Hann beindi m.a. þeirri spurningu til mín, og reyndar kom hann inn á það aftur í máli sínu nú áðan, hvað væru umhverfismál og hvernig þau skyldu skilgreind, en hann taldi að það væri ekki nægilega vel fjallað um það í frv. Ég er ekki sammála þessu því að ég tel þvert á móti að það sé í raun ákaflega vel skilgreint hver verða helstu verkefni hins nýja umhverfisráðuneytis þegar það er orðið að lögum. Ég vil láta mér nægja að vitna til grg., en á bls. 7 í grg. kemur fram hver eru helstu verkefni umhverfisráðuneytis.
    Það er nefnilega svo að það er búið að leggja gríðarlega mikla vinnu í að semja þetta frv. og undirbúa þetta mál í heild sinni. Tel ég að þar hafi verið staðið mjög vel að verki. Það hefur farið fram mjög ítarleg og vönduð vinna við það að kanna málið frá öllum hliðum og mér er til efs að það hafi nokkurn tíma í þeim tilraunum, sem áður hafa verið gerðar til að koma á skipan umhverfismála í Stjórnarráði Íslands, verið lagt út í jafnmikla vinnu og nú var gert við undirbúning þessa máls. Viðfangsefnin eru fyrst og fremst talin upp undir lið A á bls. 7 í grg. og þarf ég varla að fara að lesa þau hér upp því að þau eiga að vera öllum ljós. Ég mundi þó kannski aðeins vilja benda á fyrsta lið undir Viðfangsefni sem heitir svo, með leyfi hæstv. forseta:
    ,,1. Mál er varða náttúruvernd, þjóðgarða, landgræðslu að því er tekur til gróðurverndar, varna gegn gróðureyðingu, friðunar og eftirlits með ástandi gróðurs, verndun, friðun og eftirlit með náttúrulegum birkiskógum og skógum til útivistar, útivist og aðstöðu til náttúruskoðunar, jarðrask og efnistöku, aðgerðir til að stjórna stofnstærð villtra dýra, dýravernd og efling alhliða umhverfisverndar.``
    Að sjálfsögðu hafa mörg önnur atriði verið rædd og ég held að það vefjist lítt fyrir mönnum hvað málið snýst um, enda má á það minna að gert er ráð fyrir því að Náttúruverndarráð og starfsemi þess færist undir hið nýja umhverfisráðuneyti. Þar hafa þessi mál í sjálfu sér verið ágætlega skilgreind en að sjálfsögðu mun verða lögð í það áframhaldandi vinna að fjalla nánar um hver þessi viðfangsefni eru og nægir þar að minna á ákvæði til bráðabirgða en um þau segir í grg. með frv., með leyfi hæstv. forseta, um 1. tölul. ákvæðis til bráðabirgða:
    ,,Við samningu frv. til laga um umhverfisvernd verður m.a. fjallað um sérstaka

umhverfisverndarstofnun. Hún taki að sér þau viðfangsefni á sviði landgræðslu og skógræktar sem heyra undir umhverfisráðuneyti og yfirstjórn þess samkvæmt athugasemdum hér á eftir og drögum að reglugerð í fskj. I.``
    Eins og þarna kemur fram verður að sjálfsögðu kannski eitt fyrsta verkefni hins nýja ráðuneytis að undirbúa frv. til laga um umhverfisvernd og þar verður að sjálfsögðu farið í vinnu þar að lútandi að skilgreina nánar hver þessi umhverfisverndarverkefni eru.
    Hv. þm. Ingi Björn Albertsson kom enn fremur inn á kostnaðaráætlunina sem fylgir með í grg. með frv. og spurðist fyrir um það hvort að mínu mati væri áætlað nægilega fyrir þeim þörfum sem við sjáum fyrir okkur. Ég er þeirrar skoðunar að það sé óþarfi að fara af stað með mikið bákn og þar get ég tekið heils hugar undir með hv. þm. að það er a.m.k. ekki mín ætlan að hið nýja umhverfisráðuneyti verði stórt bákn. Ég tel eðlilegt og sjálfsagt að það sé farið rólega af stað og reynt að halda vel utan um ráðuneytið og starfsemi þess á þann hátt að þar verði gætt ýtrasta aðhalds og sparsemi, enda held ég að það megi ná miklum og góðum árangri á sviði umhverfismála án þess að fara út í jafnmikið risabákn og tíðkast hefur, sem réttilega var bent á af hv. þm., í sumum nágrannalanda okkar.
    Ég ætla ekki að fara út í einstök verkefni og einstakar stofnanir sem vissulega hefur verið ágreiningur um. Það er ekkert launungarmál að þar eru menn ekki á eitt sáttir og þarf ég ekkert að fjölyrða um það frekar. Ég vil þó aðeins geta þess að varðandi heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga og heilbrigðisfulltrúa sem starfa á vegum sveitarfélaga, þá hafa komið til mín fulltrúar Félags heilbrigðisfulltrúa sveitarfélaga til að lýsa ánægju sinni yfir stofnun nýs umhverfisráðuneytis og fullvissað mig um það að þeir sjái ekkert því til fyrirstöðu að þeir geti allt að einu starfað undir umhverfisráðuneyti og átt gott samstarf við væntanlegan umhverfisráðherra.
    Varðandi skipulags- og byggingarmál er það nú svo að það er að mati flestra talið að skipulags- og byggingarmál séu svo nátengd umhverfismálum að þau verði ekki skilin frá þeim. Það er auðvitað alveg ljóst --- og mér finnst hafa
gætt dálítið mikils misskilnings hjá mörgum aðilum, að þegar nýtt umhverfisráðuneyti verði að veruleika, þá er eins og þeir telji sig ekki geta haft neitt samstarf við slíkt ráðuneyti. Það hefur gætt nokkurs ótta sumra sem hafa talið sig eiga gott samstarf við ákveðna málaflokka undir ákveðnum ráðuneytum, að flytjist þessir málaflokkar yfir til annars ráðuneytis þá muni þeir ekki geta átt neitt samstarf við það ráðuneyti. Þetta er náttúrlega mikill misskilningur því að að sjálfsögðu er jafnauðvelt að eiga samstarf um skipulags- og byggingarmál hvort sem þau eru í ráðuneyti sem heitir umhverfisráðuneyti eða ráðuneyti sem heitir félagsmálaráðuneyti. Í þessu tilliti skiptir nafnið á ráðuneytinu ekki máli. Það er kannski miklu frekar undir því komið hverjir vinna þar hvernig

samstarfinu verður háttað. En ég held að aðalatriðið sé þetta: Að dómi flestra eru skipulags- og byggingarmál svo nátengd umhverfismálum að þau verða ekki þaðan skilin frá.
    Þá kem ég að spurningum sem hv. þm. Pálmi Jónsson beindi til mín. Hann lýsti yfir áhyggjum sínum vegna fjárútláta varðandi þátttöku Íslendinga í Norrænu fjárfestingarfélagi á sviði umhverfismála. Það gætir nú nokkurs misskilnings hjá hv. þm. um þann kostnað sem hlýst af þátttöku Íslendinga í þessu fjárfestingarfélagi, en gert er ráð fyrir því að hlutur Íslendinga verði nálægt 26 millj. kr. Hann á að greiðast á sex árum þannig að framlag Íslendinga til þessa félags, þ.e. stofnframlag ef um það verður tekin ákvörðun, mundi þá nema um það bil 5 millj. kr. á næsta ári. Nú vil ég geta þess að þetta fjármögnunarfélag kemur í sjálfu sér stofnun umhverfisráðuneytis á Íslandi ekkert við því ef það mál væri ekkert á dagskrá hér í þinginu þessa stundina, þá mundum við eftir sem áður svo og ríkisstjórnin vera að ræða hvort Íslendingar ættu að gerast aðilar að þessu fjárfestingarfélagi. Það tengist í sjálfu sér ekkert stofnun nýs umhverfisráðuneytis. Ríkisstjórnin mundi að sjálfsögðu yfirvega það hvort hún hygði á þátttöku í norrænu samstarfi á þessu sviði án tillits til þess hvort hér væri fyrirhugað að koma upp umhverfisráðuneyti eða ekki. Ég tel allar líkur á því að Íslendingar mundu kjósa að taka þátt í þessu fjárfestingarfélagi hvort sem við ætluðum að stofna umhverfisráðuneyti eða ekki. Hér er um mjög áhugavert verkefni að ræða.
    Hv. þm. Pálmi Jónssn taldi að hér væri um að ræða sérstakt verkefni á sviði mengunarvarna í Austur-Evrópu sem kæmi okkur Íslendingum lítið við. Það nægir í því sambandi að minnast á eitt mjög sérstakt og áhugavert verkefni sem Íslendingar taka nú þegar þátt í sem mundi falla undir verksvið þessa nýja fyrirtækis ef það verður að veruleika, en það er samstarf íslenskra aðila og ungverskra um nýtingu jarðvarma í Ungverjalandi. Það er verkefni sem fellur nákvæmlega undir verksvið þessa fjárfestingarfélags vegna þess að um er að ræða óbeina umhverfisvernd með því að nýta svokallaða hreina orku.
    Ég spurði fulltrúa Norræna fjárfestingarbankans á fundi sem við vorum á á vegum Norðurlandaráðs á Álandseyjum núna nýlega hvort það væri ekki réttur skilningur hjá mér að hér væri um að ræða verkefni sem félli nákvæmlega inn undir ramma þessa fyrirhugaða fjárfestingarfélags. Þeir kváðu svo vera og töldu að hér væri einmitt um eitt slíkt áhugavert verkefni að ræða sem að sjálfsögðu mundi falla innan ramma þessa nýja félags. Það er því greinilegt að við gætum haft mikið gagn af því að vera þátttakendur í þessu félagi.
    Hv. þm. Stefán Valgeirsson spurðist fyrir um þá fyrirhuguðu nefnd sem gert er ráð fyrir að verði skipuð til þess að semja lög um umhverfisvernd, en það kemur fram í ákvæðum til bráðabirgða eða eins og þar segir, með leyfi hæstv. forseta:
    ,,Eftir gildistöku laga þessara skipar

umhverfisráðherra nefnd til þess að semja frumvarp til laga um umhverfisvernd.``
    Hv. þm. Stefán Valgeirsson spurðist fyrir um það hvort hér yrði um embættismannanefnd að ræða eða hvort leitað yrði til sérfræðinga og annarra þeirra sem umhverfismál varða til setu í nefndinni. Um það hefur að sjálfsögðu ekki verið tekin nein ákvörðun en ég tel sjálfsagt að þessi nefnd verði á breiðum grundvelli þannig að þar komi fram bæði sjónarmið embættismanna og þeirra sérfræðinga sem starfa á sviði umhverfisverndar.
    Hv. þm. Stefán Valgeirsson spurðist enn fremur fyrir um landgræðslu- og skógræktarmálin og eftirlitsþáttinn sem þeim tengist. Í grg. með frv. kemur fram að það hefur orðið samkomulag um ákveðna verkaskiptingu milli hins fyrirhugaða umhverfisráðuneytis og landbrn. sem mun áfram annast verkefni á sviði gróðurverndar og skógræktar. Þar er gert ráð fyrir, eins og ég reyndar vék að í upphafi máls míns við þessa umræðu, að umhverfisráðuneytinu er fyrst og fremst ætlað að leggja áherslu á gróðureftirlit og gróðurrannsóknir. Enn fremur er minnst á að umhverfisráðuneytinu sé ætlað að annast verkefni á sviði gróðurverndar, þar með talið hvers konar varnir gegn gróðureyðingu án þess að búist verði við því að á móti komi arður eða efnahagslegar nytjar. En á verksviði landbrn. verði hins vegar fyrst og fremst ræktun ógróins eða lítt gróins lands með það í huga að fá af því beinar nytjar, t.d. með því að rækta beitarlönd og tún, og breytingu á landi til að bæta gróðurfar þess í atvinnuskyni og renna þannig fleiri stoðum undir landbúnaðinn, t.d. með ræktun
nytjaskóga. Þetta hefur verið misskilið af mörgum með þeim hætti að þarna sé verið að halda því fram að þessar tvær stofnanir landbrn. muni þá þar með ekki lengur fást við gróðureftirlit eða gróðurrannsóknir. Svo er ekki. Hér er eingöngu verið að tala um að efla þennan þátt umhverfismála, þ.e. gróðureftirlit og gróðurrannsóknir og að sjálfsögðu er gert ráð fyrir nánu samstarfi á milli umhverfisráðuneytisins og landbrn. á þessum vettvangi.
    Það var fjallað lítillega um Hollustuverndina. Hv. þm. Stefán Valgeirsson spurði enn fremur um Hollustuverndina, að hve miklu leyti það væri skynsamlegt að hún færðist undir umhverfisráðuneytið. Það hafa verið skiptar skoðanir um það og að sjálfsögðu hlýtur að vera erfitt að ákveða nákvæmlega hvaða verkefni það verða, sérstaklega þegar um er að ræða stofnun eins og Hollustuverndina þar sem um er að ræða mjög víðtækt verkefnasvið, hvort það borgi sig að kljúfa hana í sundur og færa ákveðinn hluta verkefna hennar undir umhverfisráðuneytið eða hvort það borgi sig að flytja stofnunina í heilu lagi á þeim grundvelli að það sé heppilegra að hún starfi áfram sem heil stofnun en að hún verði hlutuð í sundur.
    Ég kem þá að nokkrum spurningum sem hv. þm. Birgir Ísl. Gunnarsson beindi til mín. Það er kannski ekki rétt að segja að hann hafi beinlínis beint til mín

ákveðnum spurningum, heldur fjallaði hann fyrst og fremst um skipulagsmál sveitarfélaga og taldi eðlilegt að þau væru þar áfram eða kannski að skipulagsmálin ættu að færast alfarið til sveitarfélaganna. Ég skil þá hugmyndir hv. þm. þannig að hann telji að ekkert ráðuneyti eigi í raun og veru að fara með skipulags- og byggingarmál. Ég er ekki sammála þessari skoðun. Enda þótt ég sé hlynntur því sjónarmiði að sveitarfélögin hafi sem mest sjálfsforræði í skipulagsmálum, þá tel ég, eins og stjórnkerfi okkar er byggt upp, nauðsynlegt að eitthvert ráðuneyti fari þó með yfirstjórn þeirra mála. Það sé t.d. hægt að skjóta ágreiningsmálum til einhvers ráðuneytis. Ég minni t.d. á eitt dæmi um slík vandamál sem ég hef kynnst persónulega, en það er samstarf á sviði skipulagsmála sem sveitarfélögin hér á höfuðborgarsvæðinu hafa haft með sér. Það hefur nánast allt gengið á afturfótunum. Því miður.
    Það var þannig fyrir allmörgum árum, líklega skömmu eftir 1960, að Skipulagi ríkisins þótti orðið erfitt um vik að samræma skipulag sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu og gekkst fyrir því að stofnuð var sérstök svæðisnefnd Reykjavíkursvæðisins á sviði skipulagsmála þar sem öll sveitarfélögin sem mynda höfuðborgarsvæðið áttu tvo fulltrúa hvert. Þessi svæðisnefnd sá um að samræma skipulagstillögur sveitarfélaganna og reyna að koma á heildarskipulagi höfuðborgarsvæðisins. Þetta gekk ekki sem skyldi. Þessi vinna skilaði þó nokkrum árangri en ekki kannski eins miklum árangri og menn höfðu vonast til. Það var síðan að frumkvæði sveitarstjórnarmanna á höfuðborgarsvæðinu að sveitarfélögin ákváðu að taka þessi mál í sínar hendur. Með sérstökum samningi varð til Skipulagsstofa höfuðborgarsvæðisins árið 1979 og leysti hún smám saman svæðisnefndina af hólmi. Það tókst þrátt fyrir það ekki betur en svo að þetta samstarf sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu með Skipulagsstofu höfuðborgarsvæðisins rann smám saman út í sandinn og 1986 ákváðu sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu að hætta þessu samstarfi. Nú er aftur komið í sama farið og var fyrir 1960, að samstarf sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu á sviði skipulagsmála er aldeilis ófullnægjandi. Það má því spyrja þeirrar spurningar hvort nauðsynlegt sé að hafa einhverja yfirstjórn á sviði skipulagsmála, sérstaklega þegar lýtur að samræmdu skipulagi landshluta og stórra svæða sem ríkisvaldið verður þá að hafa frumkvæði að þegar sveitarfélögin koma sér ekki saman um með hvaða hætti skuli hafa slíkt samræmt skipulag.
    Hv. þm. Hreggviður Jónsson beindi til mín þeirri spurningu --- eða kannski má segja að hann beindi þeirri spurningu almennt til þingsheims --- hvort ekki væri verið að stofna til óþarfa útgjalda með stofnun umhverfisráðuneytis og taldi að heildarkostnaður fyrir árið 1990 yrði 60 millj. kr. vegna þátttöku Íslendinga í þessu svokallaða mengunarvarnafjárfestingarfélagi Norðurlandanna. Þetta er eins og ég gat um áðan á misskilningi byggt þar sem enn þá hefur ekki verið tekin ákvörðun um það að Íslendingar gerist aðilar að

Fjárfestingarfélagi Norðurlandanna á sviði mengunarvarna. Enn fremur, ef ákvörðun um slíkt verður tekin, þá er framlag Íslendinga að vísu 26 millj. kr. en það greiðist á sex árum og framlagið verður því 5 millj. kr. á næsta ári. Svo get ég ítrekað það enn þá einu sinni að þátttaka Íslendinga í þessu Fjárfestingarfélagi Norðurlandanna á sviði mengunarvarna tengist ekki beinlínis stofnun nýs umhverfisráðuneytis og ég ítreka það aftur að að öllum líkindum mundu Íslendingar taka ákvörðun um að gerast þátttakendur í þessu félagi hvort sem hér væri verið að stofna umhverfisráðuneyti eða ekki.
    Um varnir gegn mengun sjávar. Hv. þm. spurðist fyrir um það hvort ekki væri nauðsynlegt að þær yrðu áfram í tengslum við Siglingamálastofnun og þannig í tengslum við sjávarútveginn. Þess má geta að ég hef átt um þetta viðræður við forstöðumann Siglingamálastofnunar og hann telur að þó að mengunarvarnadeild Siglingamálastofnunar heyri undir umhverfisráðuneyti en Siglingamálastofnun að
öðru leyti heyri undir samgrn. þá ætti að vera auðvelt að hafa gott samstarf við bæði umhverfisráðuneyti og samgrn. og stofnunin sem slík gæti eftir sem áður starfað nánast óbreytt. Það þyrfti ekki að verða mikil breyting á starfsháttum stofnunarinnar, a.m.k. ekki fyrst um sinn. Hann telur ekki nein vandkvæði á þessari tilhögun.
    Hv. þm. Ragnhildur Helgadóttir spurðist fyrir um fund sem var haldinn á mánudaginn var með fulltrúum bandaríska sendiráðsins. Reyndar var bandaríski sendiherrann sjálfur hvatamaður að því að þessi fundur var haldinn, en hann var haldinn til að ræða hugmynd sem upp hefur komið um að hér á Íslandi yrði sett á stofn alþjóðleg umhverfisrannsóknamiðstöð sem er ætlað miklu víðtækara hlutverk en hv. þm. taldi. Ég vil hins vegar flýta mér að undirstrika það að hér er um mjög lauslegar hugmyndir að ræða og þessi fundur var haldinn til þess að gefa fulltrúum þeirra stofnana og þeirra vísindamanna, sem tengjast þessu máli beint eða óbeint, tækifæri til að segja hug sinn til þessarar hugmyndar. Hvort þeim virðist þetta vera skynsamleg hugmynd, að hér rísi slík stöð, hvort hún muni eitthvað geta greitt götu þeirra rannsókna sem æskilegt væri að hér færu fram og/eða hvort hún mundi nokkuð rekast á þær rannsóknir sem fara fram nú þegar á vettvangi ýmissa stofnana sem hér eru. Ég vildi þess vegna aðeins skýra frá því hér að verið var að ræða þessar hugmyndir á algeru frumstigi og aldeilis óvíst hvort nokkuð frekar verður úr þessu. Ég tel hins vegar sjálfur að hér sé um mjög áhugaverða hugmynd að ræða.
    Mig langar til að lýsa því í örstuttu máli hvernig ég sé þessa hugmynd fyrir mér. Um það er talað að hér gæti risið alþjóðleg umhverfisrannsóknamiðstöð fyrir umhverfi Norður-Atlantshafsins. Þá er bæði talað um hafsvæðið sjálft, þ.e. sjóinn og ekkert síður loftið, þ.e. lofthjúpinn yfir Norður-Atlantshafinu. Því er verið að fjalla t.d. um langtímaveðurathuganir, lofthjúpsmælingar, ósonmælingar, mælingar á

hafstraumum og lífríki hafsins, mælingar á geislavirkni í Norður-Atlantshafinu, t.d. af völdum umferðar kjarnorkuknúinna farartækja, getum við sagt, og margt fleira.
    Það er kannski ekki hugmynd manna að hér verði einhver hópur vísindamanna sem tengist slíkri stofnun og stundi allar slíkar rannsóknir hér við stofnunina, heldur fái hún fremur samræmingarhlutverk, að stuðla að samstarfi hinna fjölmörgu stofnana sem eru bæði hér á landi, í Bandaríkjunum, í Kanada, í Noregi, í Danmörku og í Englandi, en það eru þau lönd sem helst var talið að kynnu að hafa áhuga á því að slík rannsóknamiðstöð risi hér. Ég tel að hér sé um mjög athyglisvert og fróðlegt verkefni að ræða og sjálfsagt að sinna því með þeim hætti sem hér er verið að stinga upp á að verði gert, þ.e. að menn rannsaki kosti og galla þessarar hugmyndar, en að öðru leyti er þetta eins og ég segi fyrstu lauslegu hugmyndir manna um þetta mál og engar ákvarðanir hafa verið teknar um framhaldið.
    Það var minnst aftur á það sem ég greindi frá í ræðu minni síðast þegar við ræddum umhverfismálin. Þar sagði ég m.a. frá því að Norðmenn hefðu stofnað sérstakt þróunarmálaráðuneyti. Það var nú til skýringar á því að við höfum rætt töluvert mikið um lagalegan grundvöll þess að hér verði stofnað umhverfisráðuneyti og að hér verði til umhverfisráðherra. Ég er út af fyrir sig sjálfur alveg sammála því að það er mjög hollt og gott fyrir okkur að hafa stranga löggjöf um Stjórnarráð Íslands. Að það þurfi lagabreytingu sem hér er verið að leggja til á stjórnarráðslögunum til þess að mynda nýtt ráðuneyti. Hins vegar er það athyglisvert að þetta er mjög losaralegt hjá öðrum þjóðum. Þannig sögðu Norðmenn mér frá því að í norskum lögum væru engin ákvæði þess efnis að það þurfi lagabreytingu til að búa til ný ráðuneyti. Þeir segja mér, Norðmenn, að það komi nánast fram við myndun nýrrar ríkisstjórnar. Ef mönnum sýnist svo að þeir vilji stofna einhver ný ráðuneyti þá sé það gert í stjórnarsáttmálanum. Það þurfi enga lagabreytingu þar til. Þeir geti búið til ráðuneyti og nýja ráðherra eins og þeim sýnist. Þetta sama segja Danir mér að gildi í Danmörku, að það þurfi engar lagabreytingar til þess að búa til ný ráðuneyti eða nýja ráðherra. Þeir eiga þess vegna svolítið erfitt með að skilja þennan vandræðagang hér hjá okkur Íslendingum. Þrátt fyrir það held ég að við eigum að vera ánægð með að við skulum þó a.m.k. hafa þetta í svona föstum farvegi, að það þurfi vandaðan undirbúning og lagabreytingu til að koma þessu á. Ég held að við getum verið sammála um að við getum verið ánægð með þá tilhögun mála að það sé ekki æskilegt að hafa þetta jafnopið og laust eins og þetta virðist vera víða erlendis, í nágrannalöndum okkar.
    Að lokum kom hv. þm. Ingi Björn Albertsson inn á nokkur mál sem ég veit ekki hvort ég á að taka sem spurningar, m.a. varðandi þá ráðstefnu sem var í Frankfurt í síðustu viku þar sem voru til umræðu umhverfismál og heilbrigðismál, ekki heilbrigðismál eingöngu heldur jafnhliða því umhverfismál.

Ráðstefnan fjallaði fyrst og fremst um það sem er sameiginlegt með þessum tveimur málaflokkum og með hvaða hætti umhverfið og heilbrigðismálin geta tengst til þess að árangur náist t.d. í heilbrigðismálum. Með því að stuðla að hreinu umhverfi geti það leitt af sér bætt heilsufar. Við ræddum þetta frá ýmsum hliðum og mér fannst hv. þm.
Ragnhildur Helgadóttir gera efni ráðstefnunnar og því sem þar fór fram ágæt skil í langri ræðu sem hún flutti hér síðast þegar við ræddum umhverfismálin þannig að ég vísa til þess sem hv. þm. Ragnhildur Helgadóttir sagði. Mér fannst hún greina ágætlega frá því sem þarna fór fram. Ég held að hv. þm. hafi kannski ekki alveg farið rétt með hvað var haft eftir mér, reyndar ekki í sjónvarpinu í kvöld heldur í útvarpinu, en þar taldi ég að hér væri um forgangsmál ríkisstjórnarinnar að ræða og það hlyti að sjálfsögðu sem önnur forgangsmál ríkisstjórnarinnar að fá þinglega meðferð áður en við færum í frí sem ég skal ekkert segja um hvenær verður. Það er ekki í mínum verkahring að stjórna þinghaldi hér og ég get þess vegna ekkert um það sagt, en ég sé ekkert því til fyrirstöðu að hægt sé að afgreiða þetta mál því að undirbúningur að því hefur verið mjög rækilegur. Það er búið að leita umsagna allra þeirra aðila sem tengjast þessu máli þannig að í sjálfu sér ætti að vera ofur auðvelt að afgreiða þetta mál ef menn hafa til þess vilja. En það verður auðvitað að fá sína þinglegu meðferð og svo verður að reyna á hvernig til tekst.
    Ég held að ég hafi hér í nokkrum orðum reynt að svara þeim spurningum sem til mín var beint og sé ekki ástæðu til þess að hafa þessi orð öllu fleiri en að sjálfsögðu mun ég reyna að svara ef til mín verður beint frekari spurningum.