Fyrirspyrjandi (Jóhann Einvarðsson):
Hæstv. forseti. Ég hef leyft mér á þskj. 212 að leggja svohljóðandi fsp. fyrir hæstv. menntmrh.:
,,Hvað líður framkvæmd ályktunar Alþingis frá 11. maí 1988 um íþróttir, æskulýðs- og tómstundastarfsemi?``
Þessi ályktun var upphaflega flutt af hv. varaþm. Finni Ingólfssyni og fleiri þm. með honum og niðurstaða Sþ. 11. maí 1988 var að samþykkja svohljóðandi till.: ,,Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta kanna áhrif og mikilvægi íþrótta, æskulýðs- og tómstundastarfsemi. Leitað verði samstarfs við íþróttahreyfinguna um mótun íþróttastefnu til ársins 2000.``
Ég get svo sem haft um þessa fsp. og þál. langt mál en ætla ekki að gera það. Fsp. skýrir sig sjálf og ég vænti þess að fá svar frá hæstv. menntmrh.: Hvað líður framkvæmd á þessari ágætu þál.?