Íþróttir, æskulýðs- og tómstundastarfsemi
Fimmtudaginn 14. desember 1989


     Ingi Björn Albertsson:
    Hæstv. forseti. Ég þakka fyrirspyrjanda fyrir að taka upp þetta mál sem er vissulega mjög brýnt. Æskulýðs- og íþróttamál eru einn af stórum póstum þjóðfélagsins og framtíðarinnar. Og ég fagna því sem fram kom í svari hæstv. ráðherra en vildi gjarnan inna hann eftir því hvort við megum þá eiga von á því frv. sem hann gerði hér að umtalsefni áðan, eða frumvarpsdrögum, inn á þetta þingár sem nú er að líða.