Íþróttir, æskulýðs- og tómstundastarfsemi
Fimmtudaginn 14. desember 1989


     Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson):
    Virðulegi forseti. Svarið er já. Ég mun að sjálfsögðu reyna að stuðla að því og ég tel að hér sé um að ræða mál af því tagi að ég mun gera ráðstafanir til þess að þingmenn geti einnig kynnt sér tillögur nefndarinnar varðandi stefnumótun í íþróttamálum til aldamóta, ekki aðeins frv. Ég hafði gert ráð fyrir því að strax og ég hefði fengið það í hendur mundi ég leggja það fyrir stjórnarflokkana, svo sem venja er, og vænti þess að Alþingi fái málið svo til meðferðar á þessu þingi. Það er ekki eftir neinu að bíða með það núna.