Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson):
Virðulegi forseti. Stutt svar við spurningu hv. 2. þm. Norðurl. e. er já. Það hefur verið að því unnið að nýtt álver rísi við Eyjafjörð.
Ég ætla að fjalla nokkuð um það sem að því máli hefur verið unnið sl. áratug.
Á árunum 1980--1986 gerði svokölluð staðarvalsnefnd athuganir á vegum iðnrn. á þeim stöðum þar sem helst þótti koma til greina að reisa álver. Ítarlegar athuganir fóru fram á aðstæðum til áliðju í Eyjafirði, m.a. í samstarfi við norska álfyrirtækið ASV. Á árunum 1984 og 1985 var rætt við nokkur erlend álfyrirtæki, m.a. ALCAN og beindust þær viðræður að álveri við Eyjafjörð. Þá kom m.a. fram nokkur andstaða við byggingu slíkrar verksmiðju þar en nú hafa að mínu áliti viðhorf heimamanna breyst í málinu.
Næsti áfangi í þessu máli er að í ársbyrjun 1988 var frumhagkvæmniáætlun unnin af íslenskum stjórnvöldum um nýtt 185 þús. tonna álver við Straumsvík lögð fyrir nokkur álfyrirtæki. Eftir viðræður við allmörg álfyrirtæki undirritaði Friðrik Sophusson þáverandi iðnrh. samkomulag hinn 4. júlí 1988 við fjögur álfyrirtæki um athugun á þessu máli, þ.e. nýju 185 þús. tonna álveri við Straumsvík. Frumhagkvæmniathugunin og samkomulagið var takmarkað við aukna álframleiðslu við Straumsvík.
Þetta samkomulag rennur út í lok þessa árs. Í samtölum við forstjóra álfélaganna Granges og Hoogovens, sem enn standa að þessum athugunum ásamt íslenskum stjórnvöldum, hef ég kynnt þeim önnur svæði sem til greina koma og hef þá sérstaklega nefnt Eyjafjörð og Reyðarfjörð. Á fundi sem ég mun eiga með forstjórum þessara fyrirtækja í næstu viku, þar sem framhald álmálsins verður rætt, verður m.a. staðsetning álversins á dagskrá. Ég geri ráð fyrir að nýtt samkomulag um framhald athugana á aukinni álframleiðslu verði undirritað í byrjun árs 1990. Það samkomulag verður ekki formlega bundið við Straumsvík.
En ég tel rétt að ítreka að allar athuganir sem fram hafa farið frá miðju ári 1988 og nú eru komnar á lokastig miðast við aukna framleiðslu á áli í Straumsvík eða þar í grennd. Það er ljóst að önnur staðsetning mundi kalla á viðbótarathuganir og tefði að öllum líkindum málið. Mér er til efs að það sé þessu brýna hagsmunamáli allrar þjóðarinnar til framdráttar að við setjum nú fram nýjar og afdráttarlausar kröfur á þessu stigi máls um aðra staðsetningu en til þessa hefur verið miðað við á grundvelli samkomulagsins sem þáv. hæstv. iðnrh. Friðrik Sophusson gerði um mitt ár 1988.
Ég vil ítreka það sem ég hef sagt opinberlega áður að bygging nýs álvers er landsmál, ekki landshlutamál.
Um Eyjafjörð sérstaklega vil ég taka fram að í byrjun júní sl. komu bæjarstjórar við Eyjafjörð og forustumenn héraðsnefndar Eyjafjarðar til fundar við mig til að ræða áhuga sinn á uppbyggingu orkufreks iðnaðar við Eyjafjörð. Í bréfi til þessara aðila 29. júní
sl. vísaði ég til athugana á nýjum hugmyndum um Fljótsdalsvirkjun og lýsti þeirri skoðun að kanna ætti rækilega möguleika á öðrum áfanga í uppbyggingu orkufreks iðnaðar í tengslum við þá virkjun. Í bréfinu tók ég fram að eðlilegt væri að mínu áliti að næsta stóriðjuframkvæmd, eftir aukinni álframleiðslu í Straumsvík, verði utan suðvesturhorns landsins. Þessi sjónarmið ítrekaði ég á fundi á Akureyri 13. sept. sl.
Ég er þeirrar skoðunar að við eigum að hugsa stórt í þessu máli. Það sé leiðin til að sætta byggðasjónarmiðin. Ég taldi því rétt að hefjast handa sl. sumar um undirbúning að nýju álveri utan höfuðborgarsvæðisins. Ég lét því í haust hefja endurskoðun á hluta af þeim umhverfisathugunum sem staðarvalsnefnd lét gera á áhrifum álvers í Eyjafirði. Norska rannsóknastofnunin NILU í samvinnu við íslensk ráðgjafarfyrirtæki mun ljúka sinni athugun á því máli í febrúar nk. Formlegar viðræður við álframleiðendur, aðra en ATLANTAL-hópinn, sem hugsanlega væru tilbúnir til viðræðna um að reisa hér nýtt álver, eru nú að hefjast, og fulltrúar stórs bandarísks álfyrirtækis koma til viðræðna við mig í byrjun janúar. Í þeim viðræðum mun ég m.a. ræða um staðsetningu í Eyjafirði.
Ég tek það fram að þrátt fyrir ákvæði samkomulagsins frá miðju ári 1988 um að unnið væri fyrst og fremst að því að byggja nýtt álver í Straumsvík, hef ég haft óformlega samband við nokkur álfyrirtæki um aðra staðsetningarmöguleika.