Álver við Eyjafjörð
Fimmtudaginn 14. desember 1989


     Hjörleifur Guttormsson:
    Virðulegur forseti. Það hefur ekkert þjóðhagslegt mat farið fram á áliðju á Íslandi og tilheyrandi virkjunum, a.m.k. hefur slíkt mat ekki verið kynnt Alþingi. Spurningin í þessu máli nú, eftir að iðnrh. stendur slyppur uppi eftir allar athuganirnar, er sú hvort stjórnvöld, ríkisstjórn Íslands, ætlar að ákvarða nýjar forsendur í þessu máli þar sem leitt verði í ljós hvaða skynsemi væri í því að reisa hér nýtt stórt álver og hvar slíkt álver eigi að reisa. Spurningin um staðsetningu er að sjálfsögðu eitt af þessum stóru atriðum sem eiga að koma inn í þjóðhagslegt mat þessa máls. Það er glórulaus vitleysa, eins og ég hef orðað það áður, að ætla að fara að reisa stóriðjuver hér á Reykjavíkursvæðinu, miðað við aðstæður í byggðamálum í þessu landi. En fyrst þarf að svara hinni almennu spurningu um þjóðhagslegt gildi slíkra framkvæmda og síðan að fullnægja þeim forsendum sem pólitískt samkomulag getur tekist um. Menn þekkja mínar skoðanir í því máli, ég fjölyrði ekki frekar um það hér.