Forseti (Guðrún Helgadóttir):
Forseti vill taka fram að það er að jafnaði reynt að ýta á eftir að svör berist við fyrirspurnum á tilsettum tíma. Í þessu tilviki hefur, eins og hv. þingheimur veit, verið annasamt í fjmrn. vegna fjárlagagerðar og vinnu í kringum það þannig að hér hefur nokkuð dregist. En forseti skal sjá til þess að þessari fsp. verði svarað fyrir jól ef mögulegt er.